Haltu bara í þér Lára G. Sigurðardóttir skrifar 4. nóvember 2026 16:00 „Er nóg fyrir flesta að koma einu sinni í meðferð?“ spurði ég galvösk þar sem yfirlæknirinn leiddi mig um húsakynni Vogs áður en ég tók þar til starfa. Lítið vissi ég um fáfræði mína á fíknsjúkdómum, en mér til varnar man ég ekki til þess að hafa fengið kennslu um sjúkdóminn á námsárunum í læknisfræði. Vissulega þekkti ég einhverja sem höfðu farið í meðferð, en var með þá hugmynd í kollinum að þetta væri nú bara lífstílsákvörðun. Eins og að hætta að borða kex eða að drekka kók. Líklega eilítið erfiðara. Til að lýsa fíknivanda í stuttu máli hafa fáir komist jafn vel að orði og Stephen King sem barðist við Bakkus: „Það að segja áfengissjúklingi að hætta að drekka áfengi er eins og að segja manneskju með ræpu að halda bara í sér.“ Fljótlega eftir mín fyrstu spor á göngum Vogs rann upp fyrir mér mynd af starfi sem hefur augljóslega verið lengi í þróun og einkennist af mikilli þverfaglegri þekkingu sem hefur vaxið með árunum. Fíknsjúkdómur er ekkert lamb að leika við. Efnin sem koma við sögu breyta efnafræði heilans, sem dregur úr hæfni einstaklingsins til að halda aftur af löngun í efnið. Afleiðingin er vítahringur fíknar sem einkennist af stjórnleysi og skömm. Í neyslu velur hinn veiki efnin framyfir lífið sjálft og sína nánustu. Fíkniefnin slökkva á allri skynsemi og rökhyggju, svo segja má að viðkomandi missir stjórn á eigin lífi. Þá er fíknsjúkdómi er ósjaldan líkt við sykursýki. Báðir eru langvinnir og geta skotið aftur upp kollinum, en með meðferð og góðum lífsháttum er hægt að halda þeim niðri. Flestum gengur betur nýti þeir sér lengri samfellda meðferð eins og t.d. býðst á Vík og í göngudeild, en margir hverjir sækja einnig AA-fundi. En ég ætla nú ekki einungis að ljóstra upp um fáfræði mína. Ástæðan fyrir því að ég finn mig tilneydda til að grípa í „pennann“ er sú að fordómar um sjúkdóminn sveima enn í samfélaginu, en líkt og við þekkjum er rót fordóma jafnan fáfræði eða skortur á skilningi. Það getur tekið tvo daga að rífa niður heilt hús, en að byggja það upp aftur tekur mörg ár. Síðustu mánuði höfum við horft upp á stjórn SÁÁ brjóta niður heilbrigðisþjónustu fyrir fólk með fíknivanda. Við blasir að hverfa áratugi aftur í fíknlækningum á Íslandi. Aðdragandinn er sá að stjórnin vildi skipta út forstjóra, sem hafði unnið ötullega að uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar ásamt framkvæmdastjóra lækninga og öðru starfsfólki. Framtíð fíknlækninga var björt og náðist fyrr á árinu samningur við Sjúkratryggingar Íslands að greiða niður meðferðina að fullu. Þá stóð til að læknar fengju sérhæfingu í meðferð fíknsjúkdómsins og síðustu ár hafa læknanemar auk þess fengið þjálfun í meðferð fíknsjúkdóms. Til stóð að halda hér alheimsráðstefnu í fíknlækningum, sem var mikill heiður og stór liður í að draga úr fordómum gegn sjúkdómnum. Þá er margt annað sem fer hljóðlega fram innan veggja sjúkrahússins Vogs, eins og ýmsar rannsóknir og önnur ótalin verk. Hætta er á að allt þetta muni glatast með brotthvarfi stjórnendanna. Nú blasir við að SÁÁ muni bjóða upp á heilbrigðisþjónustu í fíknimeðferð án sérfræðings í starfsliðinu. Myndir þú vilja leggjast undir hnífinn með engan skurðlækni innanhúss? Gangast undir krabbameinsmeðferð hjá lækni sem hefur ekki sérþekkingu á eðli krabbameina? Í mínum huga er það vanvirðing og fordómar að telja að hver sem er geti veitt viðeigandi meðferð við fíknsjúkdómi. Að stjórn SÁÁ sjái ekki að sér og sýni meðferðinni meiri virðingu en raun ber vitni er til skammar fyrir málstaðinn sem þau eiga að standa fyrir. Valgerður og Ragnheiður eru frábært teymi sem ásamt samstarfsfólki hafa lyft fíknmeðferðarstarfi hér á landi á hærra plan og þær eru tilbúnar að halda áfram að byggja upp faglega meðferð við fíknsjúkdómi. Það er ómetanlegt, því fíknsjúkdómur er ekki bara „lífsstílssjúkdómur“ líkt og bláeygða konan á göngum Vogs taldi fyrir nokkrum árum. Hann er lífshættulegur heilasjúkdómur, þar sem gen spila stórt hlutverk. Mikið er í húfi og við verðum að stöðva þessar heilbrigðis-hamfarir. Því við getum ekki sagt veiku fólki að „halda bara í sér“. Höfundur er læknir og fyrrverandi starfsmaður SÁÁ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Meðferðarheimili Heilbrigðismál Fíkn Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Sjá meira
„
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun