„Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Samúel Karl Ólason skrifar 23. október 2026 13:20 Ísraelskir hermenn nærri Hebron, þar sem til skotbardaga kom í morgun milli hermanna og tveggja árásarmanna. AP/Mahmoud Illean Ráðamenn í Ísrael tilkynntu í morgun að Vesturbakkanum yrði „lokað“. Það er eftir að Ísraelar segjast hafa fellt tvo Palestínumenn sem skutu á ísraelska hermenn nærri Hebron. Tveir hermenn féllu í árásinni og þrír eru særðir.
Árásarmennirnir tveir voru báðir felldir af hermönnum eftir um tuttugu mínútna skotbardaga en yfirvöld í Ísrael segja að komið hafi verið í veg fyrir hryðjuverk. Mennirnir eru sagðir hafa verið vopnaðir rifflum og skammbyssum. Í kjölfarið lýsti Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra, því yfir að hann hefði skipað forsvarsmönnum hersins að grípa til aðgerða í Hebron og undirbúa allsherjarlokun Vesturbakkans, sem hefjast á í dag. Hermenn hafa gert nokkur áhlaup í Hebron í dag og hafa að minnsta kosti þrír verið handteknir. Í frétt Al Jazeera segir að Netanjahú hafi hætt við alla kosningaviðburði Likud-flokksins í dag og að hann og aðrir stjórnmálamenn hafi farið til Hebron. Þar er búist við því að Ísraelar ætli sér að rífa hús í bænum og mikil spenna þar, samkvæmt blaðamanni. Netanjahú sagði í Hebron í dag að öllu hverfinu sem árásarmennirnir koma frá verði „rústað“. Þetta sagði hann í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum. „Fyrst og fremst, munum við rústa þessum stað. Breyta honum alfarið,“ sagði forsætisráðherrann samkvæmt Times of Israel. Þá sagði hann að í fyrsta sinn myndu Ísraelar beita sömu aðferðum og þeir hafa beitt í flóttamannabúðum í íbúðarhverfi. Það felur í sér að flytja alla íbúa á brott og leita ítarlega í hverfinu. „Við munum flytja alla á brott, við munum fara hús úr húsi, við munum fjarlægja vopnin héðan og allir hryðjuverkainnviðirnir verða eyðilagðir.“ Þá sagði hann að hús sem hafi verið reist án leyfis Ísraela við vegi verði jöfnuð við jörðu. Þau ógni öryggi ísraelskra hermanna. Forsætisráðherrann gaf til kynna að þetta gæti verið gert á öllum Vesturbakkanum, sem yrði umfangsmesta aðgerð Ísraela þar síðan svæðið var hernumið árið 1967. Mikil spenna á svæðinu Mikil spenna er á Vesturbakkanum um þessar mundir. Ofbeldi ísraelskra landtökumanna í garð Palestínumanna á Vesturbakkanum hefur aukist til muna að undanförnu. Ráðist hefur verið á marga Palestínumenn við uppskeru og hefur ísraelski herinn gert lítið ef eitthvað til að stöðva landtökumennina. Ríkisstjórn Benjamíns Netanjahú hefur fjölgað landtökubyggðum á svæðinu til muna. Þessar byggðir eru ólöglegar en á Vesturbakkanum búa nú um fimm hundruð þúsund landtökumenn og þrjár milljónir Palestínumanna. Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og formaður HaTziyonut HaDatit, lýsti því yfir í síðasta mánuði að hann vildi að Ísraelar færu í stríð á Vesturbakkanum, leystu upp heimastjórnina og beittu þar sambærilegum aðferðum og á Gasaströndinni.
Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Sjá meira