Keppir með brákað rifbein: Ógeðslega svekkt en vonar að adrenalínið hjálpi Sindri Sverrisson skrifar 23. október 2026 11:02 Andrea Kolbeinsdóttir er í frábæru formi og ætlar ekki að láta brákað rifbein stoppa sig. Aðsend mynd „Maður er ekki að taka neinar fáránlegar áhættur þó að þetta sé kannski ekki mjög æskilegt,“ segir hlaupakonan magnaða Andrea Kolbeinsdóttir. Hún datt illa og brákaði rifbein en ætlar engu að síður að keppa í sjálfu úrslitahlaupi Golden Trail keppnisraðarinnar í Suður-Kóreu á morgun. „Þetta var mjög óheppilegt,“ segir Andrea í samtali við Vísi. Hún datt þegar hún var á æfingu í Suður-Kóreu á sunnudaginn. Verkirnir sem fylgja brákuðu rifbeini geta verið óbærilegir en Andrea, sem kveðst almennt á móti verkjalyfjum, ætlar að láta á það reyna hvort hún komist í gegnum hlaupið á morgun með því að deyfa sársaukann. „Ég er ógeðslega svekkt því allt var búið að ganga svo ótrúlega vel í undirbúningnum fram að þessu og ég er búin að bíða mjög lengi eftir þessu hlaupi.“ Klippa: Andrea datt illa í Suður-Kóreu Fremstu utanvegahlaupakonur heims keppa í hlaupinu á morgun, eða í nótt að íslenskum tíma, í 27 kílómetra braut með 2.400 metra hækkun í þjóðgarði í Suður-Kóreu. Andrea náði 5. sæti í Golden Trail-hlaupi á Ítalíu í maí og er í 31. sæti á stigalista keppnisraðarinnar. Hún var því til alls líkleg í úrslitahlaupinu en slysið á sunnudaginn setur strik í reikninginn. „Ég ætla ekkert alveg að pína mig áfram, þetta á fyrst og fremst að vera gaman og maður er ekki að taka neinar fáránlegar áhættur þó að þetta sé kannski ekki mjög æskilegt. Þetta er sem betur fer orðið mikið betra, ég er ótrúlega spennt og vona að þetta hafi ekki of mikil áhrif því ég veit að ég er í mjög góðu formi,“ segir Andrea. Umsögn um Andreu á vef Golden Trail Series fyrir hlaupið: Fyrir utan topp 10 verður Andrea Kolbeinsdóttir (Salomon) annar keppandi sem vert er að fylgjast með. Íslenski hlauparinn endaði í fimmta sæti í Ledro [á Ítalíu], þar sem hún sýndi styrk sinn í niðurhlaupum með því að ná besta tímanum á tímatökukaflanum niður á við. Þar sem tæknileg niðurhlaup í Muju [í Suður-Kóreu] munu líklega verðlauna sömu eiginleika gæti brautin gefið henni annað tækifæri til að veita þeim keppendum sem nú eru fyrir ofan hana í heildarstigakeppninni harða samkeppni. Vonar að adrenalínið feli verkinn Andrea þarf helst að forðast sem mest að beygja búkinn til í hlaupinu. „Það er í raun verra að klæða sig í sokka og leggjast í og úr rúminu – að beygja sig í einhverjar áttir – heldur en að hlaupa, þó að það sé auðvitað ekki mjög þægilegt heldur. Ég er almennt mjög mikið á móti verkjalyfjum og að vera að dæla þeim í sig. Mér finnst frekar að maður ætti að hlusta á líkamann og þá hvíla sig ef líkaminn er að senda þau skilaboð. En fyrst maður er kominn alla þessa leið og allt annað er í góðu lagi, og mig langar svo ótrúlega mikið að taka þátt, þá læt ég til skarar skríða. Ég er búin að vera að taka verkjalyf og prófa að hlaupa svona. Það er ekkert rosalega þægilegt en ég vona að adrenalínið á keppnisdegi muni fela þennan verk aðeins og svo er ég auðvitað búin að lofa mér að hætta í hlaupinu ef þetta versnar,“ segir Andrea. Hlaup Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Keppir með brákað rifbein: Ógeðslega svekkt en vonar að adrenalínið hjálpi Girti niður um andstæðinginn Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Að lokum þurfum við að frelsa Kongó, frelsa Súdan, frelsa Sýrland og frelsa Palestínu“ Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu Dagskráin: Körfuboltakvöld, enska deildin og Besta kvenna Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Rúnar Ingi um bannið hans Veigars Páls: „Ég er bara niðurbrotinn sem þjálfarinn hans“ „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Sjá meira
„Þetta var mjög óheppilegt,“ segir Andrea í samtali við Vísi. Hún datt þegar hún var á æfingu í Suður-Kóreu á sunnudaginn. Verkirnir sem fylgja brákuðu rifbeini geta verið óbærilegir en Andrea, sem kveðst almennt á móti verkjalyfjum, ætlar að láta á það reyna hvort hún komist í gegnum hlaupið á morgun með því að deyfa sársaukann. „Ég er ógeðslega svekkt því allt var búið að ganga svo ótrúlega vel í undirbúningnum fram að þessu og ég er búin að bíða mjög lengi eftir þessu hlaupi.“ Klippa: Andrea datt illa í Suður-Kóreu Fremstu utanvegahlaupakonur heims keppa í hlaupinu á morgun, eða í nótt að íslenskum tíma, í 27 kílómetra braut með 2.400 metra hækkun í þjóðgarði í Suður-Kóreu. Andrea náði 5. sæti í Golden Trail-hlaupi á Ítalíu í maí og er í 31. sæti á stigalista keppnisraðarinnar. Hún var því til alls líkleg í úrslitahlaupinu en slysið á sunnudaginn setur strik í reikninginn. „Ég ætla ekkert alveg að pína mig áfram, þetta á fyrst og fremst að vera gaman og maður er ekki að taka neinar fáránlegar áhættur þó að þetta sé kannski ekki mjög æskilegt. Þetta er sem betur fer orðið mikið betra, ég er ótrúlega spennt og vona að þetta hafi ekki of mikil áhrif því ég veit að ég er í mjög góðu formi,“ segir Andrea. Umsögn um Andreu á vef Golden Trail Series fyrir hlaupið: Fyrir utan topp 10 verður Andrea Kolbeinsdóttir (Salomon) annar keppandi sem vert er að fylgjast með. Íslenski hlauparinn endaði í fimmta sæti í Ledro [á Ítalíu], þar sem hún sýndi styrk sinn í niðurhlaupum með því að ná besta tímanum á tímatökukaflanum niður á við. Þar sem tæknileg niðurhlaup í Muju [í Suður-Kóreu] munu líklega verðlauna sömu eiginleika gæti brautin gefið henni annað tækifæri til að veita þeim keppendum sem nú eru fyrir ofan hana í heildarstigakeppninni harða samkeppni. Vonar að adrenalínið feli verkinn Andrea þarf helst að forðast sem mest að beygja búkinn til í hlaupinu. „Það er í raun verra að klæða sig í sokka og leggjast í og úr rúminu – að beygja sig í einhverjar áttir – heldur en að hlaupa, þó að það sé auðvitað ekki mjög þægilegt heldur. Ég er almennt mjög mikið á móti verkjalyfjum og að vera að dæla þeim í sig. Mér finnst frekar að maður ætti að hlusta á líkamann og þá hvíla sig ef líkaminn er að senda þau skilaboð. En fyrst maður er kominn alla þessa leið og allt annað er í góðu lagi, og mig langar svo ótrúlega mikið að taka þátt, þá læt ég til skarar skríða. Ég er búin að vera að taka verkjalyf og prófa að hlaupa svona. Það er ekkert rosalega þægilegt en ég vona að adrenalínið á keppnisdegi muni fela þennan verk aðeins og svo er ég auðvitað búin að lofa mér að hætta í hlaupinu ef þetta versnar,“ segir Andrea.
Umsögn um Andreu á vef Golden Trail Series fyrir hlaupið: Fyrir utan topp 10 verður Andrea Kolbeinsdóttir (Salomon) annar keppandi sem vert er að fylgjast með. Íslenski hlauparinn endaði í fimmta sæti í Ledro [á Ítalíu], þar sem hún sýndi styrk sinn í niðurhlaupum með því að ná besta tímanum á tímatökukaflanum niður á við. Þar sem tæknileg niðurhlaup í Muju [í Suður-Kóreu] munu líklega verðlauna sömu eiginleika gæti brautin gefið henni annað tækifæri til að veita þeim keppendum sem nú eru fyrir ofan hana í heildarstigakeppninni harða samkeppni.
Hlaup Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Keppir með brákað rifbein: Ógeðslega svekkt en vonar að adrenalínið hjálpi Girti niður um andstæðinginn Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Að lokum þurfum við að frelsa Kongó, frelsa Súdan, frelsa Sýrland og frelsa Palestínu“ Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu Dagskráin: Körfuboltakvöld, enska deildin og Besta kvenna Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Rúnar Ingi um bannið hans Veigars Páls: „Ég er bara niðurbrotinn sem þjálfarinn hans“ „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Sjá meira