Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Hin 16 ára gamla Bríet Fjóla Bjarnadóttir var stjarna helgarinnar í Bestu deild kvenna en hún skoraði þrennu fyrir bikarmeistara Þróttar í 5-1 sigri á Stjörnunni. Breiðablik náði þriggja stiga forskoti á FH í titilbaráttunni. Öll mörkin má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 28.9.2026 16:16
Minden keypti Erling af ÍBV Handboltaþjálfarinn Erlingur Richardsson hefur verið ráðinn þjálfari þýska 2. deildarfélagsins Minden og er því hættur sem þjálfari ÍBV í Olís-deildinni. Handbolti 28.9.2026 10:49
Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Breiðablik vann mikilvægan 2–1 sigur á ÍBV á Hásteinsvelli í Bestu deild kvenna í dag eftir að hafa verið marki undir í hálfleik. Allison Patricia Clark kom Eyjakonum yfir en Agla María Albertsdóttir og Bryndís Arna Níelsdóttir tryggðu Blikum sigurinn með mörkum í síðari hálfleik. Með sigrinum tryggði Breiðablik sér þrjú mikilvæg stig í titilbaráttunni og komst í 43 stig á toppi deildarinnar. ÍBV situr áfram í þriðja sæti með 30 stig. Íslenski boltinn 26.9.2026 13:16
Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Lægð yfir suðvesturhorninu gerir að verkum að ófært er til og frá Vestmannaeyjum. Leik Fram og ÍBV í Olís-deild karla í handbolta sem átti að fara fram í kvöld hefur því verið frestað. Handbolti 16. september 2026 16:30
Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Tómas Orri Róbertsson skoraði sannkallað draumamark í dýrmætum sigri FH gegn KA í gær. KR, Valur og Stjarnan fögnuðu einnig sigri. Öll mörkin úr Bestu deildinni má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 14. september 2026 11:02
Fámáll um orðrómana Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, vildi lítið segja um áætlan félagsins að fá Omar Sowe, framherja ÍBV, til síns liðs. Íslenski boltinn 14. september 2026 08:00
Valur rétti af skelfilega byrjun Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Vals í handbolta kvenna fengu skell í fyrstu umferð Olís deildarinnar þegar liðið tapaði fyrir Selfossi. Liðið tók á móti ÍBV í annarri umferð deildarinnar og náði í kærkominn sigur. Handbolti 13. september 2026 19:41
„Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, var ósáttur með nokkrar ákvarðanir dómarans eftir 2-0 tap liðsins gegn Stjörnunni á Samsungvellinum í dag. Honum fannst dómarinn missa tökin á leiknum en tók þó fram að tapið skrifaðist ekki eingöngu á dómgæsluna. Íslenski boltinn 13. september 2026 17:02
Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Eyjamenn eru komnir í þrönga stöðu á botni Bestu deildar karla eftir 2-0 tap gegn Stjörnunni í Garðabæ í dag. Benedikt Warén var í banastuði í liði Stjörnunnar í dag og skoraði bæði mörk leiksins. Íslenski boltinn 13. september 2026 16:41
ÍBV samdi við bandarískan hermann Það vakti talsverða athygli í gær er ÍBV tilkynnti að félagið væri að fá til sín tvo bandaríska leikmenn. Bandaríkjamenn hafa hingað til ekki verið að tefla fram öflugum handboltamönnum. Handbolti 11. september 2026 08:31
Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn ÍBV vann þriggja marka sigur, 30-27, á Selfossi í 2. umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Handbolti 10. september 2026 19:38
ÍBV fær bandarískan liðsauka ÍBV hefur fengið tvo bandaríska leikmenn til að spila með félaginu í ár. Leikmennirnir eru hluti af USA Team Handball og er markmið liðsins að þjálfa leikmenn og gera þá klára fyrir Ólympíuleikana 2028 sem haldnir verða í Los Angeles. Handbolti 10. september 2026 11:46
ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA Miðjumaðurinn efnilegi Magnús Dagur Jónatansson hefur sagt skilið við KA og er genginn í raðir ÍBV, nú þegar handboltaleiktíðin er nýhafin. Handbolti 8. september 2026 15:32
Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Það er gífurleg spenna í 18. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta, síðustu umferðinni fyrir skiptingu deildarinnar, sem lýkur í kvöld. Mörkin úr leikjum helgarinnar má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 7. september 2026 09:34
Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Haukar unnu sannfærandi sigur á ÍBV að Ásvöllum í fyrstu umferð Olís-deildar karla í handbolta. Handbolti 6. september 2026 19:30
Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Stjarnan náði í stig gegn ÍBV eftir að hafa lent 2-0 undir í Miðgarði í lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta fyrir skiptingu. Stjarnan endar í efsta sæti neðri hlutans en ÍBV fer á botn deildarinnar. Íslenski boltinn 6. september 2026 16:00
Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Fram vann sterkan 3-2 útisigur á ÍBV á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í Bestu deilda kvenna. Annar endurkomusigur Fram í röð. Íslenski boltinn 5. september 2026 14:46
Eyjakonur unnu opnunarleikinn ÍBV hefur Olís-deild kvenna á sigri. Liðið vann 32-28 sigur á KA/Þór í Eyjum. Handbolti 5. september 2026 14:36
Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Fjórir leikir voru á dagskrá í Bestu deild kvenna í gær og var mikil dramatík. Íslenski boltinn 30. ágúst 2026 10:02
Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Spánverjinn Victor Bertomeu, leikmaður Þórs frá Akureyri, gerði sig sekan um ansi óíþróttamannslega hegðun í leik við ÍBV í Vestmannaeyjum í dag en hún gæti þó hafa skilað árangri. Íslenski boltinn 29. ágúst 2026 22:03
„Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, var verulega ósáttur með frammistöðu Íslandsmeistaranna í fyrri hálfleik í tapinu fyrir ÍBV, 1-2, á Eikarvellinum í Kópavogi í dag. Íslenski boltinn 29. ágúst 2026 19:21
„Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Guðný Geirsdóttir, markvörður ÍBV, stóð heldur betur fyrir sínu þegar liðið lagði Íslandsmeistara Breiðabliks að velli, 1-2, í 17. umferð Bestu deildar kvenna í dag. Guðný hrósaði samherjum sínum í hástert eftir leikinn í Kópavoginum. Íslenski boltinn 29. ágúst 2026 19:08
Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Þórsarar gerðu virkilega góða ferð til Vestmannaeyja í 21. umferð Bestu deildar karla í dag. Unnu heimamenn í ÍBV með einu marki gegn engu og komu sér upp úr kjallaranum. Eyjamenn höfðu sætaskipti og eru í erfiðari stöðu en í upphafi dags. Íslenski boltinn 29. ágúst 2026 18:59
Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið ÍBV lyfti sér upp í 3. sæti Bestu deildar kvenna með 1-2 sigri á Breiðabliki í Kópavoginum í dag. Allison Lowrey kom Eyjakonum yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks og sex mínútum fyrir leikslok bætti Fridrikka Clementsen öðru marki við. Elísa Viðarsdóttir minnkaði muninn skömmu síðar en nær komust Blikar ekki. Íslenski boltinn 29. ágúst 2026 18:40