Vinnuslys við Suðurlandsbraut Einn var fluttur á sjúkrahús eftir vinnuslys á vinnusvæði á Suðurlandsbraut upp úr hádegi í dag. Dælubíll slökkviliðs og tveir sjúkraflutningabílar voru kallaðir út vegna slyssins. Innlent 11. júní 2025 14:00
Dagur gáttaður á Viðskiptaráði: „Leigufélögin eru ekki andskotinn sjálfur“ Viðskiptaráð hefur kvartað til ESA þar sem það telur niðurgreiðslur til óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga grafa undan samkeppni og jafnræði á húsnæðismarkaði. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, segir ólíklegt að hagsmunir fyrirtækja séu fólgnir í verri húsnæðismarkaði. Innlent 11. júní 2025 12:46
Stórauka þjónustu Strætó í lok sumars Strætó mun stórauka þjónustu sína en frá og með 17. ágúst 2025 verður umfangsmikil þjónustuaukning í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Þessi aukning er hluti af Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó og skref í átt að nýju leiðaneti, sem á að taka gildi árið 2031. Innlent 11. júní 2025 12:36
Háhyrningurinn synti rakleiðis í strand Íbúi í Grafarvogi varð vitni að því þegar háhyrningur synti í strand í Gorvík í gærkvöldi og fangaði atvikið á myndskeiði. Innlent 11. júní 2025 11:51
Nefhjól á Austurvelli – Skiptir öryggi fólks á fjölmennasta svæði landsins ekki máli? Í ljósi þess að flugvél í aðflugi missti nefhjól sem hafnaði á Austurvelli er mikilvægt að stjórnvöld taki málið alvarlega. Oft er margmennt á Austurvelli en á sama tíma er flugumferð yfirgengilega mikil yfir miðborginni. Skoðun 11. júní 2025 10:15
Pharoahe Monch með De La Soul á Lóu Troy Jamerson sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Pharoahe Monch mun fylgja og koma fram með hljómsveitinni De La Soul á tónlistarhátíðinni Lóu sem fer fram í Laugardal í Reykjavík þann 21. júní. Lífið 11. júní 2025 10:01
Villi á Benzanum slapp með skrekkinn Vilhjálmur Sigurðsson, betur þekktur sem Villi á Benzanum, varð vitni að því þegar að nefhjól úr flugvél féll af himnum ofan og lenti á stéttinni sem skilur að Austurvöll og Alþingishúsið. Mikla mildi má telja að nefhjólið hafi hvorki lent á fólki á ferð né bygginum á svæðinu. Lífið 11. júní 2025 07:18
Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Slökkviliðsmenn hafa haldið háhyrningi sem strandaði í Gorvík nærri Korpúlfsstöðum í Grafarvogi í gærkvöldi rökum í nótt með það fyrir augum að halda honum á lífi. Innlent 11. júní 2025 06:56
Neitaði að borga fyrir leigubílinn og braut rúðu í lögreglubíl Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann eftir að hafa brotið rúðu í lögreglubíl. Lögregla var kölluð til og hafði afskipti af manninum þar sem hann hafði neitað að greiða fyrir leigubíl en reikningurinn hljóðaði upp á nokkra tugi þúsunda. Innlent 11. júní 2025 06:09
Háhyrning rak á land í Grafarvogi Háhyrning rak á land nærri golfvellinum Korpu við Korpúlfsstaði í Grafarvogi í kvöld. Innlent 11. júní 2025 00:25
„Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ „Hjólið náttúrulega fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt ...Við erum mjög heppin að ekki hafi farið verr. Það er náttúrulega aðalatriðið að ekki hafi orðið slys á fólki.“ Innlent 10. júní 2025 22:05
Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að nefhjól úr flugvél hefði lent á Austurvelli. Síðar barst þeim tilkynning um að flugvél hefði lent á Reykjavíkurflugvelli sem vantaði nefhjól. Innlent 10. júní 2025 19:29
Maðurinn á Esjunni er fundinn Maðurinn, sem leitað var að á Esjunni, fannst á fjórða tímanum í dag. Innlent 10. júní 2025 16:49
Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Ágúst Ólafur Ágústsson hefur verið ráðinn nýr aðstoðarmaður Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra. Ágúst hefur störf 13. júní næstkomandi. Innlent 10. júní 2025 16:13
Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Maðurinn sem drukknaði við Örfirisey í lok maí, eftir að hafa örmagnast á sjósundi, hét Michal Gabriš. Hann var frá Slóvakíu og varð aðeins 27 ára. Hann hafði nýlokið hringferð um Ísland á hlaupahjóli. Innlent 10. júní 2025 15:57
VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir víða um land rætt um mögulegt samstarf í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem fara fram næsta vor. Hún vill ekki segja til um hvaða flokka sé að ræða en nefnir í þessu samhengi Kópavog, Árborg og Ísafjörð. Innlent 10. júní 2025 13:48
Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Umtalsvert magn bensíns fannst í sýnum sem tekin voru á vettvangi mannskæðs eldsvoða að Hjarðarhaga í Reykjavík. Tveir létust í brunanum og grunur er uppi um að kveikt hafi verið í. Innlent 10. júní 2025 13:40
Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Karlmaður sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás að Samtúni í Reykjavík í lok síðasta mánaðar er látinn. Sá sem er grunaður um árásina gengur laus og að svo stöddu stendur ekki til að hneppa hann í gæsluvarðhald. Innlent 10. júní 2025 13:09
Leitin ekki enn borið árangur Leit björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu að göngumanni í Esjunni hefur enn ekki borið árangur. Leitað var í alla nótt og verður leit fram haldið klukkan hálf níu. Innlent 10. júní 2025 08:05
Reyndi að stinga lögreglu af á stolnum bíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið mann sem reyndi af stinga lögreglu af á stolnum bíl í hverfi 105 í Reykjavík og ók hann meðal annars yfir grasbala til að reyna að koma sér undan. Innlent 10. júní 2025 06:03
Keyptu Brauðhúsið til að fara ekki á hausinn Eigandi bakarísins Hygge hefur beðið í yfir tvö hundruð daga eftir að fá leyfi til að opna það á nýjum stað í húsnæði við Barónsstíg 6. Hann kvartar undan óskilvirku kerfi í kringum starfsleyfisveitingar og segist hafa orðið fyrir stórtjóni í hinni löngu bið eftir starfsleyfi. Eigendur neyddust til að kaupa bakarí í Grímsbæ til að fyrirtækið færi ekki á hausinn. Viðskipti innlent 9. júní 2025 23:06
Leita týnds göngumanns Björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins hafa verið kallaðar út til að leita týnds göngumanns við Esju. Innlent 9. júní 2025 22:34
Nemar á Landspítalanum klæddust „Öldrunarbúningi“ Um 400 lækna- og hjúkrunarnemar munu vinna á Landspítalanum í sumar en áður en vinnan hófst var haldin svokallaður „tækjadagur“ á spítalanum þar sem ýmis tæki og tól voru til sýnis fyrir sumarstarfsmenn. Það sem vakti þó hvað mesta athygli var „Öldrunarbúningur“, sem nemarnir fengu að prófa. Innlent 9. júní 2025 20:03
Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Tveir sjúkrabílar eru á vettvangi á gatnamótum Stekkjarbakka og Breiðholtsbrautar eftir að tveir bílar skullu saman. Innlent 9. júní 2025 16:24
Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Konukot hefur síðustu tuttugu árin verið rekið hér í Eskihlíðinni en eftir margra mánaða leit að nýju húsnæði stendur til að flytja í nýtt húsnæði í Ármúla í ágúst eða september. Deildarstjóri málaflokks heimilislausra segir flutninginn mikið framfaraskref. Þau skilji áhyggjur nýrra nágranna en vilji vera í góðu samstarfi. Innlent 8. júní 2025 23:20
Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur miklar áhyggjur af hugmyndum um uppbyggingu 300 íbúða á svokölluðum framtíðarreit við 27. holu á golfvellinum við Korpúlfsstaði í Grafarvogi. Hann gagnrýnir skort á samráði við Golfklúbb Reykjavíkur en samkvæmt upplýsingagátt borgarinnar er ekkert fast í hendi. Innlent 8. júní 2025 21:28
Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einstakling í hverfi 104 sem grunaður er um vændiskaup. Er maðurinn var handtekinn kom í ljós að hann var einnig eftirlýstur og hefur nú verið handtekinn. Innlent 8. júní 2025 17:44
Þétting á 27. brautinni Uppfærð húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar til næstu níu ára var samþykkt á borgarstjórnarfundi í vikunni sem leið. Þar kemur fram að markmið borgarinnar sé að byggja allt að 16.000 íbúðir á næstu tíu árum, sem er metnaðarfullt markmið, sérstaklega í ljósi þess að síðustu þrjú ár hefur fjöldi byggðra íbúða á ári ekki farið yfir eitt þúsund. Meðaltal síðustu tíu ára er 884 íbúðir á ári. Skoðun 8. júní 2025 15:30
Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Laugarnesvinir óttast að óafturkræfar skemmdir hafi verið unnar á fornminjum á Laugarnesi í framkvæmdum Veitna. Til stendur að leggja þar lagnastokk en að sögn Veitna er grafið á grunnu dýpi og minjar því ekki í hættu. Innlent 7. júní 2025 19:21
Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðarslys þar sem ekið var á gangandi vegfarenda. Ökumaðurinn stöðvaði ekki á slysstað heldur keyrði á brott. Innlent 7. júní 2025 17:20