

Jólavefur Vísis
Allt um undirbúninginn, aðventuna, uppskriftir, jólalög og margt fleira.

Lokanir í miðbænum á Þorláksmessu að venju
Laugavegur í Reykjavík verður göngugata á Þorláksmessu. Spáð er ágætis veðri og má því búast við fjölda fólks í miðbæinn. Hin árlega friðarganga verður gengin 39. árið í röð frá Hlemmi.

Skyrgámur kom til byggða í nótt
Skyrgámur er áttundi jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann var ægilegur rumur sem þefaði upp skyrtunnur og át þar til hann stóð á blístri.

Fær send myndskeið af fólki að svæfa börn
Jón Ólafsson tónlistarmaður tekur að sér tónlistarlegt uppeldi yngstu kynslóðar landsins með tónbókum sem innihalda sérvalin íslensk lög. Tvær nýjar bækur komu út nú fyrir jólin.

Fer í jólamessu hjá pabba
Anna Margrét Gunnarsdóttir gefur uppskrift að hnetusmjörskökum með tvisti og smákökum með súkkulaðibitum. Hún er mikið jólabarn og finnst desember besti tími ársins.

Allir hefðbundnir í jólatónlist
Matthías Már Magnússon hefur valið jólalögin á spilunarlista Rásar 2 undanfarin ár. Hann segir að Íslendingar vilji heyra íslenska jólatónlist en það þurfi að spila lögin á réttum tíma og í réttu magni.

Hurðaskellir kom til byggða í nótt
Hurðaskellir er sjöundi jólasveinninn sem kemur til byggða. Honum fannst ekkert skemmtilegra en að skella hurðum og notaði til þess hvert tækifæri sem gafst.

Auðvelt að spegla sig í Jesúbarninu
Fyrir Hjalta Jón Sverrisson, nývígðan prest við Laugarneskirkju, snúast jólin um frið, von, samveru og kærleika, en líka súkkulaðimúsina hennar mömmu og NBA-körfubolta á jóladag.

Þægur drengur í jólagjöf
Vilhelm Anton Jónsson, eða Vísinda-Villi, nú eða Villi Naglbítur, segir undarlega upplifun að finna rjúpnalykt um páska. Hann fær svo matarmikinn grjónagraut á aðfangadag að hann þarf ekki meira fyrr en um áramót.

Askasleikir kom til byggða í nótt
Askasleikir er sjötti jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann stal öskum fólks, faldi sig með þá og skilaði ekki aftur fyrr en þeir voru tómir.

Humarsúpa með asísku tvisti
Í hádeginu á jóladag bjóða Rúnar Már Jónatansson og eiginkona hans, María Níelsdóttir, öllum afkomendum sínum í dýrindis súpur og hnallþórur.

Pottaskefill kom til byggða í nótt
Pottasskefill er fimmti jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann hirti skítuga pottana úr eldhúsinu og skóf þá að innan með puttunum. Þá þurfti ekki að þvo þá.

Rímnaljóð og myndlist á Suðurlandi
Rímnaljóð og myndlist fer vel saman hjá félögum í Myndlistarfélagi Árnessýslu sem nota tímann vel fyrir jól til að mála og fara með skemmtilegar rímur.

Mandarínu-möndlukökur: Sætt en sykurlaust jólagóðgæti
Telma Matthíasdóttir, þjálfari og eigandi fitubrennsla.is, fór að hafa gaman af eldamennsku og bakstri þegar hún tók heilsu sína í gegn fyrir allmörgum árum. Hún er mikill sælkeri og útbýr alls kyns næringarríkt sætmeti án sykurs.

Piparkökuboð á aðventunni
Þórunn Sigþórsdóttir heldur árlega aðventuboð þar sem yngstu gestirnir fá piparkökuhús til að skreyta af hjartans lyst. Það á vel við núna fyrir jólin því hún leikstýrir ævintýraóperunni Hans og Grétu þar sem piparkökuhús kemur við sögu.

Lestur, hefðir, hangikjöt, rjúpur og sem minnst af jólastressi
Eftir viðburðaríkar vikur í pólitíkinni hefur þingi verið frestað og þingmenn komnir í jólafrí, heilum níu dögum fyrir jól. Þeir eru farnir að huga að jólamatnum og bókalestri.

Þvörusleikir kom til byggða í nótt
Þvörusleikir er fjórði jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann var mjór eins og girðingarstaur og þótti best að sleikja þvörur sem notaðar voru til að hræra í pottum.

Mannréttindarskrifstofa borgarinnar og Höfuðborgarstofa unnu jólaskreytingarkeppnina í Ráðhúsinu
Það var afar jólalegt í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag þegar árleg jólaskreytingakeppni var haldin.

Einstæðingar feimnir við að þiggja boð í glæsilega jólaveislu
Feðgarnir Viktor Joensen og Bergleif Joensen standa fyrir sannkallaðri jólaveislu að kvöldi aðfangadags.

Bragðbomburnar á Kopar kalla fram minningar
Kokkarnir á Kopar fara sínar eigin leiðir og matreiða hefðbundinn jólamat á óhefðbundinn hátt. Litlar bragðbombur trylla bragðlaukana og vekja upp minningar liðinna jóla.

Vinnur bug á jólastressi og kvíða
Sigríður A. Pálmadóttir, hjúkrunarfræðingur og dáleiðari, hefur náð góðum tökum á jólakvíða með dáleiðslu. Hún segir marga glíma við jólakvíða vegna erfiðra minninga úr æsku.

Útlit fyrir rigningarveður og „milt loft af suðrænum uppruna“ um jólin
Veðurfræðingar leggja þó áherslu á að enn sé langt í stóra daginn og því afar vandasamt að slá nokkru föstu um veðurfar yfir hátíðarnar.

Jólakótilettur úr sveitinni
Hulda Rós Ragnarsdóttir ólst upp í sveit og vandist því að fá kótilettur í raspi í matinn á aðfangadagskvöld. Á jóladag var farið í messu og á eftir var heitt kakó og kökur á borðum.

Stúfur kom til byggða í nótt
Stúfur er þriðji jólasveinninn sem kemur til byggða. Honum fannst best að kroppa leifarnar af pönnunum, sérstaklega ef þær voru vel viðbrenndar.

Tíu ára bræðir gömul hjörtu í stórum stíl
Bjarni Gabríel Bjarnason byrjaði að syngja áður en hann fór að tala en hjólin fóru fyrst að snúast þegar hann upp á sínar eigin spýtur tók þátt í Jólastjörnunni á Stöð 2 í fyrra en eftir það var hann ráðinn út um allt að syngja.

Fagurrautt og rússneskt vinaigrette-salat á jólaborðið
Nathalía Druzin Halldórsdóttir söngkona á rætur að rekja til Rússlands. Hún útbýr meðlætið með hangikjötinu á jóladag eftir þarlendri uppskrift.

Jólatónleikar Rubens og Clays
Jólatónleikar eru ekki séríslenskur siður. Þeir eru haldnir víða. Gömlu Idol-stjörnurnar Ruben Studdard og Clay Aiken, sem háðu eftirminnilegt einvígi árið 2003, sáu örlitla gróðavon og hentu upp jólasýningu fyrir fjölskylduna alla.

Skólabörn gáfu björgunarsveit eina og hálfa milljón króna
Nemendur Sunnulækjarskóla á Selfossi gáfu Björgunarfélagi Árborgar eina og hálfa milljón króna en það eru peningar sem söfnuðust á góðgerðadögum skólans.

Nautasteik með kartöflumús: Góður og einfaldur réttur á aðventu
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður sendi nýverið frá sér þriðju matreiðslubókina sem nefnist Hvað er í matinn? Þar býður hún lesendum upp á einfalda en girnilega rétti fyrir öll kvöld vikunnar sem allir geta gert.

Giljagaur kom til byggða í nótt
Giljagaur er annar jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann hafði yndi af mjólkurfroðunni og hélt sig mest í fjósinu.

Endurnýtt á jólaborðið
Marga dreymir um að draga úr neysluhyggjunni um jólin. Ein leið er að kaupa notað jólaskraut og borðbúnað. Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl vinnur sem sjálfboðaliði á nytjamarkaði ABC barnahjálpar og lagði á borð með munum og skrauti úr versluninni til að gefa fólki hugmyndir.