Megum ekki gera fleiri mistök Norski varnarmaðurinn John Arne Riise segir Liverpool ekki mega við því að gera fleiri mistök ef það ætli sér að komast upp úr riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Liðið á fyrir höndum erfiðan leik gegn Besiktas í Istanbul í kvöld. Fótbolti 24. október 2007 13:29
Kannski er Eiður ekki eins slæmur og við héldum Pistlahöfundurinn Joan Maria Batille er einn þeirra sem fara fögrum orðum um Eið Smára Guðjohnsen eftir leikinn gegn Rangers í gær. Hann segir menn loksins vera búna að fatta að Eiður Smári sé í raun bestur á miðjunni. Fótbolti 24. október 2007 10:47
Skínandi endurkoma hjá Eiði Smára Spænska blaðið Sport fer fögrum orðum um Eið Smára Guðjohnsen eftir leikinn gegn Rangers í Meistaradeildinni í gær. "Eiður skein bjart í endurkomunni," sagði blaðið. Fótbolti 24. október 2007 10:34
Rijkaard hrósar Eiði Smára Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, var mjög ánægður með frammistöðu Eiðs Smára Guðjohnsen í leiknum gegn Rangers í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Fótbolti 24. október 2007 10:20
Rijkaard lítur á björtu hliðarnar Eiður Smári Guðjohnsen átti góðan leik fyrir Barcelona í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Glasgow Rangers á útivelli. Hann var mikið í boltanum og barðist vel fyrir liðið. Fótbolti 23. október 2007 23:18
Wenger í sjöunda himni „Það gjörsamlega féll allt með okkur í þessum leik. Við skoruðum okkar fyrsta mark úr okkar fyrsta færi. Þá var ekki aftur snúið," sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, eftir magnaðan 7-0 sigur liðsins á Slavia Prag í kvöld. Fótbolti 23. október 2007 21:12
Frábær sóknarleikur „Sóknarleikurinn sem við sýndum í kvöld var hreint frábær. Í raun hefðum við átt að skora miklu fleiri mörk," sagði Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir 4-2 útisigurinn gegn Dynamo Kiev. Fótbolti 23. október 2007 20:57
Arsenal fór á kostum Ensku liðin Manchester United og Arsenal náðu sér vel á strik í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Sérstaklega Arsenal sem virðist óstöðvandi og fór á kostum gegn Slavia Prag með 7-0 sigri. Fótbolti 23. október 2007 20:30
United í góðum málum Nú er hálfleikur í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Ekkert mark hefur verið skorað í leikjunum í E-riðli þar sem Eiður Smári Guðjohnsen var loksins í byrjunarliði Barcelona. Fótbolti 23. október 2007 19:30
Inter náði í þrjú stig til Moskvu Inter gerði góða ferð til Moskvu og vann CSKA 2-1 á útivelli í G-riðli Meistaradeildarinnar. Varnarmaðurinn Walter Samuel skoraði sigurmarkið í leiknum þegar tíu mínútur voru til leiksloka, eftir hræðileg mistök hjá markverði heimamanna. Fótbolti 23. október 2007 18:15
Óárennileg framlína hjá Barcelona Hún er ekkert slor, framlínan sem Barcelona teflir fram í leiknum við Rangers í Meistaradeildinni í kvöld. Fótbolti 23. október 2007 17:49
Eiður hentar vel á miðjuna Spænskir sparkmiðlar gera mikið úr því að Eiður Smári Guðjohnsen verði nú í byrjunarliði Barcelona í fyrsta skipti í rúma fjóra mánuði þegar liðið sækir Rangers heim í Meistaradeildinni. Fótbolti 23. október 2007 17:09
Figo spilar sinn 100. leik Nú klukkan 16:30 hefst bein útsending Sýnar frá leik CSKA Moskvu og Inter Milan í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Enginn ítalskur leikmaður er í byrjunarliði Inter í dag og aðeins tveir á varamannabekknum. Fótbolti 23. október 2007 16:22
Scholes ekki með í Kænugarði Miðjumaðurinn Paul Scholes verður ekki með Manchester United í kvöld þegar liðið sækir Dynamo Kiev heim í Meistaradeildinni eftir að hann meiddist á hné á æfingu í gærkvöld. Hann tók fyrstu vél heim til Manchester þar sem hann mun fara í myndatöku. Þetta eru fjórðu meiðsli kappans til þessa á leiktíðinni. Fótbolti 23. október 2007 13:30
Eiður missti næstum af fluginu Eiður Smári Guðjohnsen var nærri búinn að missa af fluginu til Glasgow með félögum sínum í Barcelona ef marka má fréttir í spænskum miðlum í dag. Fótbolti 23. október 2007 12:05
Eiður verður í byrjunarliði Barcelona Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, hefur staðfest að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliðinu á Ibrox í kvöld þegar liðið sækir Rangers heim í Meistaradeildinni. Fótbolti 23. október 2007 11:13
Walcott gæti byrjað í kvöld Líklegt þykir að framherjinn ungi Theo Walcott verði í fyrsta sinn í byrjunarliði Arsenal í Meistaradeildinni í kvöld þegar liðið tekur á móti Slavia Prag í H-riðli. Fótbolti 23. október 2007 11:01
Tíundi leikur Dynamo án sigurs? Manchester United á fyrir höndum erfiða heimsókn til Kænugarðs í kvöld þegar liðið sækir Dynamo Kiev heim. Heimamenn hafa þó ekki náð að landa sigri í síðustu níu leikjum í röð í keppninni - þar af fjórum heimaleikjum í röð. Fótbolti 23. október 2007 10:42
Eiður gæti byrjað í Glasgow Barcelona sækir Glasgow Rangers heim í E-riðli Meistaradeildarinnar í kvöld. Ef marka má spænska miðla má allt eins gera ráð fyrir að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliði spænska liðsins. Fótbolti 23. október 2007 10:31
Torres fer ekki til Istanbul Liverpool verður án framherjans Fernando Torres í leiknum gegn Besiktas í Meistaradeildinni annað kvöld. Torres er enn meiddur á læri og var heldur ekki með þegar Liverpool lék við granna sína í Everton um helgina. Fótbolti 23. október 2007 10:26
Meistaradeildin í kvöld Í kvöld hefst þriðja umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og því verður mikið um dýrðir á sjónvarpsrásum Sýnar eins og venjulega. Fótbolti 23. október 2007 10:01
Vidic í byrjunarliðinu Serbneski varnarmaðurinn Nemanja Vidic verður í byrjunarliði Manchester United í leiknum gegn Dynamo Kiev á morgun. Vidic er nýbyrjaður að æfa aftur eftir meiðsli sem hann hlaut í leik gegn Wigan fyrr í þessum mánuði. Fótbolti 22. október 2007 23:30
Óvíst með Zlatan Sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic er með flensu og óvíst hvort hann geti leikið með ítalska liðinu Inter í Meistaradeildinni á morgun. Inter leikur gegn CSKA í Moskvu og hefst leikurinn klukkan 16:30. Fótbolti 22. október 2007 23:00
Theodór Elmar með Celtic til Portúgal Theodór Elmar Bjarnason er í leikmannahópi Glasgow Celtic sem mætir Benfica í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag. Leikurinn fer fram á heimavelli Benfica í Portúgal. Fótbolti 22. október 2007 19:32
Of mikið álag á Börsungum Deco, miðjumaður Barcelona, segir að álagið á leikmenn liðsins sé einfaldlega of mikið. Meiðsli herja á leikmenn liðsins sem leikur gegn Glasgow Rangers í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. Fótbolti 22. október 2007 15:00
Bann Dida stytt Markvörðurinn Dida hjá AC Milan þarf aðeins að sitja af sér eins leiks bann í Meistaradeildinni í stað tveggja eftir að áfrýjun ítalska félagsins náði fram að ganga í dag. Fótbolti 22. október 2007 12:01
Milan bregst hart við banni Dida Forráðamenn AC Milan eru reiðir yfir ákvörðun Knattspyrnusambands Evrópu um að sekta Celtic um aðeins 12,500 pund vegna uppákomunnar í leik liðanna í Meistaradeildinni á meðan Dida markvörður hefur verið settur í tveggja leikja bann fyrir leikaraskap. Fótbolti 12. október 2007 09:35
Dida fékk tveggja leikja bann Dida, markvörður AC Milan, var í dag dæmdur í tveggja leikja bann fyrir leikaraskap í leik liðsins gegn Celtic í Meistaradeildinni. Fótbolti 11. október 2007 23:58
Uefa tekur Dida inn á teppi Knattspyrnusamband Evrópu hefur nú tekið til rannsóknar meint agabrot markvarðarins Dida hjá AC Milan eftir að honum var skipt af velli í leik liðsins gegn Glasgow Celtic í síðustu viku. Fótbolti 8. október 2007 13:53
Kvenmannslaust í Kænugarði Josef Sabo, þjálfari Úkraínumeistara Dynamo í Kænugarði, kennir eiginkonum og kærustum leikmanna um skelfilega byrjun liðsins í titilvörninni. Dynamo var í botnbaráttu í fyrstu umferðunum en hefur nú unnið sig aftur upp í þriðja sætið. Fótbolti 8. október 2007 13:14