Ernie Els meiddur Suður Afríkumaðurinn Ernie Els, þriðji stigahæsti kylfingur heims, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hann meiddist á hné við siglingar í síðustu viku. Els gekkst undir aðgerð í gær og hefur sagt sig úr keppni á Meistaramóti PGA mótaraðarinnar í ágúst. Sport 29. júlí 2005 00:01
Umspil hjá konunum Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR og Ólöf María Jónsdóttir úr GK luku báðar 72 holum á 20 höggum yfir pari og þurfa því að fara í þriggja holu umspil um Íslandsmeistaratitilinn. Þórdís Geirsdóttir hafnaði í þriðja sæti, einu höggi á eftir, en hún lék á 81 höggi eða 9 höggum yfir pari í dag. Sport 24. júlí 2005 00:01
Heiðar Davíð Íslandsmeistari Heiðar Davíð Bragason úr Kili Mosfellsbæ sigraði í dag á Íslandsmótinu í höggleik í golfi sem fram fór í Leiru í Keflavík og er þetta í fyrsta sinn sem Heiðar Davíð fagnar þeim titli. Heiðar leiddi keppnina frá frá fyrsta degi. Sport 24. júlí 2005 00:01
Ragnhildur sigraði Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR varð Íslandsmeistari í höggleik kvenna 2005. Hún sigraði Ólöfu Maríu Jónsdóttur úr GK í umspili um titilinn. Þetta er fjórði Íslandsmeistaratitill Ragnhildar og í annað sinn sem hún fagnar Íslandsmeistaratitli á Hólmsvelli, en það gerði hún þegar síðasta Íslandsmót var haldið í Leirunni, árið 1998. Sport 24. júlí 2005 00:01
Þrír ernir í Leiru í dag Nú er verið að leika þriðja hring á Íslandsmótinu í golfi í Leiru. Þórdís Geirsdóttir er efst í kvennaflokki á 8 höggum yfir pari en Heiðar Davíð Bragason er efstur í karlaflokki á 4 höggum undir pari. Sport 23. júlí 2005 00:01
Heiðar Davíð missir forystuna Gríðarleg spenna er í karlaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer í Leiru og er Ólafur Már Sigurðsson úr GR kominn einn í forystu. Heiðar Davíð Bragason úr GKJ sem var með forystuna fyrr í dag er samtals á 2 höggum undir pari og hefur leikið á einu höggi yfir pari í dag, en hann fékk skolla á 5. og 6. holu. Sport 23. júlí 2005 00:01
Þórdís með forystu Þórdís Geirsdóttir er með góða stöðu á Íslandsmótinu í golfi eftir tvo hringi, hefur 6 högga forustu á Tinnu Jóhannsdóttur og 7 högg á Ragnhildi Sigurðardóttur og Nínu Björk Geirsdóttir. Sport 23. júlí 2005 00:01
Æsispennandi í Leirunni Spennan er mögnuð í karlaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer í Leiru. Heiðar Davíð Bragason vann efsta sætið aftur eftir að hafa misst það til Ólafs Más Sigurðssonar á 8. braut. Þórdís Geirsdóttir úr GKJ er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn í kvennaflokki. Sport 23. júlí 2005 00:01
Halda bæði forustunni Heiðar Davíð Bragason úr Kili og Þórdís Geirsdóttir úr Keili halda forustunni á Íslandsmótinu í golfi sem fer nú fram við frábærar aðstæður á Hólmsvelli í Leiru. Sport 22. júlí 2005 00:01
Þórdís efst Þórdís Geirsdóttir úr GK er með forystu í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer í Leirunni í Keflavík en fyrsti hringur af fjórum var leikinn í dag. Hún lék hringinn á 74 höggum, eða 2 höggum yfir pari. Sport 21. júlí 2005 00:01
Landsmótið í golfi hafið 63. Landsmótið í golfi hófst á Hólmsvelli í Leiru í morgun. Júlíus Rafnsson, forseti Golfsambandsins, sló upphafshöggið klukkan hálfsjö í morgun. 144 kylfingar taka þátt í mótinu sem núna fer fram í Leirunni í fimmta sinn. Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir eiga titil að verja. Sport 21. júlí 2005 00:01
Heiðar Davíð og Þórdís efst Heiðar Davíð Bragason úr Golfklúbbnum Kili er með tveggja högga forystu í karlaflokki eftir fyrsta hring af fjórum á Íslandsmótinu á Hólmsvelli í Leiru. Hjalti Pálmason, GOB, kom mjög á óvart með því að ná öðru sæti, lék á 69 höggum. Birgir Leifur Hafþórsson deilir þriðja sætinu með Inga Rúnari Gíslasyni .Þórdís Geirsdóttir úr GK... Sport 21. júlí 2005 00:01
Tiger á tólf undir Tiger Woods hefur tveggja högga forystu á Jose Maria Olazabal fyrir lokahringinn á Opna breska meistaramótinu í golfi. Woods er á tólf höggum undir pari, Olazabal á tíu undir og síðan eru þeir Retief Goosen og Colin Montgomerie á níu undir pari. Sport 17. júlí 2005 00:01
Armstrong í góðum málum Bandaríkjamaðurinn George Hincapie sigraði á 15.dagleið Frakklandshjólreiðanna Tour de France í dag , þegar hjólaður var 205.5 kílómetrar í Pýreneafjöllum. Lance Armstrong, landi Hincapies styrkiti stöðu sína í heildarkeppninni, en Ítalinn Ivan Basso, sem fylgdi honum fast eftir í dag, komst upp í 2. sætið. Sport 17. júlí 2005 00:01
Tiger enn í forystu Bandaríkjamaðurinn, Tiger Woods er með högga forystu á þá Colinn Montgomery og Jose Maria Olazabal þegar keppni er rúmlega hálfnuð á lokadegi Opna breska meistaramótsins í golfi sem fram fer á St. Andrews vellinum í Skotlandi. Það má nánast fullyrða að einhver af þeim þremeningum mun vinna mótið Staðan.... Sport 17. júlí 2005 00:01
Tiger færist nær sigri Tiger Woods er kominn með fjögurra högga forystu á þá Jose Maria Olazabal og Colin Montgomery. Tiger er á 14 höggum undir pari og ekkert virðist getta stöðvað kappan sem er í miklu stuði þessa stundina. Sport 17. júlí 2005 00:01
Tiger Woods sigraði á Opna breska Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods sigraði á Opna breska meistaramótinu í golfi sem var að ljúka á St.Andrews vellinum í Skotlandi. Þetta er annar risatitillinn sem Tiger vinnur í ár því fyrr á árinu vann hann bandaríska Masters mótið. Kylfingnum hafði einu sinni áður tekist að sigra á Opna breska en það árið 2000 en þá var einnig leikið á St.Andrews. Sport 17. júlí 2005 00:01
Tiger með tveggja högga forystu Tiger Woods er með tveggja högga forystu á Opna breska meistaramótinu í golfi fyrir lokadaginn. Tiger er á 12 höggum undir pari en næstur er Jose Maria Olazabal sem er 10 höggum undir pari. Staðan í mótinu... Sport 16. júlí 2005 00:01
Montgomery kominn í annað sæti Tiger Woods á nú aðeins eitt högg á Skotann Colin Montgomery á opna breska meistaramótinu í golfi. Þeir leika saman og eru nú á 11.holu. Sport 16. júlí 2005 00:01
Birgir á fimm undir pari Íslandsmeistarinn í golfi, Birgir Leifur Hafþórsson, lék síðasta hringinn á Texbond-mótinu við Gardavatn á einu yfir pari. Samtals lék Birgir Leifur á fimm höggum undir pari. Ekki er ljóst í hvaða sæti Birgir Leifur lendir en hann var nú áðan í 38. sæti. Sport 16. júlí 2005 00:01
Tiger að missa flugið? Tiger Woods er nú á 9. holu á Opna breska meistaramótinu í golfi og þarf að taka víti og tapar líklega höggi. Eins og staðan er núna er hann með tveggja högga forystu á næsta mann Retief Goosen. Staðan.... Sport 16. júlí 2005 00:01
Goosen höggi á eftir Tiger Suður Afríkubúinn Retief Goosen er búinn að leika mjög vel í dag á Opna breska meistaramótinu í golfi. Hann er nú aðeins höggi á eftir Tiger Woods sem er efstur á 10 höggum undir pari. Retief hefur nú leikið 16 holur í dag en Tiger aðeins þrjár. Vísir.is mun fylgsast vel með framvindu mála frá St. Andrews. Sport 16. júlí 2005 00:01
Tiger með fjögurra högga forystu Tiger Woods hefur fjögurra högga forystu á Colin Montgomerie þegar keppni á Opna breska meistaramótinu í golfi er hálfnuð. Woods var á ellefu undir pari en Montgomerie á sjö höggum undir pari. Þeir hefja keppni klukkan 14. Sport 16. júlí 2005 00:01
Olazabal höggi á eftir Tiger Jose Maria Olazabal er aðeins höggi á eftir Tiger Woods á Opna breska meistaramótinu í golfi. Tiger er á 11 höggum undir pari. Staðan núna.... Sport 16. júlí 2005 00:01
Tiger með tveggja högga forystu Tiger Woods er með tveggja högga forystu á Opna Breska meistaramótinu í golfi sem fram fer á St. Andrew vellinum í Skotlandi. Að loknum sex holum er Tiger á átta höggum undir pari en næstu menn, þar á meðal Vijay Singh, eru á sex höggum undir pari. Sport 15. júlí 2005 00:01
Birgir Leifur á sex undir pari Íslandsmeistarinn í golfi, Birgir Leifur Hafþórsson, lék í morgun á þremur höggum undir pari á opna Texbond-mótinu sem fram fer við Gardavatn á Ítalíu. Hann er því samtals á sex höggum undir pari eftir þrjá keppnisdaga. Birgir Leifur er í 21. sæti ásamt níu öðrum kylfingum. Sport 15. júlí 2005 00:01
Tiger kominn með góða forystu Tiger Woods er kominn með fjögurra högga forystu á Opna Breska meistaramótinu í golfi sem fram fer á St. Andrew vellinum í Skotlandi. Að loknum tíu holum er Tiger á tíu höggum undir pari. Sport 15. júlí 2005 00:01
Hamilton úr leik Sigurvegari Opna breska meistaramótsins í golfi í fyrra, Todd Hamilton frá Bandaríkjunum er úr leik. Hann náði ekki niðurskurðinum en lék hringina tvo á fjórum höggum yfir pari. Hamilton sigraði Suður-Afríkumanninn, Ernie Els í umspili í fyrra. Sport 15. júlí 2005 00:01
Tiger efstur að öðrum degi loknum Tiger Woods er með fjögurra högga forystu á Colin Montgomery þegar keppni á Opna breska meistaramótinu í golfi er hálfnuð. Tiger lék frábært golf í dag og fékk fimm fugla og engan skolla og er samanlagt á 11 höggum undir pari. Það er greinilegt að hann kann vel við sig á St.Andrew því hann sigraði þegar keppnin fór þar fram síðast, árið 2000 Sport 15. júlí 2005 00:01
Singh og Immelman komnir á 6 undir Vijay Singh og Trevor Immelman er komnir upp að hælum Tiger Woods á Opna Breska meistaramótinu í golfi sem nú fer fram á St.Andrews vellinum í Skotlandi. Immelman og Singh hafa lokið leik í dag og eru á sex höggum undir pari líkt og Tiger Woods, en Tiger Woods er að fara hefja leik eftir skamma stund. Sport 15. júlí 2005 00:01