Bíó og sjónvarp

Latibær á ferð og flugi

Magnús Scheving. Latibær er á miklu flugi um þessar mundir og verða þættirnir meðal annars teknir til sýninga hjá ABC-sjónvarpsstöðinni í Ástralíu.
Magnús Scheving. Latibær er á miklu flugi um þessar mundir og verða þættirnir meðal annars teknir til sýninga hjá ABC-sjónvarpsstöðinni í Ástralíu.

Latibær er á miklu flugi og ekki sér fyrir endann á velgengni þessa fyrirtækis. Heilbrigðismálayfirvöld í þremur löndum eru áhugasöm um að taka þátt í að fá krakka heimsins til að hreyfa sig.

„Við erum að vinna mjög náið með Caroline Flint, heilbrigðisráðherra Bretlands, og vonandi byrjum við með þetta átak sem allra fyrst,“ segir Magnús Scheving, forstjóri Lazy Town. Nú styttist í að glæsilegu orkuátaki verði hleypt af stokkunum í Bretlandi. Svipað átak sló í gegn á Íslandi fyrir þremur árum og fékk meðal annars norrænu heilsuverðlaunin 2004. „Ég reikna síðan með að eiga fundi með bæði heilbrigðisráðherrum Þýskalands og Kanada,“ bætir Magnús við.

Mikið hefur verið spáð og spekúlerað um hvort sjálfur Jamie Oliver myndi ganga til liðs við Latabæ en Magnús svaraði þeim vangaveltum eins og sannur pólitíkus: „Því er ekki að leyna að við höfum verið í viðræðum við þann hóp en þetta eru svona meira þreifingar. Oliver er meira í eldri hópnum en við í þeim yngri. En við höfum verið að athuga hvernig við gætum sameinað þá,“ segir Magnús og ljóst er að ef af yrði myndi það vekja enn meiri athygli á Latabæ í Bretlandi.

Latibær hefur hins vegar náð verulegri fótfestu á Bretlands-markaði og Magnús upplýsir að velta fyrirtækisins í smásölu sé í kringum hundrað milljónir dollara eða sex milljarða íslenskra króna. Þá hyggur þátturinn á mikla innrás til Ástralíu en þættirnir verða sýndir á ABC-sjónvarpsstöðinni sem er ein sú virtasta í heimi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.