Landsliðsþjálfarinn viðurkennir að hafa sparkað í konuna sína Gregg Berhalter, þjálfari bandaríska karlalandsliðsins í fótbolta, er í fréttum vegna atviks sem gerðist fyrir mörgum áratugum síðan. Fótbolti 4. janúar 2023 11:30
Forseti FIFA gagnrýndur fyrir að taka af sér sjálfu við lík Pele Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur tjáð sig um sjálfuna sem hann tók af sér við lík brasilíska knattspyrnugoðsins Pele, á líkvökunni á heimavelli Santos. Fótbolti 4. janúar 2023 07:30
Ekkert til í því að Ronaldo geti komið á láni ef liðið kemst í Meistaradeildina Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcastle, segir ekkert til í þeim sögusögnum að portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo geti komið á láni til félagsins frá Al-Nassr ef Newcastle tekst að tryggja sér Meistaradeildarsæti. Fótbolti 4. janúar 2023 07:01
„Skandall að við höfum ekki fengið tvær vítaspyrnur“ Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var vægast sagt ósáttur eftir markalaust jafntefli sinna manna gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Fótbolti 3. janúar 2023 22:57
Rodrygo hetja Real Madrid gegn D-deildarliði Cacereno Spænska stórveldið Real Madrid vann nauman 0-1 sigur er liðið heimsótti D-deildarlið Cacereno í spænsku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld, Copa del Rey. Fótbolti 3. janúar 2023 22:03
Fjórði deildarsigur United í röð Manchester United hefur nú unnið fjóra leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni eftir að liðið vann öruggan 3-0 sigur gegn Bournemouth í kvöld. Enski boltinn 3. janúar 2023 21:53
Brighton valtaði yfir Everton og Mitrovic skaut Fulham upp að hlið Liverpool Brighton vann afar öruggan 1-4 útisigur er liðið sótti Everton heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Á sama tíma vann Fulham nauman 0-1 sigur gegn Leicester. Fótbolti 3. janúar 2023 21:51
Newcastle stöðvaði sigurgöngu Arsenal Eftir fimm sigurleiki í röð i ensku úrvalsdeildinni þurfti topplið Arsenal að sætta sig við markalaust jafntefli er liðið tók á móti Newcastle í kvöld. Enski boltinn 3. janúar 2023 21:39
Cody Gakpo formlega orðinn leikmaður Liverpool Hollenski framherjinn Cody Gakpo er formlega orðinn leikmaður Liverpool nú þegar búið er að skrifa undir alla nauðsynlega pappíra og atvinnuleyfi á Englandi er komið í hús. Fótbolti 3. janúar 2023 20:31
Þúsundir fylgdu Pelé síðasta spölinn Þúsundir manna voru samankomnir úti á götum Santos í Brasilíu í dag til að fylgja knattspyrnugoðsögninni Pelé síðasta spölinn. Pelé var lagður til hinstu hvílu á níundu hæð í kirkjugarði í boginni til heiðurs föður hans sem lék með töluna níu á bakinu á sínum ferli. Fótbolti 3. janúar 2023 20:00
Ronaldo segir að mörg topp félög hafi reynt að krækja í sig Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo segist hafa fengið boð um að ganga til liðs við mörg af topp félögum Evrópu áður en hann ákvað að semja loks við Al Nassr í Sádí-Arabíu. Fótbolti 3. janúar 2023 18:01
Hörður og félagar byrja árið á sigri Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon og liðsfélagar hans í Panathinaikos hófu nýtt ár á sigri í grísku úrvalsdeildinni. Liðið leiðir deildina. Fótbolti 3. janúar 2023 17:21
Borgaði 76 milljónir úr eigin vasa til að geta farið til æskufélagsins Fyrrum leikmaður Arsenal var svo ákveðinn í að komast aftur heim til æskufélagsins að hann var tilbúinn að kaupa sjálfur upp samninginn sinn. Fótbolti 3. janúar 2023 16:00
Lítið kraftaverk hjá Frenkie de Jong Líklega hefur ekki farið fram hjá mörgum fótboltaáhugamönnum spjaldagleði spænska dómarans Antonio Mateu Lahoz. Fótbolti 3. janúar 2023 14:01
„Finnst alltaf svo gaman þegar maður sér íþróttastelpur með kvenmannsnafn á treyjunni sinni“ Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í fótbolta, fagnar meiri sýnileika fótboltakvenna og segir hann lykilinn að því auknum vinsældum kvennafótboltans. Fótbolti 3. janúar 2023 13:00
Saka Barcelona um að hafa notað ólöglegan leikmann Espanyol hefur sent inn kvörtun til spænska knattspyrnusambandsins og heldur því fram að Barcelona hafi notað ólöglegan leikmann í Katalóníuslagnum um helgina. Fótbolti 3. janúar 2023 12:31
Sökuð um að skipuleggja líkamsárás á liðsfélaga en fann sér nýtt lið Franska knattspyrnukonan Aminata Diallo sætir enn þá rannsókn í Frakklandi vegna líkamsárásar á fyrrum liðsfélaga sinn en hún er nú búinn að fá nýjan samning. Fótbolti 3. janúar 2023 12:00
Gamla liðinu hennar Glódísar Perlu hent út úr sænsku deildinni Eskilstuna United endaði í áttunda sæti í sænsku kvennadeildinni í fótbolta á síðustu leiktíð og var 28 stigum frá fallsæti. Það breytir ekki því að liðinu hefur verið hent út úr sænsku deildinni. Fótbolti 3. janúar 2023 10:30
Valgeir Lunddal á lista UEFA yfir mest spennandi leikmenn Íslenski bakvörðurinn Valgeir Lunddal Friðriksson er á lista evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA, yfir þá leikmenn sem gætu sprungið út á nýju ári. Fótbolti 3. janúar 2023 09:01
Vill að öll lönd heims nefni leikvang í höfuðið á Pelé Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, sagði í jarðarför hins brasilíska Pelé að hann myndi biðja allir þjóðir heims um að nefna einn leikvang í höfuðið á leikmanninum goðsagnakennda. Fótbolti 3. janúar 2023 07:31
Ósáttur Klopp segir Brentford „beygja reglurnar“ Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, var verulega ósáttur með 3-1 tap sinna manna gegn Brentford í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Þó myndbandsdómari leiksins hafi tvívegis tekið mark af Brentford í kvöld sá Klopp sig samt sem áður tilneyddan til að gagnrýna dómgæsluna og leikstíl Brentford að leik loknum. Enski boltinn 2. janúar 2023 21:31
Annáll Bestu deildar kvenna: Ekkert fékk Val stöðvað Valur kom, sá og sigraði í Bestu deild kvenna í sumar. Eftir óvænt tap gegn Þór/KA á Akureyri í 2. umferð var sett í fimmta gír og spólað yfir önnur lið, í deild og bikar. Íslenski boltinn 2. janúar 2023 20:31
Annáll Bestu deildar karla: Grænn var litur sumarsins 2022 Besta deild karla var gerð upp í Íþróttasíld Stöðvar 2 á gamlársdag. Segja má að Breiðablik hafi stolið senunni árið 2022 en eftir að missa titilinn úr greipum sér árið 2021 kom ekkert annað til greina en að landa þeim stóra. Sumarið 2022 var grænt svo vægt sé tekið til orða. Íslenski boltinn 2. janúar 2023 20:00
Brentford stöðvaði sigurgöngu Liverpool Brentford vann magnaðan 3-1 sigur á Liverpool í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fyrir leik hafði Liverpool unnið fjóra deildarleiki í röð. Sigurinn er enn merkilegri fyrir þær sakir að Ivan Toney, markahæsti leikmaður Brentford á leiktíðinni, var fjarri góðu gamni. Enski boltinn 2. janúar 2023 19:30
Leikmannahópur Freys hjá Lyngby minnkar Íslendingalið Lyngby, botnlið dönsku úrvalsdeildarinnar, hefur misst tvo leikmenn nú þegar í janúarglugganum. Hvort liðið muni styrkja sig áður en leikar hefjast að nýju í deildinni mun koma í ljós. Fótbolti 2. janúar 2023 19:00
Lukaku segir alla vita hvað hann vill Belgíski framherjinn Romelu Lukaku segir allan heiminn vita hvað hann vill, að Inter Milan kaupi sig til baka frá Chelsea en leikmaðurinn er sem stendur á láni hjá Inter frá Chelsea. Þá telur Lukaku að framherjinn fyrrverandi Thierry Henry sé rétti maðurinn til að stýra belgíska landsliðinu. Enski boltinn 2. janúar 2023 18:16
Vill Mourinho sem næsta Bond skúrk Verðlaunaleikstjórinn Sam Mendes, sem leikstýrði tveimur kvikmyndum í James Bond-seríunni, segir að José Mourinho, þjálfari Roma á Ítalíu, væri frábær sem skúrkur í slíkri mynd. Fótbolti 2. janúar 2023 17:31
Jón Daði á skotskónum Jón Daði Böðvarsson komst á blað er Bolton Wanderers lagði Barnsley í ensku C-deildinni í fótbolta í dag. Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley unnu Swansea í B-deildinni þarlendis. Enski boltinn 2. janúar 2023 17:05
Mbappé sló við Haaland og öllum hinum á árinu 2022 Norðmaðurinn Erling Braut Haaland hefur raðað inn mörkum á þessu tímabili en hann endaði samt langt á eftir Frakkanum Kylian Mbappé þegar tekin voru saman öll mörk leikmanna á árinu. Fótbolti 2. janúar 2023 15:01
„Við erum ekki að spila Monopoly“ Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, ýjaði að því á blaðamannafundi að frekari viðskipta sé ekki að vænta hjá félaginu í janúar. Liðið festi kaup á Cody Gakpo frá PSV í upphafi gluggans. Enski boltinn 2. janúar 2023 14:30