Play gefur ekkert upp um rannsókn FME á mögulegri markaðsmisnotkun Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands rannsakar nú mögulegt brot Play á lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem getur meðal annars varðað frestun á birtingu innherjaupplýsinga eða upplýsingagjöf í tengslum markaðsþreifingar, en flugfélagið segir málið vera „í vinnslu“ og tjáir sig ekki um hvaða atvik sé að ræða. Hlutabréfaverð Play hefur fallið um 40 prósent á nokkrum dögum í litlum viðskiptum eftir að félagið birti uppgjör sem sýndi bágborna lausafjárstöðu og boðaði því hlutafjárútboð til að styrkja hana. Innherji 13. febrúar 2024 17:07
Íslenskir lífeyrissjóðir umsvifamiklir í tæplega átta milljarða útboði Amaroq Mikill fjöldi helstu íslensku lífeyrissjóðanna kemur að kaupum á stórum hluta þess nýja hlutafé upp á samtals um 7,6 milljarða króna sem Amaroq Minerals hefur sótt sér í gegnum hlutafjárútboð en fyrir voru aðeins tveir lífeyrissjóðir í eigendahópi málmleitarfyrirtækisins. Söluandvirði útboðsins, sem var stækkað vegna rúmlega tvöfaldrar umframeftirspurnar, verður meðal annars nýtt til að hraða áformaðri gullvinnslu við Nalunaq-námu félagsins í Suður-Grænlandi síðar á þessu ári. Innherji 13. febrúar 2024 10:11
Play bætir við nýjum áfangastað Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til Vilníus í Litháen. Flogið verður vikulega á laugardögum yfir sumarmánuðina en fyrsta flugið til Vilníusar verður 25. maí. Viðskipti innlent 13. febrúar 2024 10:10
Halda í vonina um loðnuvertíð í vetur Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn dvínuðu í dag þegar Hafrannsóknastofnun tilkynnti að sáralítið hefði fundist af loðnu í þeirri loðnuleit sem núna stendur yfir. Útgerðarmenn halda þó enn í vonina um að loðnan finnist og að hægt verði að hefja veiðar. Viðskipti innlent 12. febrúar 2024 23:23
Þrátt fyrir mikið tap er forstjóri Play bjartsýnn Það skýrist á næstu vikum hvort stærstu hluthafar Play hafi áhuga á leggja félaginu til aukið hlutafé. Félagið hefur tapað meiru fé á fyrstu þremur árum sínum en WOW tapaði á sex árum. Forstjóri Play er bjartsýnn og segir félagið ekki bera neinar vaxtaberandi skuldir. Innlent 12. febrúar 2024 19:16
Verðmat Icelandair lækkar um nærri 30 prósent en það er „enn von“ Verðmat Icelandair lækkaði um tæplega 30 prósent vegna erfiðleika í rekstri. Verðmatið er engu að síður langt yfir markaðsvirði eða næstum 50 prósentum. Greinandi segir að ytri áföll í rekstri flugfélagsins hafi verið ansi tíð. Icelandair hafi ekki náð að rétta úr kútnum eftir Covid-19 heimsfaraldurinn eins og væntingar stóðu til. „Það er þó enn von.“ Innherji 12. febrúar 2024 12:08
Grænlendingar hefja beint flug til Kanada Air Greenland, þjóðarflugfélag Grænlendinga, hyggst hefja áætlunarflug milli Grænlands og Norður-Kanada í sumar. Flogið verður milli höfuðstaðarins Nuuk og bæjarins Iqaluit, höfuðstaðar Nunavut, sjálfsstjórnarsvæðis Inúíta í Kanada. Viðskipti erlent 11. febrúar 2024 12:12
Amaroq freistar þess að sækja sér allt að sjö milljarða í aukið hlutafé Málmleitarfyrirtækið Amaroq Minerals, sem er meðal annars skráð í Kauphöllina á Íslandi, freistar þess að sækja sér umtalsvert fjármagn frá fjárfestum í aukið hlutafé en félagið áformar að hefja gullvinnslu á Suður-Grænlandi síðar á árinu. Amaroq og ráðgjafar félagsins eiga nú í markaðsþreifingum við ýmsa innlenda fjárfesta, samkvæmt upplýsingum Innherja, og standa væntingar til þess að útboð upp á fimm til mögulega um sjö milljarða króna verði klárað yfir helgina. Innherji 10. febrúar 2024 16:34
Sameinað verslunarfélag væri með yfir sex milljarða í rekstarhagnað Áætlað er að EBITDA-hagnaður sameinaðs félags Samkaupa og Heimkaupa/Orkunnar hafi verið vel yfir sex milljarðar króna í fyrra, að mati Skeljar fjárfestingafélags. Það myndi jafngilda tæplega níu prósenta framlegðarhlutfalli, litlu meiri borið saman við Haga. Innherji 9. febrúar 2024 15:46
Þróunin í ferðaþjónustu á næstunni er „einn helsti áhættuþátturinn“ Vísbendingar eru um að jarðhræringarnar á Reykjanesi séu að hafa talsverð neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna í upphafi ársins og „einn helsti áhættuþátturinn“ er hvernig þróunin verður í framhaldinu í atvinnugreininni, að sögn seðlabankastjóra. Ef hagkerfið fer að kólna hraðar en nú er spáð vegna samdráttar í ferðaþjónustu er „alveg klárt“ að það mun flýta fyrir vaxtalækkunum. Innherji 9. febrúar 2024 11:31
Play í hlutafjáraukningu og á aðalmarkað Forsvarsmenn Play hafa hafið undirbúning á hlutafjáraukningu fyrir félagið. Ráðgert er að sækja allt að þrjá til fjóra milljarða króna í nýtt hlutafé. Þá stefnir félagið á að flytja sig yfir á aðalmarkað Kauphallarinnar á fyrri helmingi ársins. Gengi félagsins í Kauphöllinni var sextán prósentum lægra en í gær þegar markaðir opnuðu í dag. Viðskipti innlent 9. febrúar 2024 10:11
Hagnaður Íslandsbanka 24,6 milljarðar á síðasta ári Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 6,2 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2023. Hagnaður af rekstri bankans nam því 24,6 milljarðar króna á síðasta ári. Stjórn Íslandsbanka mun leggja til 12,3 milljarða króna arðgreiðslu við aðalfund bankans í mars. Viðskipti innlent 9. febrúar 2024 07:57
Nýr forstjóri bregst við gagnrýni fjárfesta og lækkar verulega afkomuspá Marel Nýr forstjóri Marel hefur komið til móts við gagnrýni fjárfesta um óraunhæf rekstrarmarkmið með því að lækka talsvert afkomuspá félagsins fyrir þetta ár og segir að fyrsti fjórðungur „verði þungur“ vegna krefjandi markaðsaðstæðna. Framlegðarhlutfall Marel var lítillega undir væntingum greinenda á síðasta fjórðungi 2023 á meðan nýjar pantanir jukust meira en gert var ráð fyrir auk þess sem félagið skilaði verulega bættu sjóðstreymi sem gerði því kleift að létta á skuldsetningu. Innherji 8. febrúar 2024 16:52
Hagnaður Arion yfir væntingum en mjög farið að hægja á útlánavexti Hagnaður Arion banka á fjórða ársfjórðungi var nokkuð yfir væntingum greinenda, en ekki kom til virðsrýrnunar útlána eins og reiknað var með. Bankastjóri Arion segir viðskiptamódel bankans, að leggja áherslu á þóknanatekjur, hafi sannað sig á tímum þegar hægir á útlánavexti. Innherji 8. febrúar 2024 12:48
Arion banki hagnaðist um tæplega 26 milljarða Hagnaður Arion banka á árinu 2023 nam 25,7 milljörðum króna. Stjórn bankans leggur til að um þrettán milljarða króna arður verði greiddur út. Viðskipti innlent 7. febrúar 2024 17:39
Sjónvarp gamla fólksins á Spáni ekki óhult enn Landsréttur hefur fellt frávísunarúrskurð héraðsdóms í máli Sýnar gegn Jóni Einari Eysteinssyni úr gildi að hluta. Sýn höfðaði mál á hendur honum fyrir að hafa gegn betri vitund selt ótilgreindum fjölda fólks aðgang að læstri dagskrá sjónvarpsstöðva og streymisveitu félagsins. Innlent 7. febrúar 2024 17:05
Andri Þór tekur við af Ara Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, hefur verið kjörinn formaður Viðskiptaráðs. Hann tekur við embætti formanns af Ara Fenger sem gegnt hefur stöðunni frá árinu 2020. Viðskipti innlent 7. febrúar 2024 12:50
Bogi Nils valinn markaðsmanneskja ársins Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, var í gærkvöldi valinn markaðsmanneskja ársins 2023 hjá ÍMARK. Viðskipti innlent 7. febrúar 2024 10:34
Farþegum fjölgaði í janúar hjá Play og Icelandair Farþegum í janúarmánuði fjölgaði hjá íslensku flugfélögunum Play og Icelandair. Farþegum fjölgaði um 61 prósent hjá Play miðað við sama tíma í fyrra en sjö prósent hjá Icelandair. Viðskipti innlent 7. febrúar 2024 10:31
Fékk samviskubit eftir mannskæðasta flugslys íslenskrar flugsögu „Svo byrjum við að heyra högg. Púmm, púmm, púmm. Ég fer að hugsa: Það er eitthvað að, segir Oddný Björgólfsdóttir, fyrrum Loftleiðaflugfreyja. Oddný var ein af þeim 79 sem komust lífs af þegar Leifur Eiríksson, DC-8 þota Flugleiða, fórst í aðflugi við Katunayake-flugvöll í Kólombó á Sri Lanka. Oddný var í þrjár vikur á sjúkrahúsi áður en hún flaug heim til Íslands þar sem við tók löng endurhæfing. Lífið 7. febrúar 2024 07:00
Krefjandi markaðsaðstæður setji áfram mark sitt á afkomu Marels Horfur eru á að krefjandi markaðsaðstæður muni áfram setja mark sitt á afkomu Marel. Greinendur búast almennt við því að afkoma fyrirtækisins muni dragast saman á milli ára á fjórða ársfjórðungi og að framlegðarhlutfall verði rétt undir tíu prósentum. Marel mun birta uppgjör eftir lokun markaða á morgun. Innherji 6. febrúar 2024 12:35
Ellefu sagt upp hjá Arion banka Ellefu starfsmönnum hefur verið sagt upp störfum hjá Arion banka. Nýtt skipurit tekur gildi í dag og fækkar forstöðumönnum bankans um 13 prósent við breytingarnar. Viðskipti innlent 5. febrúar 2024 11:16
Nýr forstjóri Reita fór fyrir 200 milljarða banka í Katar Guðni Aðalsteinsson, fyrrverandi forstjóri þriðja stærsta viðskiptabanka Katar, hefur verið ráðinn forstjóri Reita. Markaðsvirði bankans er yfir 200 milljarðar króna en til samanburðar er markaðsvirði Reita um 65 milljarðar króna. Guðni hefur á ferli sínum gegnt fjölbreyttum stjórnunarstöðum á Íslandi, Englandi, Þýskalandi og Katar. Innherji 5. febrúar 2024 10:25
Guðni leysir Guðjón af hólmi Guðni Aðalsteinsson verður forstjóri Reita fasteignafélags. Hann tekur við starfinu af Guðjóni Auðunssyni sem lætur af starfi eftir þrettán ár í forstjórastól. Stólaskiptin verða þann 1. apríl. Viðskipti innlent 5. febrúar 2024 09:21
Arion banki lækkar vexti Arion banki hefur lækkað óverðtryggða fasta þriggja ára íbúðalánavexti um 0,15 prósentustig og þeir eru nú 9,45 prósent. Aðrir útlánavextir haldast óbreyttir. Viðskipti innlent 5. febrúar 2024 08:13
Arion freistar þess að selja um tíu prósenta hlut bankans í Eyri Invest Arion leitar nú að áhugasömum fjárfestum til að kaupa allan eignarhlut bankans í Eyri Invest en fjárfestingafélagið er langsamlega stærsti hluthafi Marel sem á núna í formlegum viðræðum um samruna við John Bean Technologies. Þrír mánuðir eru síðan Arion leysti til sín samanlagt nálægt tíu prósenta hlut sem var áður í eigu feðganna Árna Odds Þórðarson, þáverandi forstjóra Marel, og Þórðar Magnússonar, fyrrverandi stjórnarformanns Eyris í meira en tvo áratugi, en Árni Oddur leitar nú leiða til að komast að nýju yfir þau bréf í gegnum nýtt fjárfestingafélag sem hann fer fyrir. Innherji 4. febrúar 2024 14:16
Farangurskerra fauk á flugvél Icelandair í hríðinni Flugvél Icelandair var á leið út á flugbraut þegar farangurskerra fauk utan í hreyfil hennar. Farþegar hafa verið í flugvélinni í rúma fimm tíma og komast ekki út vegna brjálaðs roks. Þá hefur öllum flugferðum Icelandair frá vellinum verið aflýst í kvöld vegna veðurs. Innlent 2. febrúar 2024 21:05
Hætta viðskiptum með seðla í öllum erlendum myntum nema fjórum Frá og með 15. mars 2024 mun Arion banki aðeins taka við og selja erlenda seðla í fjórum myntum; breskum pundum, bandaríkjadollar, pólskum zloty og evrum. Viðskipti innlent 2. febrúar 2024 14:37
„Enginn barlómur“ en án Marels tefst uppfærsla hjá MSCI Fari svo að bandaríska fyrirtækið John Bean Technologies (JBT) kaupi Marel mun það tefja ferlið við að komast upp um flokk hjá vísitölufyrirtækinu MSCI. „Það er enginn barlómur í okkur. Við erum áfram í dauðafæri en þetta tefur að líkindum verkefnið eilítið,“ segir forstjóri Kauphallarinnar. Innherji 2. febrúar 2024 10:21
„Það er mikilvægur áfangi að skila hagnaði“ Icelandair hagnaðist um 1,5 milljarð í fyrra, eftir skatta, sem er töluverð breyting frá árinu áður þegar félagið tapaði 800 milljónum. Eldgos og jarðhræringar höfðu mikil áhrif á rekstur félagsins á fjórða ársfjórðungi. Alls ferðuðust þó 4,3 milljónir farþega með þeim í fyrra sem er aukning um 17 prósent frá árinu á undan. Viðskipti innlent 1. febrúar 2024 21:23