Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í dag en meðal þess sem kom á borð hennar voru ölvaður aðili, slagsmál og umferðaróhapp. Innlent 14.4.2026 18:46
Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Nokkuð löng bið getur verið eftir plássi í skammtímadvöl í Kópavogi og eftir sértæku húsnæði. Tuttugu börn biðu í lok mars eftir dvöl í skammtímadvöl, elsta umsóknin er frá því í ágúst 2021. Þá bíða 28 eftir sértæku húsnæði. Meðalaldur umsækjenda er 39 ár og segir í samantekt velferðarsviðs bæjarins að þörfin muni fara verulega vaxandi hjá þeim sem yngri eru en 25 ára. Innlent 14.4.2026 07:55
Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Garðabær hefur í tveimur áföngum frá 2019 kynnt skipulag á Álftanesi á svokölluðu Norðurnesi, gegnt Bessastöðum. Meginatriði þessa skipulags er annars vegar nýr golfvöllur og hins vegar ný íbúðabyggð með sérbýli. Skoðun 3.4.2026 08:00
Ekki er allt sem sýnist í rekstri Garðabæjar Í yfirlýsingum bæjaryfirvalda í Garðabæ er rætt um sterkan rekstur og trausta afkomu. Þegar fjárhagsáætlunin er skoðuð nánar kemur annað í ljós. Tekjumódelið byggir of mikið á sölu lóða til að fegra myndina, og ef byggingamarkaðurinn kólnar, eins og fleiri og fleiri vísbendingar gefa til kynna, mun það bitna á þjónustu bæjarins, sem íbúar reiða sig á. Skoðun 26. mars 2026 18:00
Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Fjölga á leikskólaplássum á Hjallastefnuleikskóla í Garðabæ um 30 á næsta ári. Garðabær og Hjallastefnan hafa undirritað samkomulag um áherslur uppbyggingar skólasamfélags Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. Innlent 25. mars 2026 13:27
Rannsaka meint brot gegn barni í leikskóla á Álftanesi Barnavernd Garðabæjar skoðar nú hvort framið hafi verið brot á barnaverndarlögum á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi. Innlent 22. mars 2026 12:27
Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Íbúar í Salahverfi í Kópavogi óttast að óafturkræfur skaði verði unninn á helstu náttúruperlu hverfisins vegna fyrirhugaðra framkvæmda Garðabæjar. Innlent 19. mars 2026 21:00
Ekið á skólarútu Eitthvað var um meiðsli að sögn lögreglu eftir að ekið var á skólarútu í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ. Innlent 17. mars 2026 17:36
Kjartan Atli leiðir Samfylkinguna í Garðabæ Kjartan Atli Kjartansson fjölmiðlamaður og þjálfari leiðir framboðslista Samfylkingarinnar í Garðabæ. Listinn var samþykktur á fjölmennum félagsfundi nú fyrir stundu. Innlent 16. mars 2026 18:36
Smalaholtskógur: Náttúruperla eða fórnarkostur skipulags, og hver á að borga? Nú stöndum við á krossgötum. Nýtt deiliskipulag Garðabæjar fyrir Vetrarmýri og Smalaholt boðar miklar breytingar sem munu hafa bein áhrif á eitt dýrmætasta útivistarsvæði okkar. Skoðun 16. mars 2026 09:00
Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Brynju Dan Gunnarsdóttur hefur verið gert að víkja sem oddviti Framsóknar í Garðabæ. Hún segist hvorki munu taka sæti á lista flokksins í komandi kosningum né styðja flokkinn á nokkurn hátt. Innlent 14. mars 2026 11:12
Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Gunnar Þór Geirsson, formaður félags íslenskra heimilislækna, segir ekki raunsætt að fólk fái tíma hjá heimilislækni innan fimm daga eins og viðmið landlæknis geri ráð fyrir. Hann kallar eftir því að sérnám heimilislækna verði styrkt, gæði námsins sé í hættu. Innlent 13. mars 2026 08:52
Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Efstu sex sæti Miðflokksins í Garðabæ hafa verið staðfest af stjórn kjördæmafélags Suðvesturkjördæmis. Lárus Guðmundsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, verður áfram oddviti flokksins. Innlent 12. mars 2026 13:34
Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Meðalbiðtími eftir næsta lausa tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu er að jafnaði 27 dagar samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Aðeins tvær heilsugæslur standast viðmiði landlæknis. Innlent 12. mars 2026 06:02
Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Það stefnir í talsverða spennu hjá Framsóknarflokknum í Garðabæ á laugardag þegar uppstillingarnefnd kynnir lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Eins og staðan er í dag er vitað til þess að tveir hafi boðið sig fram sem oddvita flokksins, Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi flokksins í Garðabæ, og Hlynur Bæringsson varamaður hennar. Innlent 11. mars 2026 11:12
Ógnaði fólki með hníf og beitti svo lögreglumann ofbeldi Einn var handtekinn á skemmtistað í miðbænum í nótt eftir að hafa ógnað fólki með hnífi. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann beitti svo lögreglumann ofbeldi. Samkvæmt dagbók lögreglu eru bæði málin til rannsóknar og í ferli. Innlent 8. mars 2026 07:19
Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes Hafnarfjarðarvegi var lokað um stund í kvöld vegna áreksturs þegar þrír bílar runnu saman vegna hálku á veginum. Enginn er illa slasaður. Innlent 7. mars 2026 21:06
Þessi leiða Viðreisn í Garðabæ Guðlaugur Kristmundsson bæjarfluttrúi, Harpa Þorsteinsdóttir varabæjarfulltrúi, Jón Bjarni Steinsson lögfræðingur, skipa efstu þrjú sætin á lista Viðreisnar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Innlent 5. mars 2026 19:31
Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Slæm hola í Elliðavatnsvegi í Hafnarfirði tók fjóra bíla úr umferð í morgun. Búið er að gera við holuna en vegfarandi segir að viðhald á vegkaflanum sé lítið sem ekkert. Hann vonast til að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði og Vegagerðin gyrði sig í brók. Innlent 4. mars 2026 22:28
Rannsaka frelsissviptingu og fíkniefnavörslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar frelsissviptingu og vörslu fíkniefna. Málið heyrir undir umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ. Innlent 4. mars 2026 16:48
„Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Bróðir Margrétar Löf, sem var dæmd í sextán ára fangelsi fyrir að hafa orðið föður þeirra að bana, skilur að upp hafi vaknað spurningar um meint aðgerðaleysi hans vegna heimilisofbeldis sem faðir hans varð fyrir en samband hans við fjölskylduna hafi ekki verið hefðbundið fjölskyldumynstur. Hann gagnrýnir aðgerða- og úrræðaleysi heilbrigðisstéttarinnar. Innlent 3. mars 2026 11:43
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. Veður 3. mars 2026 06:34
Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Nýr skóli fyrir einhverf börn, Þorláksskóli, verður opnaður í Garðabæ í haust. Vigdís Gunnarsdóttir hefur unnið að stofnun skólans frá því í fyrra en sonur hennar verður einn fimm nemenda skólans. Vigdís segist snemma hafa gert sér ljóst að sonur hennar, sem hefur sína skólagöngu í haust, myndi ekki þrífast í umhverfi hefðbundins skólahverfis. Innlent 25. febrúar 2026 10:17
Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Sigurbjörn Bárðarson hestaþjálfari segist hafa orðið vitni að því þegar Margrét Halla Hansdóttir Löf beitti móður sína ofbeldi. Nokkrum dögum síðar hafi hún myrt föður sinn. Sigurbjörn leigði fjölskyldunni bás í hesthúsi sínu og segist lengi hafa furðað sig á því hversu illa Margrét hafi komið fram við foreldra sína. Innlent 24. febrúar 2026 00:17