Besta byrjun í sögu Utah Jazz Utah Jazz vann í nótt sjötta leik sinn í röð í NBA deildinni og hefur unnið 10 af fyrstu 11 leikjum sínum í upphafi leiktíðar, sem er félagsmet. Liðið skellti Toronto 101-96 á heimavelli í nótt og er í efsta sæti deildarinnar, en lenti þó 16 stigum undir á tímapunkti í síðari hálfleik rétt eins og í leiknum þar á undan. Körfubolti 21. nóvember 2006 13:57
Duncan afgreiddi Sacramento Tim Duncan lék sinn besta leik á tímabilinu þegar San Antonio vann þægilegan sigur á Sacramento í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Duncan skoraði 35 stig og hirti 14 fráköst í 108-99 sigri San Antonio. Körfubolti 20. nóvember 2006 13:10
Aðgerðin á Shaq gekk vel Tröllið Shaquille O´Neal gekkst undir aðgerð á hné í gær, sem gekk afar vel, að sögn lækna hans. Búist er við því að Shaq hefji endurhæfingu á hnénu strax í dag. Körfubolti 20. nóvember 2006 12:00
Arenas skoraði 45 stig í sigri á Cleveland Gilbert Arenas var sjóðandi heitur og skoraði 45 stig þegar lið hans Washington bar sigurorð af Cleveland í NBA-deildinni í nótt. Sigurganga Utah Jazz heldur áfram og í nótt lá Pheonix í valnum. Körfubolti 19. nóvember 2006 15:08
Utah heldur sínu striki Utah Jazz hélt áfram á sigurbraut sinni í NBA-deildinni og í nótt sigraði liðið Seattle á útivelli, 118-109. Utah er með besta vinningshlutfallið í deildinni; hefur unnið átta af níu leikjum sínum. Körfubolti 18. nóvember 2006 11:24
Shaquille O´Neal þarf í aðgerð NBA meistarar Miami Heat verða án miðherja síns Shaquille O´Neal næstu 4-6 vikurnar eftir að læknar liðsins tilkynntu í kvöld að hann þyrfti í uppskurð vegna hnémeiðsla. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir meistarana, sem hafa ekki byrjað leiktíðina með neinum glæsibrag. Körfubolti 18. nóvember 2006 01:40
Cleveland - Minnesota í beinni í nótt Leikur Cleveland Cavaliers og Minnesota Timberwolves verður sýndur beint á NBA TV á Fjölvarpinu í kvöld og hefst klukkan hálf eitt eftir miðnætti. Cleveland er í efsta sæti Austurdeildarinnar og hefur farið ágætlega af stað, en Minnesota er í miklu basli í Vesturdeildinni og á von á erfiðum leik gegn LeBron James og félögum. Körfubolti 17. nóvember 2006 21:37
Webber ósáttur við hlutskipti sitt Framherjinn Chris Webber hjá Philadelphia 76ers hefur farið fram á fund með eiganda liðsins og lýst yfir óánægju sinni með það hvað hann fær lítið að spila. Webber skoraði aðeins 6 stig á 23 mínútum í síðasta leik með liði sínu. Körfubolti 17. nóvember 2006 15:51
Houston lagði Chicago Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Golden State vann góðan sigur á Sacramento og Houston skellti Chicago á heimavelli þrátt fyrir að glutra enn og aftur niður góðu forskoti í lokin. Körfubolti 17. nóvember 2006 13:48
Iverson greiðir fyrir útför látins stuðningsmanns Allen Iverson, leikmaður Philadelphia 76ers í NBA deildinni, hefur boðist til að greiða fyrir útför 22 ára gamals drengs frá Philadelphia sem lést í gær, þremur árum eftir að hann varð fyrir skotárás í borginni. Körfubolti 16. nóvember 2006 23:00
Golden State - Sacramento í beinni Aðeins tveir leikir fara fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Houston tekur á móti Chicago og þá eigast við Kaliforníuliðin Golden State Warriors og Sacramento Kings, en sá leikur verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni NBA TV á Fjölvarpinu og hefst klukkan 3:30 í nótt. Körfubolti 16. nóvember 2006 22:33
Kenyon Martin úr leik Framherjinn Kenyon Martin verður ekki meira með liði sínu Denver Nuggets á tímabilinu eftir að í ljós kom að hnémeiðsli hans voru mun alvarlegri en talið var í fyrstu. Martin fór í minniháttar uppskurð í gær sem áætlað var að héldi honum frá keppni í um tvo mánuði, en þá kom í ljós að meiðslin voru mun alvarlegri en talið var. Körfubolti 16. nóvember 2006 16:27
Charlotte lagði San Antonio Mjög óvænt úrslit urðu í NBA deildinni í nótt þegar lið Charlotte Bobcats vann annan sigur sinn á leiktíðinni á útivelli gegn San Antonio Spurs eftir framlengingu 95-92. Þetta var annað tap San Antonio á leiktíðinni og hafa bæði töpin komið á heimavelli liðsins. Tony Parker skoraði 25 stig fyrir San Antonio en nýliðinn Adam Morrison skoraði 27 fyrir Charlotte. Körfubolti 16. nóvember 2006 14:39
Orlando - Denver í beinni á miðnætti Leikur Orlando Magic og Denver Nuggets verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld. Hér er um að ræða mjög forvitnilegan leik fyrir margra hluta sakir, því Denver hefur ekki landað sigri í Orlando síðan í mars 1992. Körfubolti 15. nóvember 2006 19:34
Óvænt gengi Utah Jazz heldur áfram Utah Jazz er með besta árangur allra liða í NBA deildinni eftir að liðið lagði LA Clippers 112-90 á heimavelli sínum í nótt. Utah hefur unnið 7 leiki og tapað 1, en lið Clippers hafði unnið 5 leiki í röð áður en það lá í Salt Lake City í nótt. Körfubolti 15. nóvember 2006 14:15
Golden State - Toronto í beinni Leikur Golden State Warriors og Toronto Raptors verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í nótt klukkan 3:30. Golden State hefur byrjað ágætlega undir stjórn Don Nelson, en hjá Toronto er fjölmenn sveit Evrópubúa enn að slípa sig inn í NBA deildina. Körfubolti 14. nóvember 2006 21:15
Enn tapa New York og Boston Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og unnust þeir allir á útivöllum. Cleveland lagði New York í Madison Square Garden, Seattle vann óvæntan sigur á New Jersey og Orlando skellti Boston. Körfubolti 14. nóvember 2006 14:39
New York - Cleveland í beinni í nótt Leikur New York Knicks og Cleveland Cavaliers verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld klukkan hálf eitt eftir miðnætti. Mikil ólga er í herbúðum New York líkt og í fyrra og pressan mikil á Isiah Thomas þjálfara, en Cleveland hefur verið í vandræðum með lakari lið deildarinnar það sem af er leiktíðinni. Hægt er að nálgast dagskránna á NBA TV á heimasíðu Sýnar. Körfubolti 13. nóvember 2006 17:15
Fimmti sigur LA Clippers í röð LA Clippers vann í nótt fimmta leik sinn í röð eftir tap í fyrsta leiknum þegar liðið skellti New Orleans 92-76 á heimavelli sínum. Þetta var þriðja tap New Orleans í röð, en liðið vann fjóra fyrstu leiki sína í upphafi leiktíðar. Körfubolti 13. nóvember 2006 05:21
LA Lakers - Memphis í beinni Leikur LA Lakers og Memphis Grizzlies verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland í kvöld klukkan 2:30. Kobe Bryant er nú kominn á fullt með liði Lakers á ný eftir meiðsli, en hefur þó haft mjög hægt um sig í stigaskorun í síðustu leikjum. Körfubolti 12. nóvember 2006 21:47
57 stig Michael Redd dugðu skammt Skotbakvörðurinn Michael Redd skráði nafn sitt í sögubækurnar hjá liði sínu Milwaukee Bucks í nótt þegar hann sló félagsmet Kareem Abdul-Jabbar með því að skora 57 stig gegn Utah Jazz. Það dugði þó ekki til og gestirnir frá Utah höfðu 113-111 sigur og urðu fyrsta liðið til að vinna 6 leiki í vetur. Körfubolti 12. nóvember 2006 14:33
Chicago - Indiana í beinni Það má búast við hörkuleik í nótt þegar Chicago Bulls og Indiana Pacers eigast við í NBA deildinni í leik sem sýndur verður beint á NBA TV sjónvarpssstöðinni klukkan 1:30. Chicago hefur ekki náð að fylgja eftir stórsigri sínum á Miami í fyrsta leik tímabilsins og þarf að eiga góðan leik til að leggja Indiana sem hefur unnið þrjá af fjórum síðustu leikjum sínum. Körfubolti 11. nóvember 2006 21:55
Portland og Atlanta koma á óvart Tíu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og ekki er hægt að segja annað en að deildarkeppnin fari forvitnilega af stað, því á meðan nokkur af bestu liðum deildarinnar hafa átt erfitt uppdráttar í byrjun - eru minni spámenn á borð við Portland og Atlanta að koma á óvart. Körfubolti 11. nóvember 2006 15:14
New Jersey - Miami í beinni á Sýn í kvöld Sjónvarpsstöðin Sýn heldur í kvöld áfram að sýna beint frá NBA körfuboltanum en klukkan eitt eftir miðnætti verður á dagskrá leikur New Jersey Nets og meistara Miami Heat. Körfubolti 10. nóvember 2006 18:45
Fær rúman milljarð New York Knicks hefur samþykkt að greiða Larry Brown 1258 milljónir þar sem félagið rak hann þegar Brown áttui fjögur ár eftir af samningi sínum við félagið. Körfubolti 10. nóvember 2006 12:30
Loksins sigur hjá Dallas Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt en þar bar hæst viðureign Phoenix Suns og Dallas Mavericks. Báðum liðum hefur gengið afleitlega í upphafi leiktíðar en svo fór að lokum að Dallas nældi í fyrsta sigur sinn eftir fjögur töp í röð. Körfubolti 10. nóvember 2006 06:50
Stórleikur í beinni í nótt Það verður sannkallaður risaleikur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland í kvöld þegar tvö af stórliðum Vesturdeildarinnar etja kappi. Phoenix tekur þar á móti Dallas Mavericks, en þessi frábæru lið hafa hikstað verulega í byrjun tímabils og því verður allt undir í kvöld. Körfubolti 9. nóvember 2006 21:17
Kenyon Martin þarf í uppskurð Meiðslavandræði Denver Nuggets í NBA deildinni virðast engan endi ætla að taka og í gær kom í ljós að framherjinn Kenyon Martin þarf enn og aftur í uppskurð á hné og óvíst er hvenær hann getur snúið aftur til keppni. Martin fór í uppskurð á vinstra hné fyrir rúmu ári, en að þessu sinni er það hægra hnéð sem gaf sig. Körfubolti 9. nóvember 2006 16:15
Stórleikur Oberto tryggði San Antonio sigur Argentínumaðurinn Fabricio Oberto átti stórleik í nótt þegar San Antonio lagði Phoenix 111-106 eftir framlengdan leik í San Antonio. Oberto skoraði 22 stig, hirti 10 fráköst og hitti úr öllum 11 skotum sínum í leiknum. Dallas er enn án sigurs eftir tap gegn LA Clippers. Körfubolti 9. nóvember 2006 14:53
Sacramento - Detroit í beinni Leikur Sacramento Kings og Detroit Pistons verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf fjögur í nótt. Þarna eru á ferðinni tvö af sterkari liðum deildarinnar og því kjörið fyrir nátthrafna að stilla á NBA TV í nótt. Körfubolti 9. nóvember 2006 00:01