Meðlimur Il Divo látinn eftir baráttu við Covid Carlos Marin, meðlimur sönghópsins Il Divo, er látinn 53 ára að aldri eftir baráttu við Covid-19. Hann veiktist mjög af veirunni fyrir tveimur vikum og þurfti að leggjast inn á gjörgæslu í öndunarvél þar sem hann lést síðan. Lífið 19. desember 2021 22:19
Bubbi um Baggalút: „Menn sjá hvað er í gangi en gera ekkert“ Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens gagnrýnir viðburðarhaldara sem geta ekki virt sóttvarnatakmarkanir í færslu sinni á Facebook og óttast að þetta kunni að verða til þess að þær verði hertar enn frekar. Innlent 19. desember 2021 21:09
„Við erum bara með nýja veiru“ Sóttvarnalæknir segir stöðu kórónuveirufaraldursins gjörbreytta vegna ómíkron-afbrigðisins, sem hann segir í raun nýja veiru. Hann skilar tillögum um nýjar aðgerðir sem kynntar verða í ríkisstjórn á þriðjudag. Innlent 19. desember 2021 19:17
Fleiri þingmenn Viðreisnar smitast María Rut Kristinsdóttir, þriðji varaþingmaður Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, er með kórónuveiruna. Allir þingmenn Viðreisnar hafa greinst með veiruna á síðustu dögum og nú virðist veiran ætla að ná taki á varaþingmönnum flokksins. Innlent 19. desember 2021 14:15
Veltir því upp hvort kórónuveiran sé trójuhestur Hart var tekist á um bólusetningar á Sprengisandi í morgun. Tómas Guðbjartsson læknir og Arnar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður ræddu mörkin milli persónufrelsis og takmarkana vegna almannahættu. Innlent 19. desember 2021 13:31
Sóttvarnarreglur brotnar á Baggalútstónleikum: „Talsverð ölvun á mannskapnum“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að sóttvarnarreglur hafi verið brotnar á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þar megi meðal annars nefna tónleika Baggalúts í Háskólabíói í gærkvöldi. Innlent 19. desember 2021 12:52
„Það er eitthvað mikið að gerast“ Prófessor í líftölfræði segir ótrúlegan vöxt í faraldrinum innanlands og að staðan sé tvísýn, einkum í ljósi þess að önnur stór bylgja drifin áfram af ómíkron-afbrigðinu gæti skollið á strax eftir áramót. Nýgengi smitaðra hefur aldrei verið hærra að sögn sóttvarnalæknis. Innlent 19. desember 2021 12:09
Þjóðverjar skikka Breta í sóttkví Stjórnvöld í Þýskalandi hafa tekið ákvörðun um að skikka ferðalanga frá Bretlandi í sóttkví við komuna til Þýskalands. Takmarkanirnar taka gildi á morgun, mánudag. Erlent 19. desember 2021 10:09
200 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Tvö hundruð manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt bráðabirgðatölum Almannavarna. Eins og síðustu daga var aðeins tæplega helmingur nýsmitaðra í sóttkví, eða 76 manns. Innlent 19. desember 2021 09:28
Viðkvæmur hópur bólusettur á þriðjudag og aðrir beðnir um að koma annan dag Þriðjudaginn 21. desember stendur til að bólusetja viðkvæman hóp í Laugardalshöll og er fólk beðið um að koma frekar aðra daga í bólusetningu ef það mögulega getur. Innlent 19. desember 2021 09:25
Slökkviliðið biður fólk að passa sig á „covid fjandanum“ Nóg hefur verið að gera hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðasta sólarhringinn. Slökkviliðið biður fólk um að fara varlega og passa sig á „covid fjandanum.“ Innlent 19. desember 2021 08:43
Enginn Emil í Kattholti Borgarleikhúsið hefur tekið ákvörðun um að fella niður sýningu á leikritinu Emil í Kattholti í dag. Innlent 19. desember 2021 08:25
Meira en tíu þúsund ómíkron-smitaðir í Bretlandi Enn eru met slegin í fjölda kórónuveirusmita í Bretlandi. Borgarstjóri Lundúna hefur nú lýst yfir alvarlegu ástandi (e. major incident). Yfir 93.000 manns greindust með kórónuveiruna í Bretlandi landi í gær og fjöldi ómíkron-smitaðra er kominn upp í tíu þúsund. Erlent 19. desember 2021 07:28
Brexitmálaráðherra segir af sér og staða Johnson sögð veik David Frost Brexitmálaráðherra hefur sagt af sér embætti. Brotthvarf hans úr ríkisstjórn er talið veikja stöðu Borisar Johnson forsætisráðherra enn meira en nokkurrar óánægju hefur gætt með hann innan Íhaldsflokksins upp á síðkastið. Erlent 18. desember 2021 23:37
Sannarlega ekki slæmt að gera tilraunir á börnum Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfja- og eiturefnafræði við Læknadeild Háskóla Íslands, biðlar til foreldra að láta sér ekki niðurstöður úr tilraunum sem hafa verið gerðar á börnum með bóluefni sem vind um eyru þjóta. „Við erum svo heppin að hópur barna hefur nú þegar tekið að sér að taka þátt í tilraun og sýnt fram á gagnsemi,“ segir hann í færslu á Facebook. Innlent 18. desember 2021 21:23
Erfiðara að sitja í einangrun en að setja sig inn í fjárlögin Varaþingmenn Viðreisnar eru klárir í slaginn en þeir þurfa að kynna sér fjárlagafrumvarpið um helgina til að geta tekið þátt í umræðum á þinginu um það í næstu viku. Allir þingmenn Viðreisnar hafa greinst með kórónuveiruna. Það er einstakt í sögunni að svo stór þingflokkur sé alfarið skipaður varamönnum vegna veikinda. Innlent 18. desember 2021 20:35
Með húmorinn að vopni við mótmæli gegn bólusetningum barna Andstæðingar bólusetninga og aðgerða stjórnvalda gegn heimsfaraldrinum virðast hafa þróað með sér örlítinn húmor og smekk fyrir orðaleikjum. Á annað hundrað manns tóku þátt í mótmælum gegn bólusetningum barna í dag og voru slagorð mótmælenda mörg í frumlegri kantinum. Innlent 18. desember 2021 17:51
Hvert Evrópuríkið á fætur öðru skellir í lás fyrir jólin Hvert Evrópuríkið á fætur öðru grípur til hertra sóttvarnaaðgerða fyrir jólin vegna þess að ómíkron afbrigði kórónuveirunnar dreifir sér með leifturhraða um álfuna. Erlent 18. desember 2021 13:40
Biden fær að skylda starfsfólk í bólusetningu Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum hafa nú kveðið á um að Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, verði heimilt að skylda starfsmenn stærri fyrirtækja í bólusetningu gegn kórónuveirunni. Ákvörðunin gæti haft áhrif á um 84 milljónir manna. Erlent 18. desember 2021 12:40
Viðreisn undirlögð af veirunni Fjórir af fimm þingmönnum Viðreisnar hafa nú greinst með kórónuveiruna. Þingflokksformaðurinn bíður eftir niðurstöðu úr PCR-prófi en er ekki vongóð um að sleppa. Innlent 18. desember 2021 12:15
Öll saman í litlu herbergi og ekki hægt að komast hjá því að smitast Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar er annar þingmaður flokksins sem greinist með kórónuveiruna. Hann er slappur en nokkuð brattur þrátt fyrir það og er kominn í einangrun austur fyrir fjall, þar sem hann verður einn yfir jólin. Innlent 18. desember 2021 10:08
186 greindust smitaðir af veirunni í gær Í gær greindust 186 smitaðir af kórónuveirunni innanlands. Alls voru 72 af þeim í sóttkví. Innlent 18. desember 2021 09:41
Mest lesnu viðhorfspistlarnir 2021: Kynferðisofbeldi, faraldurinn, fiskeldi og Gísli Marteinn Mest lesnu viðhorfspistlar ársins varpa skýru ljósi á hvað var efst á baugi á árinu. Innlent 18. desember 2021 08:01
Slagorð úr vopnabúri hernaðarandstæðinga nýtt gegn bólusetningum barna Hernaðarandstæðingar eru afar ósáttir við að andstæðingar bólusetninga skuli nota þekkt slagorð úr þeirra vopnabúri. Boðað hefur verið til mótmæla þeirra sem gjalda varhug við bólusetningum undir yfirskriftinni Friðarganga. Innlent 17. desember 2021 23:00
Þorgerður Katrín smituð af Covid: „Erfiðara að geta ekki verið með mínu allra besta fólki“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, greindist með Covid-19 í dag. Hún er komin í einangrun á Suðurlandi en segist búast við því að þrír skammtar af bóluefnum muni gera næstu daga bærilegri. Innlent 17. desember 2021 22:15
Oddný með Covid: „Enginn vill vera í einangrun yfir jólin“ Oddný Harðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, er ein þeirra þingmanna sem greinst hefur með Covid-19. Hún er komin í einangrun og segir það vægast sagt ekki gaman. Enginn vilji vera í einangrun um jólin. Innlent 17. desember 2021 21:05
Nokkrir þingmenn greinast með Covid-19 og aðrir bíða eftir niðurstöðum Minnst þrír þingmenn hafa greinst smitaðir af Covid-19 og er verið að skima þingmenn og starfsmenn þingsins. Birgir Ármannsson, forseti þingsins, segir að verið sé að afla upplýsinga um fjölda staðfestra smita og ná utan um hvaða áhrif smitin muni hafa á störf þingsins. Innlent 17. desember 2021 18:48
Segir covid-kvíða hafa haft áhrif á frammistöðu Chelsea Emma Hayes, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Chelsea, segir að áhyggjur leikmanna vegna kórónuveirufaraldursins hafi haft áhrif á frammistöðu þeirra í 4-0 tapinu fyrir Wolfsburg í Meistaradeild Evrópu í gær. Enski boltinn 17. desember 2021 16:15
Gengst við því að hafa gert of mikið úr veikindum barna Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur gengist við gagnrýni á umfjöllun hans um veikindi barna af völdum Covid-19 og leiðrétt fyrra mat sitt í samræmi við það. Innlent 17. desember 2021 15:34
Engar áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu Á fundi framkvæmdaráðs almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins í dag var tekin ákvörðun um að fella niður áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu um komandi áramót. Innlent 17. desember 2021 15:12