Bíó og sjónvarp

Heimsendir í nánd

Robert Carlyle þarf að kljást við uppvakninga og hermenn í 28 Weeks Later.
Robert Carlyle þarf að kljást við uppvakninga og hermenn í 28 Weeks Later.

Kvikmyndin 28 weeks later var frumsýnd í Háskólabíói, Regnboganum og Borgarbíói Akureyri í gær en hún er sjálfstætt framhald hryllingsmyndarinnar 28 Days Later. Með aðalhlutverkið fara þau Robert Carlyle og Catherine McCormack en leikstjóri er hinn spænski Juan Carlos Fresnadillo.

28 Weeks Later tekur upp þráðinn sex mánuðum eftir að vírusinn skæði hafði nánast lagt England í rúst. Íbúarnir taka gleði sína á ný en vísindamenn virðast hafa vanmetið styrk víruss­ins og hann fer að láta á sér kræla á ný í London en með enn öflugri hætti. Íbúarnir þurfa því aftur að kljást við uppvakninga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.