Bætir við einni Dash 8-400 og notar í Evrópuflugi á ný Icelandair bætir við einni 76 sæta Dash 8 Q400-flugvél í flotann fyrir sumarið. Jafnframt hyggst félagið á ný nota þessa flugvélartegund á nokkrum Evrópuleiðum fyrri hluta sumars en þó einungis tímabundið. Viðskipti innlent 26. apríl 2023 15:36
Sjóðstjórar í ólgusjó þegar þeim var reitt þungt högg við verðhrun Alvotech Íslenskir hlutabréfasjóðir hafa orðið fyrir þungu höggi eftir að gengi Alvotech, sem þar til fyrir skemmstu var verðmætasta fyrirtækið á markaði, hefur fallið um 36 prósent á aðeins sjö viðskiptadögum. Sjóðir Akta, einkum vogunarsjóðir í stýringu félagsins, höfðu meðal annars byggt upp verulega stöðu á skömmum tíma sem nam vel yfir fimm milljörðum króna daginn áður en tilkynnt var um að FDA myndi ekki veita Alvotech markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sitt stærsta lyf að svo stöddu. Greining Innherja á umfangi innlendra fjárfesta og sjóða í hluthafahópi Alvotech leiðir meðal annars í ljós að skuldsetning að baki hlutabréfastöðum í félaginu virðist hafa verið fremur hófleg. Innherji 26. apríl 2023 12:06
1,4 milljarða hagnaður hjá Össuri á fyrsta ársfjórðungi Hagnaður fyrirtækisins Össur á fyrsta ársfjórðungi nam tíu milljónum dollara, 1,4 milljarði íslenskra króna. Er það átta prósent aukning frá síðasta ári. Sala á ársfjórðungnum nam 25,7 milljörðum króna. Viðskipti innlent 25. apríl 2023 08:18
Útlit fyrir bætta afkomu bankanna á grunni stóraukinna vaxtatekna Greinendur telja að rekstur Íslandsbanka muni batna verulega á milli ára á fyrsta ársfjórðunga og sama skapi er útlit fyrir að rekstur Arion banka muni ganga enn betur en fyrir ári. Vaxtatekjur Íslandsbanka hafa aukist mikið síðustu fjórðunga og spá greinendur að sá mikli vöxtur haldi áfram. Því er útlit fyrir að hagnaður stóru viðskiptabankanna tveggja sem skráðir eru í Kauphöll muni aukast á fyrsta ársfjórðungi og að arðsemi eiginfjár verði yfir markmiðum stjórnenda þeirra. Innherji 24. apríl 2023 16:56
Bankarnir „reiða sig“ helst til of mikið á evrópska skuldabréfafjárfesta Þegar kemur að fjármögnun á erlendum mörkuðum þá hafa íslensku bankarnir að undanförnu gert sér grein fyrir því að þeir eru að treysta of mikið á evrópska fjárfesta, að sögn bankastjóra Arion, sem telur að bankarnir hafi góða sögu að segja og mikilvægt sé reyna ná til breiðari hóps erlendra skuldabréfafjárfesta. Væntingar eru sömuleiðis um að lífeyrissjóðirnir fari að sýna meiri áhuga á að kaupa skuldabréf á bankanna. Innherji 24. apríl 2023 10:45
Telur „æskilegt“ að fleiri lífeyrissjóðir taki upp sömu áherslur og Gildi Stjórnarformaður Gildis, sem hefur iðulega beitt sér gegn því sem sjóðurinn hefur talið vera „óhóflegar“ bónusgreiðslur eða kaupréttarsamningar hjá félögum í Kauphöllinni, kallar eftir því að aðrir lífeyrissjóðir fylgi í sömu fótspor og Gildi. Sjóðurinn taldi ástæðu til að framfylgja hluthafastefnu sinni af „meiri þunga en áður“ á nýafstöðnum aðalfundum skráðra félaga, að hans sögn. Innherji 22. apríl 2023 11:55
Neytendastofa slær á fingur Origo Neytendastofa hefur bannað Origo hf. að nota fullyrðinguna „besta noise cancellation í heimi“ í markaðsefni um Bose heyrnartól sem fyrirtækið selur. Stofnunin taldi gögn sem Origo lagði fram sér til stuðnings ekki ná að sanna jafn afdráttarlausa fullyrðingu og þá sem um ræðir. Neytendur 21. apríl 2023 23:31
Hlutabréfagreinandi töluvert bjartsýnni á rekstur Brims nú en við áramót Jakobsson Capital er töluvert bjartari fyrir rekstur Brims í ár en greiningarfyrirtækið var fyrir áramót. Loðnuvertíð gekk vel og afli meiri en talið var. Horfur eru á að það háa verð sem býðst fyrir sjávarafurðir haldist hátt lengur en áður var reiknað með í ljósi mikillar hækkunar á öðru matvælaverði. Einnig hefur olíuverð lækkað sem hefur jákvæð áhrif. Innherji 21. apríl 2023 19:41
Nýja Airbus A321-þotan flugprófuð í fimbulkulda Hin nýja langdræga Airbus A321XLR-þota gengst um þessar mundir undir viðamiklar flugprófanir og var hún á dögunum reynd í fimbulkulda. Prófanirnar fóru fram á Iqaluit-flugvellinum við Frobisher-flóa í Norður-Kanada þar sem Airbus segir að frostið hafi farið niður í allt að -40 gráður. Erlent 20. apríl 2023 09:29
„Mikil óvissa“ um hvað Alvotech þarf að gera til að fá grænt ljós frá FDA Áform Alvotech um að fara inn á Bandaríkjamarkað um mitt þetta ár eru í hættu vegna óvissu um hvenær FDA mun veita félaginu markaðsleyfi, að sögn erlendra greinenda, en skiptar skoðanir eru hvaða áhrif það kann að hafa – DNB lækkar verðmat sitt á félaginu en mælir enn með kaupum á meðan Citi segir fjárfestum að selja – og sumir álíta að tafir um einhverja mánuði muni ekki hafa mikil áhrif á markaðshlutdeild fyrirtækisins á árunum 2024 og 2025. Á óformlegum upplýsingafundum með innlendum fjárfestum hafa lykilstjórnendur Alvotech aðspurðir tekið fyrir þann möguleika að þörf verði á því á næstunni að sækja aukið hlutafé út á markaðinn. Innherji 19. apríl 2023 17:05
Iceland Spring var metið á tæpa þrjá milljarða króna við kaup Ölgerðarinnar Hlutafé Iceland Spring var metið á 20 milljónir Bandaríkjadali, jafnvirði 2,7 milljarða króna, við hlutafjáraukningu Ölgerðarinnar. Íslenska samstæðan fer nú með 51 prósent hlut í vatnsfyrirtækinu. Ölgerðin hefur hækkað um sjö prósent það sem af er degi í kjölfar þess að hafa birt uppgjör eftir lokun markaða í gær. Innherji 19. apríl 2023 13:31
„Harla ólíklegt að við verðum ekki komin á markað í ár“ „Ég var aðallega hissa, meira en neitt annað,“ segir Róbert Wessmann, forstjóri Alvotech, um viðbrögð sín við ákvörðun Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA), um að veita líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við gigtarlyfið Humira ekki markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 18. apríl 2023 23:41
Sala á bjórkútum jókst um 48 prósent og rekstrarhagnaður stóreykst milli tímabila Rekstarhagnaður Ölgerðarinnar á fjórða ársfjórðungi hækkaði um 439 milljónir króna milli tímabila fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta. Vörusala Ölgerðarinnar var 20,7% hærri á fjárhagsárinu og var 48% magnaukning á bjórkútum. Hagnaður samstæðunnar á fjárhagsárinu var 2,5 milljarðar króna eftir skatta. Viðskipti innlent 18. apríl 2023 18:29
Von á nýjum Veðurstofuvef Veðurstofa Íslands hefur undirritað samning við Origo um smíði á nýjum vef fyrir stofnunina. Vefurinn mun birtast notendum í áföngum og reiknað er með að fyrstu hlutar hans líti dagsins ljós í sumar. Núverandi vefur hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Innlent 18. apríl 2023 17:22
Brim klárar tólf milljarða kaup á danskri fiskvinnslu Útgerðarfyrirtækið Brim hefur lokið við kaup á helmingshlut í félaginu Polar Seafood Denmark. Kaupverðið eru samanlagt 625 milljónir danskra króna, eða um tólf milljarðar íslenskra króna. Viðskipti innlent 18. apríl 2023 11:04
FDA staðfestir að það sé enn með svarbréf Alvotech „til skoðunar“ Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur staðfest við Alvotech að eftirlitið sé ekki enn búið að yfirfara að fullu ítarlegt svar sem íslenska líftæknifélagið sendi eftirlitinu í upphafi mánaðarins vegna ábendinga sem voru gerðar eftir endurúttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins. Eftir að hafa hrunið í verði um þriðjung á tveimur viðskiptadögum hækkaði gengi bréfa Alvotech um liðlega átta prósent í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Innherji 18. apríl 2023 09:59
Ný þota gefur færi á beinu flugi til Mexíkó og Indlands Tækifæri Íslendinga til að komast í beint flug til fjarlægari áfangastaða gætu stóraukist með kaupum Icelandair á langdrægum Airbus-þotum. Kalifornía, Mexíkó, Texas og jafnvel Suður-Ameríka en einnig Indland og Norður-Afríka gætu þannig bæst í leiðakerfið. Viðskipti innlent 17. apríl 2023 20:50
Jakobsson verðmetur Skel ríflega tuttugu prósent yfir markaðsverði Jakobsson Capital verðmetur Skel fjárfestingafélag 22 prósent yfir markaðsverði. Greiningarfyrirtækið verðmetur dótturfélög Skel lítilsháttar hærra en fjárfestingafélagið gerir sjálft en þykir hins vegar bókfært virði Orkunnar vera um 20 prósent of hátt. Innherji 17. apríl 2023 16:46
Hlutafjárútboð Ljósleiðarans bjóði hættunni heim Meirihluti rýnihóps borgarráðs hefur gefið Ljósleiðaranum græna ljósið til að ráðast í hlutafjárútboð um allt að ellefu milljarða króna. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands vill að fjarskiptainnviðir séu í eigu almennings og gefur lítið fyrir varnagla meirihlutans um að halda meirihlutastjórn í fyrirtækinu. Innlent 17. apríl 2023 13:35
Anna Þorbjörg hættir hjá Fossum fjárfestingarbanka Anna Þorbjörg Jónsdóttir, sem hefur starfað hjá Fossum fjárfestingarbanka frá árinu 2016 og byggt upp eignastýringarsvið félagsins, er hætt störfum hjá bankanum, samkvæmt upplýsingum Innherja, en í liðnum mánuði hafði verið greint frá því að hún ætti að taka við stöðu framkvæmdastjóra nýs lánasviðs Fossa. Vænta má þess að draga muni til tíðinda á næstu dögum í viðræðum um fyrirhugaðan samruna Fossa og VÍS. Innherji 17. apríl 2023 12:04
Mastercard hafar Íslandsbanka fengu sjokk í morgun Villur hafa komið upp á Mastercard greiðslukortum Íslandsbanka eftir aurarnir voru felldir niður á laugardag. Villurnar eru hins vegar að koma fram núna í morgun. Dæmi eru um að færslur séu að hundraðfaldast, en einnig eru villur í hina áttina. Viðskipti innlent 17. apríl 2023 11:27
FDA skaut fjárfestum í Alvotech niður á jörðina og óvissa um framhaldið Skilaboð Lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) til Alvotech, sem gerir enn athugasemdir við framleiðsluaðstöðu þess og setur áform um að hefja sölu á stærsta lyfi fyrirtækisins vestanhafs um mitt ár mögulega í uppnám, skutu fjárfestum skelk í bringu fyrir helgi og yfir hundrað milljarðar þurrkuðust út af markaðsvirði félagsins á einum viðskiptadegi – og felldi það um leið úr sessi sem hið verðmætasta í Kauphöllinni. Talsverð óvissa er um næstu skref en væntingar Alvotech, sem álíta athugasemdir FDA vera smávægilegar, eru að hægt verði að ljúka málinu fyrir tilsettan tíma í lok júní án þess að það kalli á þriðju úttektina af hálfu eftirlitsins á verksmiðju félagsins hér á landi. Innherji 17. apríl 2023 07:17
Allir styrkirnir í RÚV-verkefni Kvikmyndasjóður hefur verið tæmdur til Ríkisútvarpsins þetta árið en engin verkefni hjá öðrum miðlum virðast fá styrk. Framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum segir jafnræðis ekki gætt og að þetta sé enn eitt dæmið um slæma samkeppnisstöðu, en Ríkisútvarpið hafi þegar gríðarlegt forskot. Ríkið leiti lausna en það sé í raun vandinn. Innlent 16. apríl 2023 15:01
Hvetur hluthafa að tryggja að bankinn geti boðið „samkeppnishæf“ starfskjör Bankastjóri Landsbankans brýnir hluthafa, þar sem íslenska ríkið er fyrirferðarmest með 98 prósenta hlut, og bankaráð að „sjá til þess“ að bankinn sé samkeppnishæfur þegar kemur að kjörum starfsfólks. Forsvarsmenn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) gagnrýndu hvernig staðið var að kjaraviðræðum við bankastarfsmenn fyrr í vetur á nýlega afstöðnum aðalfundum Íslandsbanka og Landsbankans og varaformaður samtakanna sagði mikilvægt að koma á fót kaupaukakerfi hjá Íslandsbanka. Innherji 15. apríl 2023 15:25
Selur allt sitt í Nova Stærsti einstaki hluthafi fjarskiptafyrirtækisins Nova hefur selt öll hlutabréf sín í fyrirtækinu. Félagið, Nova Acquisition Holding ehf., átti 11,1 prósent hlut í Nova eða 424.495.186. Hlutabréfin voru seld á genginu 4,8 krónur fyrir rúmlega tvo milljarða króna. Viðskipti innlent 14. apríl 2023 10:28
Hrun hjá bréfum Alvotech eftir tíðindi næturinnar Virði bréfa Alvotech hefur fallið um rúm tuttugu prósent eftir að í ljós kom að fyrirtækið fær ekki enn grænt ljós frá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA) fyrir líftæknilyfjahliðstæðu við gigtarlyfið Humira. Viðskipti innlent 14. apríl 2023 10:20
Upplýsingaskylda útgefenda skráðra skuldabréfa Fréttir síðustu daga um fjármál íslenskra sveitarfélaga hafa vakið upp spurningar um hvort og þá hvaða sérstöku reglur gilda um útgefendur skráðra skuldabréfa, þá sérstaklega að því er varðar upplýsingagjöf þeirra. Umræðan 14. apríl 2023 09:38
Nýtt greiðslumiðlunarfyrirtæki á vegum Kviku hefur starfsemi Straumur greiðslumiðlun hf. hefur starfsemi á næstu dögum. Um er að ræða nýtt fjártæknifyrirtæki sem heyrir undir Kviku banka. Fyrirtækið mun bjóða upp á allar helstu lausnir greiðslumiðlunar, þar á meðal posa- og veflausnir. Viðskipti innlent 12. apríl 2023 13:51
Japanskur fyrirtækjarisi fjárfestir í Alvotech fyrir níu milljarða Japanska fjárfestingafélagið Mitsui & Co, sem er hluti af einni stærstu fyrirtækjasamsteypu heims, hefur keypt breytanleg skuldabréf Alvotech að fjárhæð 62,75 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 8,6 milljarða króna, af félagi sem er að stórum hluta í eigu Róbert Wessman, forstjóra Alvotech. Stærsti hluthafi Mitsui er fjárfestingafélag Warrens Buffett en fjárfestingin í Alvotech kemur einum degi áður en líftæknilyfjafyrirtækið gerir ráð fyrir að fá niðurstöðu frá bandaríska lyfjaeftirlitinu vegna umsóknar um markaðsleyfi fyrir gigtarlyfið Humira. Innherji 12. apríl 2023 09:36
Ölgerðin nú meirihlutaeigandi í Iceland Spring Ölgerðin hefur undirritað samninga sem fela í sér að Ölgerðin eignast 51 prósenta hlut í vatnsútflutningsfyrirtækinu Iceland Spring sem selur íslenskt vatn í um 35 þúsund verslunum Bandaríkjunum, Taílandi og Kína, þar með talið í í verslunum 7-Eleven, Walgreens og Rite Aid. Viðskipti innlent 12. apríl 2023 08:34