Lögregla leitar byssumannanna og annarra sem gætu tengst árásinni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja manna sem réðust inn í íbúð í Hafnarfirði og hleyptu af skotum á aðfangadagskvöld. Þá leitar lögregla að öðrum sem gætu tengst málinu. Innlent 26. desember 2023 12:14
Einn handtekinn vegna skotárásarinnar á aðfangadagskvöld Einn var handtekinn í gær vegna skotárásarinnar sem gerð var á aðfangadagskvöld þegar tveir menn réðust inn í íbúð í Hafnarfirði og hleyptu af skotum. Innlent 26. desember 2023 11:46
Leita vitna að slysi sem varð í október í fyrra Lögreglan á Suðurnesjum leitar vitna að umferðarslysi sem varð í Reykjanesbæ. Slysið varð fyrir rúmu ári síðan. Innlent 26. desember 2023 09:39
Sjö vistaðir í fangaklefa í nótt Sjö manns voru vistaðir í fangaklefa í gærkvöldi og nótt að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar. Ýmist fyrir slagsmál, innbrot, eða akstur undir áhrifum fíkniefna. Innlent 26. desember 2023 09:33
Skotárás í gærkvöldi til rannsóknar hjá lögreglu Lögregla rannsakar nú mál frá því í gærkvöldi þegar tveir menn komu inn í íbúð í Hafnarfirði og hleyptu af skotum. Innlent 25. desember 2023 10:49
Þrír gistu í fangaklefa í nótt Þrír gistu í fangaklefa í nótt, einn fyrir innbrot og hinir tveir vegna þess að þeir höfðu ekki í önnur hús að venda, að sögn lögreglu. Innlent 25. desember 2023 07:50
Fjöldi mála hjá lögreglu í nótt Nóttin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var annasöm að því er segir í fréttaskeyti lögreglunnar. Fjöldi mála komu á borð lögreglu milli klukkan fimm í gær og fimm í morgun, eða 44, fyrir utan almennt eftirlit. Innlent 24. desember 2023 07:33
Handtekinn grunaður um hnífstungu í sumarhúsi Viðbragðsaðilar voru kallaðir til að sumarhúsi á Hólmsheiði fyrr í kvöld vegna hnífsstungu. Einn var fluttur særður á sjúkrahús en einn handtekinn. Innlent 23. desember 2023 22:28
Tæmdu hillur King Kong á níutíu sekúndum Brotist var inn í verslunina King Kong á Höfðabakka í nótt, þar sem þjófar tæmdu hillur vape verslunarinnar ofan í töskur og hlupu síðan á brott. Eigandi verslunarinnar segir tjónið töluvert. Innlent 23. desember 2023 13:05
Kýldi lögregluþjón í andlitið Maður sem handtekinn var í nótt, grunaður um ölvunarakstur og akstur án ökuréttinda, veittist að lögregluþjóni og sló með krepptum hnefa í andlitið þegar verið var að keyra hann heim að sýnatöku lokinni. Maðurinn var því handtekinn á ný og vistaður í fangaklefa. Talsvert var um hótanir og ofbeldi gagnvart lögreglumönnum við störf í gærkvöldi og í nótt. Innlent 23. desember 2023 07:52
Telja kopar í tonnatali vera þýfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við tilkynningu um „nokkur tonn af kopar“ í Árbæ í dag. Talið er að líklega sé um þýfi að ræða. Innlent 22. desember 2023 21:07
Yngsti drengurinn hafi ekki hitt bræður sína í tvær vikur Lögmaður barnsföður Eddu Bjarkar Arnardóttur segir drengina þrjá sem fluttir voru til Noregs í gær ekki hafa verið alla saman síðustu tvær vikur. Kæra hafi verið lögð fram á hendur þeim sem hafi aðstoðað við að fela drengina þegar leitað var að þeim. Innlent 22. desember 2023 19:31
Rannsóknin á Guðmundi og Svanhildi felld niður Embætti héraðssaksóknara hefur fellt niður rannsókn á kaupum hjónanna fyrrverandi Guðmundar Arnar Þórðarsonar og Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur á hlutum í Skeljungi og færeyska félaginu P/F Magni. Viðskipti innlent 22. desember 2023 16:11
Lögregla hafi farið langt yfir eðlileg mörk með handtöku lögmanns Lögmenn á Landi lögmönnum, lögmannsstofu sem þrír lögreglumenn mættu á í gær og handtóku einn lögmann, segja engan vafa leika í huga þeirra á því að lögreglan hafi með aðgerðum sínum farið langt yfir eðlileg og málefnaleg mörk og hugsanlega gerst brotleg við lög. Innlent 22. desember 2023 14:40
Almannavarnastig lækkað niður á hættustig Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af neyðarstigi niður á hættustig vegna eldgos á Reykjanesskaga. Innlent 22. desember 2023 14:25
Héraðssaksóknari vill ná tali af manni Héraðssaksóknari óskar eftir að ná tali af aðila á meðfylgjandi myndum vegna máls sem er til rannsóknar. Innlent 22. desember 2023 13:35
Fimm útköll vegna líkamsárása og slagsmála Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og bárust meðal annars fimm tilkynningar vegna líkamsárása og slagsmála. Innlent 22. desember 2023 06:39
Vilja ná tali af manni sem ók á barn á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi vill komast í samband við ökumann bifreiðar sem ók utan í barn á Selfossi í morgun. Innlent 20. desember 2023 15:02
Öll umferð bönnuð í Grindavík Eftir fund aðgerðastjórnar og vettvangsstjórnar nú í morgun hefur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið að banna alla umferð og viðveru í Grindavíkurbæ á meðan nýtt hættumatskort er í gildi. Innlent 20. desember 2023 10:59
Tveggja daga líkamsmeiðingar til á upptöku Landsréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms þess efnis að Dagbjörtu Rúnarsdóttur, konu á fimmtugsaldri sem ákærð hefur verið fyrir manndráp í Bátavogi, verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Gæsluvarðhald yfir henni rennur nú út þann 11. janúar á næsta ári. Innlent 20. desember 2023 10:16
Breytt landslag og viðbragðsaðilar komnir að þolmörkum Aðgerðastjórn og vettvangsstjórn munu funda klukkan 9, að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Hann segir ekki fyrirsjáanlegt að opnað verði fyrir aðgengi að gosstöðvunum. Innlent 20. desember 2023 07:08
Tveir ökumenn stöðvaðir með börn í óöruggum aðstæðum Tveir ökumenn voru stöðvaðir í umferðinni í gærkvöldi þar sem í ljós kom að börn voru í bifreiðunum við óöruggar aðstæður. Þá var tilkynnt um líkamsárás þar sem starfsmaður verslunar var sakaður um að hafa slegið viðskiptavin. Innlent 20. desember 2023 06:45
Sinna vaktinni allan sólarhringinn Vettvangsstjórn á hættusvæðinu sinnir eftirliti með gossvæðinu allan sólarhringinn auk aðgerðarstjórnar. Varðstjóri segir stöðuna sífellt endurmetna. Innlent 19. desember 2023 20:59
Lögreglan á Akureyri leitar manns með heilabilun Lögreglan á Akureyri hefur lýst eftir manni um sjötugt, sem þjáist af heilabilun. Maðurinn er talinn hafa farið fótgangandi úr húsi á Suðurbrekkunni á Akureyri síðdegis en hann á heima í Giljahverfi. Innlent 19. desember 2023 18:13
Ákveðinn léttir að það sé farið að gjósa Hjálmar Hallgrímsson hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir ágætt að byrjað sé að gjósa, það sé ákveðinn léttir. Svæðið sé vel vaktað og „allir á tánum.“ Innlent 19. desember 2023 02:03
Neyðarstigi almannavarna lýst yfir Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að fara neyðarstig almannavarna vegna eldgos á Reykjanesi sem hófst á ellefta tímanum í kvöld. Innlent 18. desember 2023 23:11
Yfirbuguð af sérsveit eftir árangurslausar samningaviðræður Lögregla og sérsveit voru kallaðar út að húsnæði ríkislögreglustjóra í Bæjarhrauni í Hafnarfirði í dag vegna konu sem hótaði að skaða sjálfa sig með hníf. Eftir árangurslausar samningaviðræður var konan yfirbuguð og flutt á slysadeild til aðhlynningar. Innlent 18. desember 2023 18:51
Sérsveitin aðstoðar við lögregluaðgerð í Hafnarfirði Lögregluaðgerð stendur nú yfir í Bæjarhrauni í Hafnarfirði. Þetta staðfestir Skúli Jónsson, stöðvarstjóri lögreglustöðvar tvö, sem sér um mál í Hafnarfirði og Garðabæ. Sérsveitin aðstoðar við aðgerðina. Innlent 18. desember 2023 16:20
Stúlkan er fundin Stúlkan sem lýst var eftir í gær er fundin heil á húfi. Innlent 18. desember 2023 14:21
Telur líklegt að Grindvíkingar geti haldið jól í bænum Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að miðað við stöðuna undanfarið sé ekki ólíklegt að íbúar Grindavíkur geti haldið jól í bænum. Það verði þó að bíða eftir næsta hættumati Veðurstofunnar á miðvikudag. Innlent 18. desember 2023 11:56