
Gosmóðan komin til Vestfjarða: „Ef þú getur ekki komið að gosinu kemur gosið til þín“
Gosmóðan úr eldgosinu í Litla-Hrúti er nú komin til Vestfjarða. Búast má við því að hún haldi þaðan til austurs í átt að Tröllaskaga.
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það níunda varð norðan Grindavíkur í ágúst 2024.
Gosmóðan úr eldgosinu í Litla-Hrúti er nú komin til Vestfjarða. Búast má við því að hún haldi þaðan til austurs í átt að Tröllaskaga.
Gossvæðinu á Reykjanesi verður lokað klukkan sex í kvöld vegna slæmrar hegðunar fólks. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir líklegt að aðgengi fólks að eldstöðvunum verði áfram takmarkað á næstunni enda sé engin ástæða fyrir því að ferðamenn geti haft aðgang að eldstöðvum allan sólarhringinn.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að loka aðgengi að gosstöðvunum við Litla-Hrút klukkan 18 í kvöld. „Erfiðlega gekk að hafa stjórn á fólki í gærkvöldi og nú sem oft áður er það tiltölulega fámennur hópur sem skemmir fyrir öllum hinum. Það hefur framangreindar afleiðingar að loka þarf gönguleiðum tímanlega,“ segir í tilkynningu.
Því hefur verið spáð að gosmóða muni liggja yfir höfuðborgarsvæðinu fram á þriðjudag en árrisulir íbúar höfuðborgarsvæðisins tóku vafalítið eftir því í morgun að hún er heldur minni en í gær. Veðurfræðingur segir þó að hún komi líklegast til með að leggjast af þunga á svæðið síðdegis.
Veðurfræðingur býst við áframhaldandi gosmóðu og mengun á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni fram yfir helgi. Ekki er búist við vaxandi suðaustanátt fyrr en á þriðjudag. Loftgæðasérfræðingur hjá Umhverfisstofnun hvetur þá sem eru veikir fyrir að hafa hægt um sig.
Myndband náðist af því þegar hraunáin úr gosinu við Litla-Hrút gleypti jarðveg sem myndað hafði vegg við hraunána í gær. Augnablikið má horfa á hér að neðan.
Gosmóða liggur yfir höfuðborginni í bland við þokuloft og því lítið skyggni á svæðinu. Esjan sem vanalega sést út um gluggann frá höfuðstöðvum fréttastofu er horfin inn í móðuna.
Nokkur gosmóða er nú suðvestanlands og á Suðurlandi sem dregur úr skyggni auk þess sem SO2 gasmengun eða brennisteinsdíoxíð frá eldgosinu mælist í dag á svæðinu frá Vogum að Sandgerði. Lögreglan á Suðurnesjum leggur áherslu á að ekki sé farið með ung börn að gosstöðvunum á Reykjanesi en aðstoða þurfti fjölskyldu með tvo lítil úrvinda börn á svæðinu í nótt.
Gossvæðið við Litla Hrút á Reykjanesi er opið í dag en lögregla leggur áherslu á að ekki sé farið með börn á svæðið og að fólk með hjarta- eða lungnasjúkdóma gangi ekki að gosinu.
Vigdísarvallavegur var opnaður umferð á ný í dag sem gefur færi á styttri gönguleið að gosstöðvunum. Skiptar skoðanir eru þó um hvort hún sé betri.
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir að búast megi við sífellt kröftugri eldgosum í þeirri hrinu Reykjaneselda sem nú sé hafin. Eldgos verði nær þéttbýli og með hraunrennsli til byggða.
Tómas Guðbjartsson, göngugarpur og hjarta-og lungnaskurðlæknir, segist ekki mæla með því fyrir hvern sem er að fara Vigdísarvallaleið að gosstöðvunum við Litla-Hrút. Opnað var fyrir umferð um leiðina í dag.
Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumatskortið fyrir gosstöðvarnar við Litla-Hrút. Hættusvæðið þar sem ný gosop geta myndast hefur nú verið stækkað í suðvestur.
Almannavarnir biðla til fólks að ganga ekki að Litla-Hrúti frá Vigdísarvallavegi sem var opnaður í morgun. Þó það sé styttra að eldgosinu í beinni loftlínu þá er engin stikuð gönguleið þaðan og leiðin því bæði erfiðari og hættulegri.
Opið verður að gosstöðvunum við Litla-Hrút í dag frá Suðurstrandavegi. Litlar breytingar hafa orðið á gosstöðvunum í nótt. Ný gönguleið að gosinu verður opnuð í dag.
Lítið virðist vanta upp á að hraun frá gosstöðvunum við Litla-Hrút geti farið að renna yfir vatnaskil til norðurs í átt að Faxaflóa og Reykjanesbraut, miðað við myndir sem teknar voru í gær af eldgígnum og hrauntjörninni norðan hans.
Opnað hefur verið fyrir aðgang að gossvæðinu við Litla-Hrút að nýju. Lokað var fyrir aðgang klukkan fimm í gær vegna lélegs skyggnis á svæðinu.
Litlar breytingar virðast hafa orðið á gosstöðvunum við Litla-Hrút í nótt en hraunið rennur nú í gamla farveginum á ný eftir að gígbarmurinn féll saman í fyrrinótt.
Lífsháski skapaðist á gosstöðvunum við Litla-Hrút í nótt þegar gígbarmurinn hrundi skyndilega og glóandi hraunið flæddi niður á miklum hraða. Nokkru áður höfðu ferðamenn, sem stóðu við gíginn, verið reknir burt frá staðnum. Kristján Már Unnarsson var á vettvangi í dag.
Stór hraunpollur hefur myndast vestan við gíg eldgossins við Litla Hrút. Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá við Háskóla Íslands hefur birt nýjar myndir af hraunpollinum.
Breytingar urðu við eldgosið í gær þegar hraunbarmur gígsins brast. Þorvaldur Þórðarson, jarðfræðingur, segir það hafa verið mikið sjónarspil þegar gígbarmurinn brast en að það megi ekki gleyma því að um hættusvæði sé að ræða.
Töluverður erill var hjá lögreglunni á Suðurnesjum á gossvæðinu í gær og í gærkvöldi. Aðstoða þurfti nokkra göngugarpa og þá voru einhverjir sem ekki hlýddu fyrirmælum. Ekki gengur vel í öllum tilvikum að biðja fólk að halda sig utan hættusvæðis.
Lokað verður fyrir aðgang að gossvæðinu við Litla Hrút klukkan fimm í dag. Er það vegna þess hve lélegt skyggni verður þá.
Vesturhlið gígsins við Litla-Hrút hrundi í nótt og varð mikið hraunflóð út úr honum til vesturs. Gígskálin virðist hafa gefið sig eftir að hrauntjörnin inni í honum hækkaði töluvert.
Ferðamaður sem hneig niður við gosstöðvarnar við Litla Hrút í gærkvöldi og var sóttur af þyrlu landhelgisgæslunnar er látinn.
Breytingar urðu á rennslinu í Eldgosinu við Litla-Hrút í nótt þegar gígbarmurinn brast og hraunið rennur nú í nýjum farvegi.
Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar frá gosstöðvunum nú í kvöld til aðhlynningar á Landspítalanum.
Niðurstöður HEC-RAS hermunar Verkís á rennsli hraunsins í gosinu við Litla-Hrút sýnir að hraunrennsli muni ná til Suðurstrandarvegar upp úr miðjum ágúst. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá rannsóknarstofu í eldfjallafræði og náttúruvá við Háskóla Íslands. Slökkviliðsmenn hafa undanfarna daga beitt tveimur aðferðum við að slökkva í gróðureldum á svæðinu og mæðir mikið á slökkviliðsfólki.
Eldstöðvarnar við Litla Hrút eru eingöngu opnar frá Suðurstrandavegi í dag. Öðrum vegum eða vegaslóðum hefur verið lokað. Leið þessi kallast Meradalaleið og er um tuttugu kílómetra löng, fram og til baka.
Enn hefur ekki tekist að ráða niðurlögum gróðurelda, sem geisað hafa á Reykjanesi frá upphafi eldgoss þar fyrir rúmri viku síðan. Fram kemur í grein sem birtist á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands í gær að um mesta mosabruna sé að ræða frá því að skráningar á gróðureldum hófust hér á landi.