Tiltölulega róleg helgi hjá lögreglunni og betri en margir þorðu að vona Landsmenn skemmtu sér nokkuð vel um verslunarmannahelgina en að sögn lögreglu var helgin betri en menn þorðu að vona eftir faraldurinn. Á Akureyri og í Vestmannaeyjum var lítið um alvarleg brot en þó á eftir að gera helgina frekar upp. Innlent 1. ágúst 2022 18:55
Trufluðu tökur, skvettu á tökumann og kýldu hann í andlitið Grímur Jón Sigurðsson, tökumaður Ríkisútvarpsins, lenti í heldur leiðinlegu atviki við tökur fyrir fréttatíma RÚV á aðfaranótt sunnudags á Þjóðhátíð. Ungir menn sem höfðu verið að trufla tökur hans og Hólmfríðar Dagnýjar Friðjónsdóttur fréttamanns, skvettu drykk yfir Grím og myndavél hans og slógu svo til hans skömmu síðar. Málið er nú í höndum lögreglu. Innlent 1. ágúst 2022 15:40
Lögreglan beitti piparúða Lögreglan á Norðurlandi eystra beitti piparúða til að stöðva slagsmál í miðbæ Akureyrar um fimmleytið í nótt. Enginn var handtekinn en lögregla hlúði að þeim sem urðu fyrir piparúðanum. Innlent 1. ágúst 2022 12:20
Skammbyssan reyndist leikfangabyssa Maður var handtekinn klukkan hálf sex í morgun eftir að lögreglu barst tilkynning um að hann væri vopnaður skammbyssu við Smáralind í Kópavogi. Í ljós kom að um leikfangabyssu væri að ræða. Maðurinn reyndist aðeins sautján ára gamall og var foreldrum og barnaverndarnefnd gert viðvart. Innlent 1. ágúst 2022 07:43
Sérsveitin á Akureyri kölluð út vegna vopnaðs manns Nokkur erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í gærkvöldi og nótt, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá embættinu. Innlent 31. júlí 2022 09:21
Vopnað rán í Hlíðunum Karlmaður var handtekinn fyrir vopnað rán í Hlíðunum í nótt en sá ógnaði konu með hnífi og rændi af henni síma. Maðurinn var vistaður í fangageymslu og málið er í rannsókn. Innlent 31. júlí 2022 07:43
Ekkert ofbeldi á borði lögreglunnar í Vestmannaeyjum eftir nóttina Ekkert ofbeldisbrot rataði inn á borð lögreglunnar í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og nótt. Lögregla segir þjóðhátíðarhöld hafa farið vel fram í nótt og fólk almennt skemmt sér fallega. Á Akureyri var nóttin rólegri en oft áður en mikill erill var hjá lögreglunni í Reykjavík. Innlent 30. júlí 2022 12:08
„Afar reiður“ maður á bílaleigu Brimborgar Lögreglan hafði afskipti af „afar reiðum“ manni sem lét ófriðlega á bílaleigu Brimborgar á Akureyri í gær. Drykklanga stund tók að róa manninn niður en að lokum var hann tekinn fastur og fluttur á brott. Innlent 30. júlí 2022 12:08
Mikið um óspektir og sjö gistu fangageymslu Mikið var um ölvun og óspektir á höfuðborgarsvæðinu í nótt og sjö gistu fangageymslur, þar á meðal kona sem hafði ítrekað reynt að sparka og bíta í lögreglumenn. Innlent 30. júlí 2022 07:53
Handtekinn á húkkaraballi fyrir að ráðast á lögguna Einn var handtekinn á hinu árlega húkkaraballi í Vestmannaeyjum í gær. Lögregla hafði ætlað að hafa af honum afskipti en hann veittist að lögreglumönnunum og var handtekinn og vistaður í fangageymslu í kjölfarið. Innlent 29. júlí 2022 13:03
Býst við að umferðin verði þyngst í átt að góða veðrinu Hatíðarhöld fara fram víða um land um helgina með tilheyrandi umferðarþunga. Lögregla á von á að umferðin fari að þyngjast eftir hádegi og verði hvað þyngst um Suðurlandsveg á leið austur. Innlent 29. júlí 2022 11:43
Lögreglan varar fólk við að auglýsa ferðalög á samfélagsmiðlum fyrir helgi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með hefðbundið eftirlit um Verslunarmannahelgina. Hún biður íbúa á svæðinu að hafa augun opin með grunsamlegum mannaferðum en innbrotsþjófar herji gjarnan á yfirgefin heimili á þessari helgi. Innlent 28. júlí 2022 13:36
Lögregla fer fram á áframhaldandi gæsluvarðhald vegna manndráps í Barðavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald í þágu almannahagsmuna yfir manni á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið Gylfa Bergmann Heimissyni að bana í Barðavogi 4. júní síðastliðinn. Gæsluvarðhald yfir honum rennur út á morgun. Innlent 28. júlí 2022 11:34
Sérsveitin handtók fólk í strætisvagni Sérsveit ríkislögreglustjóra stöðvaði för strætisvagns við Háskóla Íslands í dag. Fólk sem grunað er um líkamsárás var handtekið í vagninum. Innlent 27. júlí 2022 16:48
Farþega Condor-vélarinnar leið eins og íslensk stjórnvöld hafi tekið hann í gíslingu Farþegi um borð í flugvél sem lent var óvænt á Keflavíkurflugvelli á mánudag vegna sprengjuhótunar segist í fyrstu ekki hafa fengið neinar skýringar frá lögreglunni og liðið eins og hann hafi verið tekinn til fanga. Innlent 27. júlí 2022 16:21
Netþrjótarnir þaulskipulagðir í Landsbanka-svikum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með röð netglæpa til rannsóknar en óprúttnir aðilar hafa á undanförnum vikum sett upp skuggavefsíður, sem líkjast meðal annars heimasíðu Landsbankans, sem eru til þess gerðar að ræna peningum af fólki. Innlent 27. júlí 2022 13:40
Búin að tilkynna skemmdarverkin á hinsegin fánanum til lögreglu Grafarvogskirkja hefur tilkynnt skemmdarverk sem gerð voru á hinsegin fána fyrir framan kirkjuna til lögreglu. Krotað hefur verið í tvígang yfir regnbogann á seinustu dögum sem er ætlað að vera til marks um samstöðu með réttindabaráttu hinsegin fólks. Innlent 27. júlí 2022 12:18
Ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna stunguárásar við Prikið Mál nítján ára karlmanns verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að hafa stungið mann á þrítugsaldri fyrir framan skemmtistaðinn Prikið í apríl síðastliðnum. Innlent 27. júlí 2022 10:48
Aðgerðir viðbragðsaðila vegna sprengjuhótunar hafi gengið afbragðsvel Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir aðgerðir viðbragðsaðila á Keflavíkurflugvelli, vegna sprengjuhótunar um borð í flugvél á leið frá Frankfurt til Seattle, hafa gengið afbragðsvel. Enn sé ekki vitað hver hafi borið ábyrgð á hótuninni. Innlent 26. júlí 2022 20:46
Býst við að mál læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verði fellt niður Lögmaður læknis, sem grunaður er ásamt öðrum lækni um stórfelld brot í starfi hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, telur að ný gögn í máli hans muni leiða til niðurfellingar þess. Innlent 26. júlí 2022 14:01
Samtökin '78 kæra vararíkissaksóknara til lögreglu Samtökin 78, samtök hinsegin fólks á Íslandi munu kæra Helga Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknara til lögreglu í dag vegna ummæla hans um hinsegin fólk og hælisleitendur. Innlent 26. júlí 2022 06:35
Ekkert pláss fyrir ofbeldi þegar stærsta ferðahelgi ársins fer fram Það styttist í eina stærstu ferðahelgi ársins eftir rúm tvö ár af kórónuveirufaraldri. Eyjamenn eru byrjaðir að undirbúa sig en verða þó án forvarnarhópsins Bleika fílsins í ár. Þess í stað verður þjóðhátíð hluti af átaki lögreglu og Neyðarlínunnar, og er sömu sögu að segja víðar á landinu. Innlent 25. júlí 2022 22:08
Lést í Brúará við að bjarga syni sínum Karlmaður sem lést eftir að hafa fallið í Brúará í Biskupstungum um miðjan dag í gær var kanadískur ríkisborgari búsettur í Bandaríkjunum. Straumurinn í ánni bar manninn burt eftir að hann hafði komið syni sínum, sem fallið hafði í ána, til bjargar. Innlent 25. júlí 2022 12:51
Sérsveitin kölluð út vegna ógnandi manns með hníf Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til á Rauðarárstíg nærri Hlemmi í gærkvöldi vegna manns sem ógnaði fólki við torgið með hnífi. Innlent 24. júlí 2022 13:01
Barnið sem féll út um glugga er eins og hálfs árs Barnið sem féll út um glugga á fjölbýlishúsi í gær er eins og hálfs árs. Barnið féll út um opinn glugga á fjórðu hæð hússins fimmtán metra niður. Innlent 24. júlí 2022 10:57
Mikið um slagsmál í nótt Lögreglu barst fjöldinn allur af tilkynningum um slagsmál og líkamsárásir í nótt ef marka má dagbók lögreglu. Alls er minnst á sex líkamsárásir í tilkynningu frá lögreglu í morgun, jafnt í miðbænum sem og í úthverfum. Innlent 24. júlí 2022 07:23
Barn féll fimmtán metra út um glugga á fjölbýlishúsi Ungt barn féll út um glugga á fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu í dag. Samkvæmt dagbók lögreglu var fallhæðin um fimmtán metrar en ekki kemur fram hver nákvæmur aldur barnsins er. Barnið var flutt á bráðamóttöku til aðhlynningar en er ekki með alvarlegt beinbrot. Innvortis meiðsli eru til skoðunar. Innlent 23. júlí 2022 21:51
Ökumaðurinn lést í slysinu við Hvalfjarðargöng Karlmaður lést í bílslysi sem varð fyrir utan Hvalfjarðargöng um hálf átta í gærkvöldi. Að sögn vitna keyrði maðurinn á ofsahraða út af vegi og kastaðist úr bílnum. Innlent 23. júlí 2022 11:16
Alvarlegt umferðarslys við Hvalfjarðargöng Ökumaður sem sagður er hafa verið á flótta undan lögreglu lenti í alvarlegum árekstri við Hvalfjarðargöng um klukkan hálf átta í gærkvöldi. Sjónarvottur segir ökumanninn hafa kastast tíu metra frá slysstað í kjölfar árekstursins en bíllinn á að hafa flogið upp í loftið við höggið. Innlent 23. júlí 2022 09:32
Sparkaði í dyraverði og lögreglumenn Óskað eftir aðstoð lögreglu að á skemmtistað í miðbænum vegna tveggja einstaklinga sem voru til vandræða. Annar einstaklingurinn handtekinn en hann er gurnaður um að hafa sparkað bæði í dyraverði og lögreglumenn en einstaklingurinn var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Innlent 23. júlí 2022 08:20