Innlent

Sjö­tíu á­kærðir fyrir svíkja fé út úr Lands­bankanum

Árni Sæberg skrifar
Þrjótarnir náðu mestum fjármunum út úr Landsbankanum.
Þrjótarnir náðu mestum fjármunum út úr Landsbankanum. Vísir/Vilhelm

Um sjötíu manns hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við umfangsmikið fjársvikamál sem kom upp í nóvember í fyrra. Hundruð milljóna króna voru svikin út úr Landsbankanum með nýtingu galla hjá Reiknistofu bankanna.

Á mánudag verður mál Héraðssaksóknara á hendur um sjötíu manns þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum Vísis er um svokallað Landsbankamál að ræða, sem var í fréttum í nóvember síðastliðnum. 

Tveir aðalmenn

Samkvæmt heimildum varðar þetta tiltekna mál aðeins hluta svikanna, sem námu alls um fjögur hundruð milljónum, og tveir hinna ákærðu eru aðalmenn samkvæmt ákæru. Fjórir aðrir eru ákærðir fyrir hlutdeild í brotum þeirra og hinir ákærðu eru ákærðir fyrir peningaþvætti, með því að taka við fjármunum frá aðalmönnunum.

Vísir hefur óskað eftir því að fá ákæruna afhenta en að sögn Héraðssaksóknara hefur hún ekki verið birt öllum ákærðu og því sé ekki heimilt að afhenda hana fjölmiðlum að svo stöddu. Hún var gefin út á föstudag í síðustu viku.

Hvar verður aðalmeðferðin?

Lögmenn sem Vísir hefur rætt við velta því fyrir sér hvernig meðferð málsins verður háttað hjá Héraðsdómi Reykjavíkur, enda er ljóst að ekki er pláss fyrir sjötíu sakborninga auk verjenda í húsakynnum dómstólsins. Þingfesting málsins fer fram í stærsta sal dómshússins við Lækjartorg en reiknað er með að hún taki sex klukkustundir. Í flestum málum eru tíu mínútur teknar frá fyrir þingfestingu.

Ekki er óþekkt að dómstólar taki sal á leigu vegna plássleysis í dómshúsinu en það var gert í Bankastrætis Club-málinu svokallaða árið 2023. Blaðamanni er ekki kunnugt um önnur dæmi um slíkt.

Þingfesting málsins fer fram í sal 101 í dómshúsinu við Lækjargötu en nokkuð ljóst má telja að ekki verði hægt að há aðalmeðferð þar.Vísir/Vilhelm

Aðalmeðferð í því máli fór fram í veislusalnum Gullhömrum þar sem sakborningar þess voru 25 talsins, verjendur jafnmargir og réttargæslumenn tveir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×