Baráttan um Brasilíu Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. október 2026 09:56 Forsetaframbjóðendurnir tveir tókust á í kappræðum í sjónvarpssal á sunnudaginn síðastliðinn. AP Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og vinstrimannsins Lula da Silva og frambjóðanda hægrimanna og öldungadeildarþingmannsins Flávio Bolsonaro.
Flávio Bolsonaro hafði betur gegn hinum áttræða Lula í fyrri umferð forsetakosninganna þann 4. október síðastliðinn. Hann náði þó ekki hreinum meirihluta og verður því kosið á milli þeirra tveggja í annarri umferð í dag. Hafði Lula mælst með meira fylgi í aðdraganda fyrri umferðar kosninganna og því voru niðurstöðurnar nokkuð óvæntar. Á síðustu vikum hefur framboð Lula þó sótt í sig veðrið og ganga þeir til kosninga nánast hnífjafnir í könnunum. Aldrei hefur frambjóðanda sem laut í lægra haldi í fyrri umferð tekist að vinna upp forskotið og sigra seinni umferðina, segir í umfjöllun BBC um málið. Ljóst er að um ófyrirsjáanlega kosninganótt sé að ræða. Flávio, sem er 45 ára, er sonur Jairs Bolsonaro fyrrum forseta sem afplánar nú tuttugu og sjö ára fangelsisdóm fyrir að hafa skipulagt misheppnaða valdaránstilraun eftir að hafa tapað forsetakosningunum árið 2022 gegn Lula. Flávio hefur heitið því að náða föður sinn nái hann kjöri. Sjá einnig: Bolsonaro í stofufangelsi Brasilíska þjóðin hefur skipst í fylkingar í kosningunum. Lula nýtur meiri vinsælda meðal tekjulágra, kaþólikka og kvenna en hann sækist nú eftir því að verða kosinn forseti í fjórða sinn. Hann vann afar nauman sigur á Bolsonaro eldri í kosningunum árið 2022 og eftir þær kosningar réðust stuðningsmenn Bolsonaro á opinberar byggingar landsins. Brasilíski eða bandaríski fáninn Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði fyrri umferð kosninganna „mjög stóran“ sigur en hefur ekki formlega lýst stuðningi sínum við neinn frambjóðanda, segir í umfjöllun Reuters. Lula ávarpaði stuðningsmenn sína í gær og sagði að kosningarnar snerust um fullveldi og að kjósendur veldu á milli þess sem kyssti brasilíska fánann eða þann bandaríska. Sitjandi forseti Brasilíu Luiz Inacio Lula da Silva heilsaði stuðningsmönnum sínum á kosningafundi í Sao Paulo í gær. AP Lula hefur sakað andstæðing sinn um að leggja á ráðin með ríkisstjórn Trumps og Bandaríkjunum um að reyna að hafa áhrif á kosningarnar. Forseti kjörstjórnar Brasilíu sagði daginn eftir fyrri umferð kosninganna að engar vísbendingar hefðu fundist um erlend afskipti af kosningunum. Sagðir hafa staðið í herferð til að koma Bolsonaro til valda Fréttaveitan Reuters hefur eftir tíu bandarískum embættismönnum, bæði núverandi og fyrrverandi, að tveir embættismenn bandaríska utanríkisráðuneytisins hefðu staðið í herferð til að koma Bolsonaro-fjölskyldunni aftur til valda í Brasilíu. Heimildarmenn Reuters segja þá hafa gefið bandarískum erindrekum í Brasilíu þau fyrirmæli að koma Jair Bolsonaro, föður Flávio, til valda en þeir hafi snúið sér að framboði sonar hans þess í stað í kjölfar fangelsisdóms Jair. Komist Flávio Bolsonoro til valda stefnir hann að því að náða föður sinn sem afplánar nú 27 ára stofufangelsisdóm fyrir tilraun til valdaráns árið 2022.AP Frá því í fyrra hafa mennirnir tveir með góðum árangri talað fyrir refsiaðgerðum bandarískra stjórnvalda gegn Brasilíu sem ætlað var að veikja Lula og styrkja Bolsonaro-fjölskylduna, að sögn heimildarmannanna tíu. Meðal aðgerðanna var að skilgreina brasilísk glæpagengi sem hryðjuverkasamtök og beita refsiaðgerðum gegn æðstu embættismönnum og dómurum landsins. Hvíta húsið hafi ekki tjáð sig um málið og óljóst sé að hvað miklu leyti mennirnir hafi starfað undir fyrirmælum þess eða Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Að auki myndi sigur Bolsonaro þýða að Brasilía gengi til liðs við bandalagið Shields of Americas gegn eiturlyfjasmygli og tengdist um leið Bandaríkjunum nánari böndum.
Brasilía Donald Trump Bandaríkin Tengdar fréttir Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Brasilíski öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro tilkynnti formlega framboð sitt til forseta Brasilíu í dag en hann er sonur fyrrverandi forseta landsins, Jair Bolsonaro. 25. júlí 2026 21:16 Bolsonaro vill gera son sinn að sendiherra í Bandaríkjunum Forseti Brasilíu, hinn umdeildi Jair Bolsonaro, hefur ákveðið hvaða brasilíski stjórnmálamaður skuli verða næsti sendiherra Brasilíu í Bandaríkjunum. 12. júlí 2019 07:38 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira
Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Brasilíski öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro tilkynnti formlega framboð sitt til forseta Brasilíu í dag en hann er sonur fyrrverandi forseta landsins, Jair Bolsonaro. 25. júlí 2026 21:16
Bolsonaro vill gera son sinn að sendiherra í Bandaríkjunum Forseti Brasilíu, hinn umdeildi Jair Bolsonaro, hefur ákveðið hvaða brasilíski stjórnmálamaður skuli verða næsti sendiherra Brasilíu í Bandaríkjunum. 12. júlí 2019 07:38