Innherji

Flókið að biðja líf­eyris­sjóði að vera í senn langtíma­fjár­festar og virkir á markaði

Hörður Ægisson skrifar
„Það er hughreystandi í þeim skilningi ef ráðherra er að hvetja lífeyrissjóði til að taka meiri áhættu en ekki alveg víst að eftir-á-spekingarnir verði því sammála ef verðið lækkar,“ segir Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu. 
„Það er hughreystandi í þeim skilningi ef ráðherra er að hvetja lífeyrissjóði til að taka meiri áhættu en ekki alveg víst að eftir-á-spekingarnir verði því sammála ef verðið lækkar,“ segir Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu. 

Ekki er að sjá af gögnum að íslenskir lífeyrissjóðir séu sérstaklega áhættufælnir í fjárfestingum sínum að mati framkvæmdastjóra eins af stærstu sjóðum landsins, líkt og fjármála- og efnahagsráðherra hefur haldið fram, en hann telur að sporna þurfi við þeirri stöðugu umræðu að skammtímasveiflur í gengi hlutabréfa feli í sér áhættu fyrir lífeyrissjóði. Hann fagnar því ef ráðherra vill skoða leiðir til að auka þátttöku almennings á mörkuðum, sem gæti aukið skilvirkni þeirra, enda sé flókið að biðja lífeyrissjóði að vera í senn langtímafjárfestar og stuðla að stöðugri verðmyndum með tíðum viðskiptum.


Tengdar fréttir

Hvetja aðildarríki til að bjóða sparnaðar­leiðir með skatta­legum hvötum

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur beint þeim tilmælum til aðildarríkjanna að innleiða svonefnda sparnaðar- og fjárfestingarreikninga, sem hefur meðal annars verið gert í Svíþjóð með góðum árangri, sem myndu njóta skattalegs hagræðis í því skyni að ýta undir fjárfestingu og hagvöxt í álfunni. Hér á landi er þátttaka almennings á hlutabréfamarkaði með minna móti og engir skattalegir hvatar til að ýta undir kaup í skráðum félögum.

Fylgjandi „meira frelsi“ í fjár­festingum líf­eyris­sjóða en vill efla kröfur og eftir­lit

Þrátt fyrir að segjast vera fylgjandi þeim „umfangsmiklu tilslökunum“ sem til stendur að gera á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóðanna þá er Seðlabankinn nokkuð gagnrýninn á að ekki sé gengið lengra í því sem hann telur „brýnar“ mótvægisaðgerðir, meðal annars þegar kemur að því að efla kröfur um stjórnarhætti og innra eftirlit sjóðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×