Lögregla skaut árásarmanninn í Strassborg til bana Cherif Chekatt hafði verið á flótta allt frá því að árásin var gerð á jólamarkaðnum á Klebertorgi í Strassborg þar sem þrír létust og fjöldi særðist. Erlent 13. desember 2018 21:27
Enn leitað að árásarmanninum og þriðji látinn Lögreglan í Frakklandi leitar enn að Chérif Chekatt, sem grunaður er um að hafa skotið minnst þrjá til bana í árás á jólamarkaði í Strassborg á þriðjudaginn. Erlent 13. desember 2018 13:26
Birta nafn og mynd af hinum grunaða í Strassborg Lögregla í Frakklandi hefur óskað eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manninum sem skaut og drap tvo og særði fleiri á jólamarkaði í frönsku borginni Strassborg í gærkvöldi. Erlent 12. desember 2018 21:59
Fimm handteknir vegna skotárásarinnar í Strassborg Mögulegt er talið að byssumaðurinn hafi flúið yfir landamærin til Þýskalands. Erlent 12. desember 2018 09:01
Hundruð lögreglumanna leita árásarmannsins í Strassborg Maðurinn sem drap þrjá og særði tólf til viðbótar á jólamarkaði í gærkvöldi er sagður tæplega þrítugur innfæddur íbúi Strassborgar. Erlent 12. desember 2018 07:14
Nokkrir særðir eftir skotárás í Strassborg Skothvellir heyrðust nærri jólamarkaði. Erlent 11. desember 2018 20:22
Macron ávarpar þjóðina: Lofar að hækka lágmarkslaun og gera breytingar á skattkerfinu Macron ætlar að hækka laun þeirra lægst launuðu um hundrað Evrur í hverjum mánuði frá ársbyrjun 2019 og þá hyggst hann hætta við ætlaða skattahækkun á eftirlaunaþega. Erlent 10. desember 2018 19:50
Macron forseti ávarpar þjóðina og boðar tafarlausar aðgerðir Gulu vestin mótmæltu Emmanuel Macron Frakklandsforseta og ríkisstjórn hans fjórðu helgina í röð. Hann mun ávarpa frönsku þjóðina í kvöld og boða einingu og áþreifanlegar og tafarlausar aðgerðir. Erlent 10. desember 2018 09:00
Íslendingur í París lokaðist inni vegna mótmæla „gulvestunga“ Íslendingur í jólaverslunarleiðangri í París, endaði á að vera lokuð inni á bar, upplifa sársaukann sem fylgir táragasi og verða vitni að einum stærsta mótmæladegi í borginni í gær. Innlent 9. desember 2018 17:03
Rússneskar samfélagsmiðlasíður kynda undir mótmælum gulu vestanna Twitter-síður sem enduróma skoðanir stjórnvalda í Kreml deila nú vafasömum fréttum um mótmæli gulu vestanna svokölluðu í Frakklandi. Erlent 9. desember 2018 11:00
Tæplega 1.700 handtekin í mótmælunum: „Macron, segðu af þér“ Tæplega 17.00 mótmælendur voru handteknir í mótmælum gulvestunga í Frakklandi í gær og 1.220 manns eru enn í haldi lögreglu. Þetta var fjórði laugardagurinn í röð sem mótmælin eru haldin en gærdagurinn einkenndist af hörðum átökum óeirðarlögreglu og mótmælenda. Erlent 9. desember 2018 10:02
Hundruð handteknir í Parísarborg: „Maður sá bara þennan ótta“ Mikill viðbúnaður er í París vegna mótmæla Gulu vestanna. Búið er að girða af helstu ferðamannastöðum borgarinnar og þá hafa kaupmenn skellt í lás. Erlent 8. desember 2018 11:38
Mikill viðbúnaður fyrir mótmælin í dag Mótmælendur sem kalla sig Gulu vestin ætla að halda áfram að mótmæla ríkisstjórn Emmanuels Macron jafnvel þó að hann hafi lúffað fyrir þeim með skatta á eldsneyti í vikunni. Erlent 8. desember 2018 07:30
Eiffel-turninum og Louvre lokað vegna mótmæla Vinsælir ferðamannastaðir í París verða lokaðir á morgun af ótta við að fjöldamótmæli brjótist út í borginni um helgina. Erlent 7. desember 2018 08:17
Fastur á milli steins og sleggju Forseti Frakklands ákvað að hækka ekki eldsneytisskatt. Þrátt fyrir það halda mótmæli Gulu vestanna áfram. Umhverfissinnar telja að skattahækkanir sem þessar séu nauðsynlegar til þess að draga úr loftslagsbreytingum. Erlent 7. desember 2018 06:00
Vilja slaka á móttökukröfum Frakkar og Þjóðverjar leggja til að þau ríki Evrópusambandsins sem neita að taka á móti þeim fjölda flóttamanna sem kveðið er á um í samþykktum fái í staðinn að borga sig út úr samkomulaginu. Erlent 7. desember 2018 06:00
Undirbúa sig fyrir frekari mótmæli Parísarbúar undirbúa sig nú fyrir frekari mótmæli og óeirðir um helgina og hefur ríkisstjórn Frakklands varað sérstaklega við því. Erlent 6. desember 2018 15:18
Hætta að nota krókódíla- og slönguskinn í vörum sínum Franski tískurisinn Chanel hefur tilkynnt að það muni hætta að nota framandi dýraskinn við framleiðslu á vörum sínum. Viðskipti erlent 4. desember 2018 14:00
Hætta við skattahækkunina Frönsk stjórnvöld hafa ákveðið að hætta við fyrirhugaða díselskattshækkun sem leitt hefur til hatrammra fjöldamótmæla í landinu. Erlent 4. desember 2018 07:55
Macron er í töluverðu klandri Fjöldamótmæli síðustu þriggja helga bæta gráu ofan á svart hjá Frakklandsforseta. Mótmælin snúast í auknum mæli um hann sjálfan. 69 prósent Frakka lýsa sig andvíg forseta sínum og stjórnarandstæðingar segja Macron ekki skilja reiðina. Erlent 4. desember 2018 06:00
Umfangsmestu óeirðir í áratug Emmanuel Macron, forseti Frakklands, íhugar nú að auka öryggisráðstafanir í París í kjölfar umfangsmikilla mótmæla vegna aukinna skatta og hækkandi kostnaðar. Erlent 2. desember 2018 22:30
Neyðarfundur í París vegna mótmælanna Yfir fjögur hundruð manns hafa verið handteknir og 130 slasast í mótmælunum sem beinast gegn stjórn forsetans. Erlent 2. desember 2018 14:00
Ætla að slökkva á fjórtán kjarnaofnum fyrir 2035 Frakkar hyggjast slökkva á fjórtán af 58 kjarnaofnum franska ríkisorkufyrirtæksins EDF fyrir árið 2035. Erlent 27. nóvember 2018 13:13
Franskur embættismaður grunaður um njósnir Háttsettur franskur embættismaður hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa njósnað fyrir norður-kóresk stjórnvöld. Erlent 27. nóvember 2018 08:54
Táragasi og vatnsbyssum beitt á mótmælendur í París Mikill mannfjöldi, víðs vegar um landið, hefur mótmælt hækkandi eldsneytisverði síðustu tvær vikurnar. Erlent 24. nóvember 2018 10:43
Frakkar skila Benín 26 styttum Emmanuel Macron, forseti Frakklands hefur ákveðið að 26 benínskum listaverkum verið skilað til upprunalandsins. Verkin hafa verið í vörslu Frakka síðan árið 1892 þegar að Frakkar áttu í stríði við konungsríkið Dahomey sem í dag er Benín. Verkin 26 eru nú í Quai Branly safninu í París. BBC greinir frá. Erlent 23. nóvember 2018 22:26
Samþykktu drög að pólitískri viljayfirlýsingu um samskiptin eftir Brexit Forsætisráðherra Bretlands hefur fagnað drögum að pólitískri viljayfirlýsingu um framtíðarsamskipti Bretlands og Evrópusambandsins sem samþykkt voru í morgun. Erlent 22. nóvember 2018 13:27
Vill banna bílaumferð í miðborg Parísar Borgarstjóri Parísar, Anne Hidalgo, kveðst stefna að því að fjögur af tuttugu hverfum borgarinnar verði bíllaus. Erlent 19. nóvember 2018 13:52
Kona lést þegar ekið var á mótmælendur Kona sem var stödd á mótmælum gegn hækkuðum álögum á eldsneyti í Frakklandi lést þegar ekið var inn í hópinn í suð-austurhluta Frakklands í dag. Erlent 17. nóvember 2018 15:10
Bræði og óreiða í Hvíta húsinu Síðustu dagar í Hvíta húsinu hafa einkennst af mikilli bræði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og óreiðu en von er á miklum sviptingum meðal starfsmanna forsetans. Erlent 14. nóvember 2018 12:00