Hamilton hlakkar til að keppa á Spáni Þrátt fyrir að hafa orðið fyrir kynþáttafordómum áhorfenda á brautinni í Barcelona í febrúar þá er Hamilton fullur tilhlökkunar fyrir kappaksturinn þar um helgina. Formúla 1 24. apríl 2008 10:45
Keppir Super Aguri ekki á Spáni? Framtíð japanska Super Aguri liðsins í Formúlunni er í mikilli óvissu. Ekki er ljóst hvort liðið verði með í kappakstrinum á Spáni um komandi helgi. Formúla 1 23. apríl 2008 12:28
Alonso vill bíl sem getur sigrað Fernando Alonso segist vera líklegri til að halda tryggð við Renault ef liðið getur komið með bíl sem getur unnið keppnir. Alonso fór aftur til Renault og skrifaði undir tveggja ára samning en hefur aðeins fengið sex stig úr þremur fyrstu keppnum tímabilsins. Formúla 1 22. apríl 2008 10:31
Webber vill losna við Mosley Mark Webber, ökumaður Red Bull-liðsins í Formúlu 1, segir að Max Mosley hafi orðið íþróttinni til skammar. Formúla 1 19. apríl 2008 13:30
Framtíð Mosley ræðst í júní Framtíð Max Mosley, forseta Alþjóða Akstursíþróttasambandsins, mun ráðast á þingi sambandsins þann 3. júní næstkomandi. Þar mun fara fram leynileg kosning félagsmanna um hvort Mosley þyki stætt á að halda starfinu eftir hneyksli í einkalífinu. Formúla 1 9. apríl 2008 16:45
Hamilton hefur farið aftur Fyrrum heimsmeistarinn Niki Lauda segir að ungstirninu Lewis Hamilton hjá McLaren hafi farið aftur frá því í fyrra. Hamilton náði aðeins 13. sæti í Barein-kappakstrinum um helgina og hefur alls ekki náð sér á strik síðan hann sigraði á opnunarmótinu í Ástralíu. Formúla 1 8. apríl 2008 11:23
Hamilton: Ég brást liðinu Lewis Hamilton náði sér ekki á strik í Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 um helgina og hafnaði í 13. sæti eftir mistök í ræsingu. Hann missti fyrir vikið toppsætið í stigakeppni ökuþóra. Formúla 1 7. apríl 2008 15:45
Massa ók til sigurs í Barein Felipe Massa, ökumaður Ferrari, vann öruggan sigur í Barein kappakstrinum í dag. Massa tók snemma forystuna af Robert Kubica sem var á ráspól. Formúla 1 6. apríl 2008 13:24
Pólverji á ráspól í Barein Pólski ökuþórinn Robert Kubica, sem ekur fyrir Sauber, verður á ráspól í Formúlu 1 kappakstrinum í Barein á morgun. Hann var fljótastur allra í tímatökunni í morgun. Felipe Massa hjá Ferrari var næstfljótastur. Formúla 1 5. apríl 2008 13:01
Max Mosley: Ég gerði ekkert rangt Max Mosley, forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins, ætlar í mál við breska vikublaðið News of the World sem birti frétt síðastliðinn sunnudag um hópkynlíf Mosleys með vændiskonum í nasistabúningum. Hann segist ekkert rangt hafa gert. Formúla 1 5. apríl 2008 11:38
Rosberg ók hraðast á lokaæfingunni Finnski ökuþórinn Niko Rosberg, sem ekur fyrir Williams-liðið, var fljótastur allra á lokaæfingu fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Barein sem lauk í morgun. Þar með náði Rosberg að skjóta Ferrari-ökumanninum Felipe Massa ref fyrir rass en hann bar höfuð og herðar yfir ökumenn á æfingum í gær. Formúla 1 5. apríl 2008 11:14
Hamilton lenti í óhappi Lewis Hamilton átti ekki góðan dag í Barein í dag þegar lenti í árekstri og þurfti að hætta keppni. Hann slapp þó ómeiddur og verður með í keppninni um helgina. Formúla 1 4. apríl 2008 13:16
Aukinn þrýstingur á Mosley um að hætta Aukins þrýstings gætir nú á Max Mosley, yfirmann Alþjóða Akstursíþróttasambandsins, um að segja af sér í embætti. Hann hefur verið borinn þungum sökum vegna hegðunar sinnar í einkalífinu. Formúla 1 4. apríl 2008 13:10
Ferrari með yfirburði Ferrari bílarnir voru í nokkrum sérflokki á fyrstu æfingunum fyrir Barein kappaksturinn í Formúlu 1. Brasilíumaðurinn Felipe Massa var á meðal fyrstu manna út á brautina og náði bestum tíma allra og félagi hans Kimi Raikkönen kom næstur. Lewis Hamilton á McLaren náði þriðja besta tímanum. Formúla 1 4. apríl 2008 09:28
Krísufundur vegna Mosley Max Mosley hefur farið fram á sérstakan krísufund hjá Alþjóða Akstursíþróttasambandinu í kjölfar alvarlegra ásakana sem hann hefur verið borinn í fjölmiðlum að undanförnu. Formúla 1 3. apríl 2008 17:28
F1-lið fordæma Mosley Fjórir bílaframleiðendur sem eiga keppnislið í Formúlu 1-mótaröðinni hafa fordæmt hegðun Max Mosley, forseta Alþjóða akstursíþróttasambandsins. Formúla 1 3. apríl 2008 10:58
Mosley ætlar ekki að segja af sér Max Mosley, formaður Alþjóða akstursíþróttasambandsins, hefur beðist afsökunar á framferði sínu en ætlar ekki að segja af sér sem formaður sambandsins. Formúla 1 2. apríl 2008 10:05
Mosley tók þátt í nasistaorgíu með fimm vændiskonum Helgarblaðið News of the World hefur undir höndum myndband sem sagt er að sýni Max Mosley, forseta Alþjóða akstursíþróttasambandsins, í kynlífsleikjum með fimm vændiskonum í Lundúnum. Formúla 1 30. mars 2008 14:28
Sérefni um Kimi Raikkönen hjá Stöð 2 Sport Sérstakur umræðuþáttur um Kimi Raikkönen og næsta Formúlu 1 mót er í undirbúningi um helgina hjá Stöð 2 Sport, en stöðinni áskotnaðist efni um kappan frá hans yngri árum. Efnið hefur aldrei verið sýnt hérlendis og á fimmtudaginn verða sérstakir aðdáendur Raikkönen hérlendis kallaðir til í þættinum Rásmarkið. Formúla 1 30. mars 2008 00:20
Schumacher deilir út sektarfé McLaren Michael Schumacher er í nefnd sem ákveður hvað verður gert við þá peninga sem McLaren þurfti að borga í sekt vegna njósnamálsins í fyrra. Formúla 1 27. mars 2008 09:36
Toyota nærri toppliðunum í Formúlu 1 Jarno Trulli telur að Toyota sé komið í þá stöðu að vera rétt á eftir toppliðunum í Formúlu 1. Hann varð í fjórða sætií Malasíu um helgina. Næsta mót er í Barein um aðra helgi og þar æfði Toyota í vetur ásamt Ferrari, sem gæti komið liðsmönnum til góða Formúla 1 27. mars 2008 09:19
Eddie Jordan lagði stein í götu Force India Írinn Eddie Jordan lét leggja steina í innkeyrsluna hjá Force India liðinu á Silverstone í Bretlandi. Hann segir liðið ekki hafa að fullu greitt skuldir sínar við sig. Hann seldi lið sitt til Midland, sem aftur seldi Force India. En allt hefur ekki verið gert upp. Formúla 1 26. mars 2008 23:37
McLaren færði Kovalainen sjálfstraust Ron Dennis, yfirmaður McLaren liðsins, segir að Heikki Kovalainen hafi verið brotinn niður hjá Renault en McLaren hafi byggt hann upp á ný og fært honum sjálfstraust. Formúla 1 26. mars 2008 17:14
Hættir Alonso hjá Renault? Fernando Alonso segir að sér sé frjálst að hætta hjá liði Renault eftir yfirstandandi keppnistímabil í Formúlu 1. Formúla 1 25. mars 2008 15:46
Kristján keppti í fyrsta Formúlu 3 mótinu Kristján Einar Kristjánsson keppti í sinni fyrstu Formúlu 3 keppni á Bretlandseyjum í dag. Hann keppti í tveimur umferðum og varð í fimmt sæti í þeirri fyrri og sjötta sæti í þeirri seinni í sínum flokki. Formúla 1 24. mars 2008 17:33
Raikkönen: Nokkuð auðvelt Kimi Raikkönen segir að kappaksturinn í Malasíu í morgun hafi verið sér nokkuð auðveldur eftir fyrsta viðgerðarhléið. Formúla 1 23. mars 2008 12:46
Raikkonen vann í Malasíu Finninn og heimsmeistarinn Kimi Raikkönen fagnaði sigri í Formúlu 1-keppninni í Malasíu í morgun eftir að félagi hans, Felipe Massa, datt úr leik um miðja keppni. Formúla 1 23. mars 2008 08:41
Dómarar refsa ökumönnum McLaren Dómarar Formúlu 1 mótsins í Malasíu ákváðu í hádeginu að refsta Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton fyrir að hafa truflað Nick Heidfeld á BMW og Fernando Alonso á Renault í lokahring þeirra í tímatökunni. Formúla 1 22. mars 2008 11:55
Ökumenn McLaren kallaðir fyrir dómara Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton voru kallaðir fyrir dómara mótsins á Sepang brautinni í dag, eftir athugasemd frá Nick Heidfeld og Fernando Alonso. Þeir töldu að McLaren hefðu sýnt vítavert gáleysi þegar þeir hægðu á bílnum sínum eftir að hafa lokið sínum hraðasta hring. Formúla 1 22. mars 2008 11:21
Massa fremstur á ráslínu í Malasíu Félagarnir Felipe Massa og Kimi Raikkönen verða frremstir á ráslínu í malasíska kappakstrinum á aðfaranótt sunnudags. Massa náði besta tíma í tímatökum í nótt og Raikkönen kom honum næstur. Formúla 1 22. mars 2008 07:49