

Bíó og sjónvarp
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.

Aldrei fleiri á kvikmyndahátíð
Um sextán þúsund manns hafa sótt Íslensku kvikmyndahátíðina, IIFF, á fyrstu tíu sýningardögunum. Í tilkynningu frá hátíðahöldurum segir að hún hafi þar með slegið öll aðsóknarmet fyrri kvikmyndahátíða hérlendis.

Segir Nine Songs ekki klámmynd
Nakið og ódulið kynlíf er rauði þráðurinn í kvikmyndinni <em>Nine Songs</em> sem sýnd verður í kvöld á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Aðalleikari myndarinnar segir þetta engan veginn klámmynd heldur raunsæja mynd af sambandi karls og konu og býst hann við að íslenskir áhorfendur taki myndinni vel.

Kvikmyndahátíð sett í kvöld
Alþjóðleg kvikmyndahátíð verður sett formlega í Háskólabíói í kvöld og verður opnunarmynd hátíðarinnar <em>Motorcycle Diaries</em> eftir Brasilíumanninn Walter Salles, en hann er kominn sérstaklega til landsins til að vera viðstaddur sýninguna. Myndin var tilnefnd til þrennra Óskarsverðlauna í ár og hlaut verðlaun fyrir bestu tónlistina.

Börkur undirbýr Karfann
Fyrsta kvikmynd leikstjórans Barkar Gunnarssonar, hin íslensk-tékkneska Sterkt kaffi, er í sjöunda sæti yfir það mikilvægasta sem gerðist árið 2004 á kvikmyndasviðinu, samkvæmt hinu víðlesna tékkneska dagblaði Nedélní svet. Í efsta sæti er tilnefning tékknesku myndarinnar Zelary til Óskarsverðlauna fyrr á árinu.

Stuðmenn frumsýna
Stuðmannamyndin "Í takt við tímann" var frumsýnd í dag í Smárabíói. Myndin er sjálfstætt framhald af vinsælustu íslensku kvikmynd sem gerð hefur verið, "Með allt á hreinu". Persónurnar eru þær sömu, en þær eru orðnar tuttugu árum eldri og búnar að taka ýmsum breytingum.

Kaldaljós kom sá og sigraði
Kvikmyndin Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson krækti í fimm verðlaun á Edduverðlaunahátíðinni sem haldin var á Hótel Nordica. Kaldaljós var valin mynd ársins, Ingvar E. Sigurðsson var valinn besti leikarinn og Kristbjörg Kjeld besta leikkonan í aukahlutverki. Hilmar Oddsson fékk einnig verðlaun fyrir leikstjórn Kaldaljóss og Sigurður Sverrir Pálsson fyrir besta hljóð og mynd.

Eddan afhent í sjötta sinn í kvöld
EDDU verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Nordica Hótel í kvöld.

Tilnefnd og ótilnefndur
Stórleikkonan Helga Braga og sjónvarpsmaðurinn Kristján Kristjánsson úr Kastljósinu eru kynnar Edduverðlaunanna sem afhent verða á Nordica Hóteli sunnudagskvöldið 14. nóvember.

Góð þátttaka í kosningu til Edduverðlaunanna
Kosning til Edduverðlaunanna stendur nú sem hæst en kosningu lýkur á laugardag. Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían (ÍKSA) kynnti tilnefningar til Edduverðlaunanna í lok október og hófst þá einnig Netkosning hér á Vísi. Almenningi gefst eingöngu kostur á að kjósa á Vísi. Þátttaka hefur verið mjög góð, á sjötta þúsund manns hafa tekið þátt í kosningunni.

Norrænir bíódagar
Norrænir bíódagar standa nú yfir í Háskólabíói og í Sambíóunum í Keflavík. Sýndar verða sex úrvalsmyndir frá Svíþjóð, Noregi Danmörku. Þeirra á meðal er sænska gamanmyndin Kops, í leikstjórn Josef Fares, þess hins sama og gerði síðast smellinn "Jalla Jalla". Þá er sjálfstætt framhald myndarinnar Elling sýnt á norrænum bíódögum, Mors Elling.

Ætlar að kaupa sér nýja skyrtu
"Þetta kom mér mjög á óvart og ég átti alls ekki von á þessu. Fékk bullandi hjartslátt við tilnefninguna en er búinn að jafna mig. Það er allt í fínu lagi núna," segir kvikmyndagerðarmaðurinn Páll Steingrímsson þegar hann er spurður út í stóru tíðindin; að fá heiðursverðlaun Eddu þetta árið.

Sögurnar eru þemað í ár
"Hátíðin verður með hefðbundnu sniði enda ekki þörf á að breyta strúktúrnum. Þó má upplýsa að þemað í þetta sinn er "sögurnar". Þessi bransi gengur út á að segja sögur í ýmsu formi og innslögin segja okkur sögurnar á bak við tjöldin; hvaða hlutverki hver og einn gegnir," segir Pétur Óli Gíslason framkvæmdastjóri Storm, sem sér um Eddu-verðlaunahátíðina.

Sköpunin öll er mér ráðgáta
Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður fær heiðursverðlaun Eddunnar í ár. Kolbrún Bergþórsdóttir ræddi við Pál um heimildarmyndagerð, ferðalög og stóriðjumál.

Helmingur frá stöðvum Norðurljósa
Sjónvarpsmaður ársins verður krýndur á Edduverðlaunahátíðinni sunnudaginn 14. nóvember. Almenningur getur valið úr hópi 38 sjónvarpsmanna á Vísi en auk þess mun Gallup spyrja um hug almennings í skoðanakönnun. Atkvæðagreiðslan á <a href="http://www.visir.is/?pageid=506"><strong>vísir.is</strong></a> stendur til miðnættis 13. nóvember.






Fátt kom á óvart
"Jón Ársæll snýr aftur í keppninni um sjónvarpsþátt ársins, ásam Brennidepli sjónvarps og kvöldvöku Sirríar. Verðlaunin í þeirri deild verða sorglegur minnisvarði um stöðu innlendrar dagskrárgerðar í lagaumhverfi sjónvarpsstöðva á Íslandi". Páll Baldvin Baldvinsson, blaðamaður á DV fjallar um tilnefningar til Edduverðlaunanna.

Edduverðlaunin 2004
<strong><a href="http://www.visir.is/?PageID=506">Allt um Edduna 2004 á Vísi</a></strong>

EDDA 2004: Netkosning hafin á Vísi
Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían (ÍKSA) kynnti í gær tilnefningar til Edduverðlaunanna 2004. Þá hófst einnig Netkosning hér á Vísi en almenningi gefst eingöngu kostur á að kjósa á Vísi. Netkosningin stendur til klukkan 14:00 13. nóvember.


Aldrei fleiri innsend verk á Eddu
Frestur til að skila inn verkum vegna Edduverðlaunanna 2004 rann út um helgina og hafa aldrei áður borist fleiri innsendingar, eða alls tæplega 70 mismunandi verk. Valnefndir hafa tekið til starfa en þeirra hlutverk er að velja þrjár til fimm tilnefningar í hvern flokk.





Kaldaljós með flestar tilnefningar
Kvikmyndin Kaldaljós, sem Hilmar Oddsson gerði eftir samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur hlýtur flestar tilnefningar til Eddunnar, verðlauna Íslensku kvikmynda- og sjónvarspakademíunnar í ár. Kaldaljós er ein þriggja mynda sem tilnefnd er sem bíómynd ársins. Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður hlýtur heiðursverðlaun akademíunnar í ár.
