Hveragerði

Hveragerði

Mannfjöldi: 3.300 (2025). Flatarmál: 9 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Upp­bygging Hvera­gerðis og þróun inn­viða

Þegar ég og maðurinn minn tókum þá ákvörðun að flytja í Hveragerði kom það á óvart hjá okkar nánustu. Staðan á fasteignamarkaðinum var einfaldlega þannig að fjögurra manna fjölskylda átti erfitt með að standast greiðslumat fyrir fasteign á höfuðborgarsvæðinu. Við leituðum því nýrra leiða og fundum framtíðarheimili í Hveragerði. Sjálf er ég að mestu alin upp í Vesturbæ Reykjavíkur og maðurinn minn í Seljahverfinu í Breiðholti. Bæði höfum við þó alltaf sótt í útiveru, ég í hestamennsku og hann í jeppaferðir. Það heillaði okkur því strax að vera svona nálægt náttúrunni, með fjöllin, dalina og kyrrðina innan seilingar.

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gott að eldast í Hvera­gerði

Hveragerðisbær hefur löngum verið þekktur fyrir gæðin sem felast í því að eyða hér sínum efri árum. Öflug og metnaðarfull öldrunarþjónusta er eitt af einkennum Hveragerðisbæjar, sem við erum afar stolt af.

Skoðun
Fréttamynd

Stöðvuðu stút með naglamottu

Lögregluþjónar frá Lögreglunni á Suðurlandi, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og úr sérsveit ríkislögreglustjóra veittu um helgina ökmanni sem neitaði að stöðva bíl sínn eftirför. Beita þurfti naglamottu til að stöðva hann á endanum.

Innlent
Fréttamynd

Þjónustukjarni eldri borgara – lykill að gæðasamfélaginu í Hvera­gerði

Gæði samfélags mælast í því hvernig við þjónustum íbúana. Íbúasamsetning í Hveragerði er fjölbreytt og býr í bænum m.a. fjölmennur og virkur hópur eldra fólks. Það er eitt af megin áherslumálum Framsóknar að bjóða upp á fjölbreyttan búsetuvalkost fyrir alla hópa samfélagsins. Það er því mikilvægt að hlusta eftir því hvað hentar hverjum.

Skoðun
Fréttamynd

Eftir­maður Guð­brands í sjokki en klár í slaginn

Sandra Sigurðardóttir varaþingmaður Viðreisnar sem nú tekur við þingsæti Guðbrands Einarssonar í Suðurkjördæmi segist vera í sjokki vegna málsins. Ákvörðunin hjá Guðbrandi um að segja af sér vegna tilraunar til vændiskaupa sé hinsvegar hárrétt og segist Sandra vera klár í slaginn á Alþingi.

Innlent
Fréttamynd

Orðin innan­tóm um rekstur Hvera­gerðis­bæjar

Um miðjan desember var fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2026 samþykkt. Í kjölfarið fór meirihluti Framsóknar og Okkar Hveragerðis mikinn og talaði um einstaka fjárhagsáætlun sem sýndi ábyrgan rekstur og lækkun skulda.

Skoðun
Fréttamynd

Ungmennahús í Hvera­gerði

Fulltrúar Okkar Hveragerðis í bæjarstjórn og nefndum Hveragerðisbæjar hafa unnið statt og stöðugt að því að tryggja íbúum framúrskarandi þjónustu og lífsgæði í bæjarfélaginu.

Skoðun
Fréttamynd

Veki furðu að bíla­leigu­bílar séu ekki á nagla­dekkjum

Teitur Þorkelsson leiðsögumaður kom að bílveltu í gær, nýársmorgun, við Kambana á Hellisheiði og furðar sig á því að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum. Í bílnum voru ferðamenn sem voru fluttir til Hveragerðis til aðhlynningar og voru ekki alvarlega slasaðir að sögn Teits. Hann segir þau þó hafa verið í miklu áfalli.

Innlent
Fréttamynd

Skólp og klór frá Hvera­gerði gerir Ölfusingum lífið leitt

Íbúar í Ölfusi eru langþreyttir á mengun í Varmá sem kemur frá nágrönnum þeirra í Hveragerði. Skólplykt leggur yfir íbúðahverfi í Ölfusi og fiskar hafa drepist í ánni vegna klórs frá sundlauginni í Laugaskarði. Bæjaryfirvöld tilkynntu ekki um klórslys sem varð í vor fyrr en daginn eftir að það átti sér stað.

Innlent
Fréttamynd

Jóhanna ætlar ekki aftur fram

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir formaður bæjarráðs Hveragerðisbæjar og oddviti Framsóknar ætlar ekki að bjóða sig fram að nýju í sveitarstjórnarkosningum á næsta ári. Hún greinir frá þessu í aðsendri grein á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í bíl á Hellis­heiði

Lögreglunni á Suðurlandi var fyrir stuttu tilkynnt um eld í bíl á Hellisheiði. Samkvæmt upplýsingum frá Einar Sigurjónssyni aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi gat ökumaður sjálfur slökkt eldinn og svo ekið bílnum af vettvangi. 

Innlent
Fréttamynd

Hjóluðu 1300 kíló­metra með­fram Dón­á með börnum sínum

Fjölskyldu í Hveragerði finnst fátt skemmtilegra en að fara saman út að hjóla og ekki síst í útlöndum. Fjölskyldan er nýkomin heim úr hjólaferð meðfram Dóná, næst lengstu á í Evrópu en í ferðinni voru hjólaðir um þrettán hundruð kílómetrar og fjölskyldan gisti átján nætur í tjaldi.

Innlent
Fréttamynd

Ný við­bygging og hafra­grautur í Hvera­gerði

Mikil ánægja er á meðal starfsmanna og nemenda Grunnskóla Hveragerðis með nýja viðbyggingu við skólann þar sem nýr og glæsilegur matsalur er hluti af byggingunni. Viðbyggingin kostaði um einn milljarða króna. Ókeypis hafragrautur er í boði fyrir nemendur alla morgna í skólanum.

Innlent