Skoðun

Öfgar og ó­fag­leg vinnu­brögð

Tryggvi Felixson skrifar

Viðskiptaráð í herferð geng landinu og lýðræðislegum rétti landsmanna

Viðskiptaráð telur nauðsynlegt að tvöfalda raforkuframleiðslu á Íslandi á næstu 14 árum. Það hefur tekið þjóðina um 100 ár að koma raforkuframleiðslu í um 20 terawattstundir á ári með talsverðum fórnum á náttúruarfi þjóðarinnar. Að bæta við öðrum 20 terawattstundum á 14 árum er ávísun á efnahagslega kollsteypu og samfélagsleg átök um vernd íslenskrar náttúru.

Að baki Viðskiptaráði standa mörg fyrirtæki sem eru máttarstólpar í efnahagslífi okkar, þar með talin fyrirtæki í opinberri eigu. Vilja þau virkilega tvöfalda framleiðslu raforku á næstu 14 árum eða er ráðið eitt í þessari vegferð?

Á landakorti sem fylgir greiningu Viðskiptaráðs undir heitinu „Virkjunarkostir á Íslandi“ má sjá að allt landið er undir. Þar skilgreinir ráðið djásn þjóðarinnar Gullfoss og Geysi og hálendisgimsteina eins og Kverkfjöll og Kerlingafjöll sem „virkjanakosti“. Gangi hugmyndafræði ráðsins eftir verður stór hluti Íslands þakinn orkuverum, rafmagnslínum, orkufrekum iðnaði og öðrum innviðum. Vissulega má taka þetta sem grín en er ekki „orkusturlun“ nær því að vera réttnefni? Það virðist sem Viðskiptaráð hafi tapað öllu jarðsambandi.

Verði þessi matröð náttúruverndarsinna að veruleika glötum við mörgum náttúrudjásnum þjóðarinnar og víðernum; því sem gerir Ísland svo sérstakt og er hluti vitundar og velsældar þjóðarinnar.

Þetta sama ráð hefur einnig kallað eftir minna umfangi hins opinbera, sölu ríkiseigna, auknum einkarekstri í grunnþjónustu, þrengri réttindum opinberra starfsmanna og lækkun velferðar- og menningarútgjalda. Boðskapur ráðsins minnir á þá öfgafullu frjálshyggju og skort á fyrirhyggju sem steypti íslensku þjóðinni í tilvistarvanda í hruninu árið 2008. Við viljum ekki fara þangað aftur!

Til að stuðla að tvöföldun raforkuframleiðslu á þessum mettíma þarf að mati Viðskiptaráðs m.a. að afnema lög um rammaáætlun og fækka möguleikum almennings samtaka almennings til að malda í móinn [tillagan segir: Lög um rammaáætlun verði afnumin og kæruleiðum fækkað]. Sem sagt, að draga úr fagmennsku og lýðræðislegum réttindum Íslendinga.

Rammaáætlun – faglegt mat og yfirsýn

Undir lok síðustu aldar átti Framsóknarflokkurinn frumkvæði að því að leggja upp í vegferð sem gengur undir nafninu „rammaáætlun“. Uppruninn liggur í áætlanagerð sem hófst þegar Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra. Málið komst fyrst á rekspöl í ráðherratíð Sivjar Friðleifsdóttur og Finns Ingólfssonar. Ákvörðunin byggði á hugmynd um að skoða margar tillögur um virkjanir samtímis og draga þær í þrjá dilka; landsvæði sem vænlegt væri að virkja (orkunýtingarflokk), svæði sem skoða þyrfti betur (biðflokk) og svæði sem ber að hlífa við virkjunarframkvæmdum (verndarflokk). Þáverandi formaður Landverndar, Jón Helgason, fyrrverandi forseti Alþingis, vann ötullega að því að koma þessu verkefni í gang. Markmiðið var að ná sem víðtækastri sátt um landnýtingu með yfirsýn, víðtæku samráði, opnu matsferli og greiningu hæfustu sérfræðinga. Þær leikreglur voru lögfestar 2011 í lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun.

Eftir því sem ég veit er enginn fyllilega ánægður með reynsluna af rammaáætlun. Hún kemur ekki í stað mats á umhverfisáhrifum einstakra framkvæmda þar sem öll áhrif fá nánari greiningu og er forsenda endanlegrar ákvörðunar. Hins vegar hefur engin betri hugmynd um leið til að taka ákvarðanir með yfirsýn og faglegt mat að leiðarljósi komið fram. Það væri því óráð að varpa rammaáætlun á altari frjálshyggju Viðskiptaráðs.

Viðtekin hagvísindi hunsuð

Ákall Viðskiptaráðs um tvöföldun raforkuframleiðslu á 14 árum bendir til þess að það hafi litla trú á öðrum greinum íslensks atvinnulífs en þeim sem eru afar þurftafrekar á raforku. Sé litið í spegil hagsögunnar má sjá að lítil og meðalstór fyrirtæki sem spretta fram af hugviti og dugnaði hafa verið helsta stoðin í efnahagsþróun landsins. Fyrirtæki sem þannig urðu til eru enn hryggjarstykkið í íslensku efnahagslífi í dag. Hagfelld skilyrði í stöðugu efnahagsumhverfi munu marka leið þeirra til frekari vaxtar.

Til framleiðslu á raforku til stóriðju hefur nú þegar miklu verið fórnað af unaði íslenskrar náttúru og víðernum. Sú fórn kemur ekki fram í þjóðhagsreikningum. Þessi fórn gengur undir heitinu „ytri kostnaður“. Stofnanir eins og OECD og IMF hafa bent á að Íslendingar þurfi nú að huga betur að þessum þætti þegar teknar eru ákvarðanir um frekari öflun raforku til orkufrekrar framleiðslu.

„Ruðningsáhrif“ stórframkvæmda eru vel þekkt. Stórkallalegar virkjanaframkvæmdir taka súrefni frá öðrum atvinnugreinum sem þurfa bæði fjármagn og vinnuafl til að vaxa og dafna.

Viðskiptaráð virðist ekki hafa tileinkað sér þessi viðteknu hagvísindi um ytri kostnað og ruðningsáhrif við mat á efnahagsáhrifum stórframkvæmda. Ráðið lítur einnig fram hjá því hvaða áhrif tvöföldun raforkuframleiðslu og afleidd áhrif mun hafa á losun gróðurhúsalofttegunda og alþjóðlegar skuldbindingar í þeim efnum. Viðskiptaráð fær falleinkunn í hagvísindum.

Orkusparnaður og nýtni er málið

Undanfarin 10 ár hefur verðmætasköpun í samfélaginu vaxið um liðlega 30% samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Á sama tíma hefur raforkuframleiðsla verið því sem næst óbreytt (þótt framleiðslugeta hafi vaxið). Þessar tölur staðfesta að hagvöxtur er mögulegur án frekari virkjana.

Orkusparnaður getur sparað fé og skapað svigrúm. Gott dæmi þar um er nýleg aðgerð til að bæta orkunýtingu í gróðurhúsum. Á nýliðnum loftslagsdegi kom fram að sú aðgerð ein nægir til að skaffa raforku fyrir um 6.000 rafbíla. Bætt nýtni núverandi orkumannvirkja, eins og Landsvirkjun stefnir að í nokkrum orkuverum og Landsnet með öflugri byggðalínu, eru skref til betri nýtni. Mörgum þjóðum sem leggja áherslu á að feta braut orkusparnaðar og nýtni farnast vel. Það er framtíðin!

Frelsi frá viðjum vanans

Við sem velstæð og vel menntuð þjóð höfum val um leiðir til viðvarandi hagsældar. Við getum valið aðgerðir sem beina fjármagni og vinnuafli til atvinnugreina sem ekki krefjast mikillar raforku og náttúrufórna. Við getum friðlýst fleiri verðmæt náttúrusvæði og víðerni sem gera okkur stolt og styrkja undirstöður ferðaþjónustu.

Því miður virðist Viðskiptaráð ekki sjá aðra leið til hagsældar en að eyðileggja íslenska náttúru. Ráðið er fast í viðjum vanans og beitir ýmsum brögðum til að styðja sinn málflutning sem ekki er hægt að kenna við vönduð og gild hagvísindi.

Hógværð og virðing í umgengni við náttúru landsins eru aflið sem þarf að virkja í stað viðja vanans og græðgi.

Höfundur er hagfræðingur að mennt og virkur náttúruverndarsinni.




Skoðun

Sjá meira


×