Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Kjartan Kjartansson skrifar 12. október 2026 13:18 Ilhan Omar kallar fram í stefnuræðu Trump forseta á Bandaríkjaþingi í febrúar. Trump hefur óbeit á Omar og fleiri frjálslyndum þingkonum Demókrataflokksins af innflytjendaættum. Vísir/EPA Bandarískir alríkisfulltrúar gerðu húsleit á heimili Ilhan Omar, þingkonu Demókrataflokksins, í tengslum við sakamálarannsókn á meintu skjalafalsi. Donald Trump forseti hefur ítrekað sagt að Omar ætti að fara úr landi.
Fox News-sjónvarpsstöðin, sem er nátengd Trump og Repúblikanaflokknum, hefur eftir heimildarmönnum sínum að húsleitin tengist sakamálarannsókn á umsókn um dvalarleyfi Omar sem faðir hennar fyllti út þegar hún var barn. Fjölskylda Omar kom til Bandaríkjanna sem flóttamenn frá Sómalíu þegar hún var þrettán ára gömul. Hún er fyrsti Bandaríkjamaðurinn af sómölskum uppruna sem nær kjöri á Bandaríkjaþing. Dómsmálaráðuneytið segir að húsleitin á heimili Omar í Washington-borg snemma í morgun hafi verið gerð á grundvelli leitarheimildar sem dómstóll gaf út. Útsendar heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna gerðu húsleitina. Leitin er sögð tengjast sakamálarannsókn. Tom Homan, sérstakur erindreki Trump í landamæramálum, sagði að Omar væri til rannsóknar í september. Repúblikanar hafa haldið uppi samsæriskenningum um að Omar hefði gifst bróður sínum til þess að fá bandarískan ríkisborgararétt. Hún hefur ítrekað vísað því alfarið á bug. Trump hefur ítrekað ráðist á Omar í ræðu og riti og kallað eftir því að henni verði vísað frá Bandaríkjunum. Repúblikana hefur meðal annars dreymt um að Trump geti svipt Omar ríkisborgararétti og rekið úr landi. Sómalskir innflytjendur almennt hafa verið í skotlínu Trump undanfarin misseri, meðal annars vegna umfangsmikils fjársvikamáls í Minnesota, heimaríki Omar. Þá var Sómalía á meðal ríkja sem Trump kallaði „skítaholur“ á fyrra kjörtímabili sínu. Ríkisstjórn Trump hefur beitt sakamálarannsóknum sem vopni gegn pólitískum andstæðingum í auknum mæli að undanförnu. Alríkissaksóknarar hafa þó ítrekað verið gerðir afturreka með saksóknir, þar á meðal á hendur James Comey, fyrrverandi forstjóra alríkislögreglunnar, og Letitiu James, dómsmálaráðherra New York-ríkis, sem stefndi Trump á sínum tíma. J.D. Vance, varaforseti Trump, sagði í maí að hann grunaði að maðkur væri í mysu Omar en að allir ættu rétt á réttlátri málsmeðferð. „Þannig að við ætlum að rannsaka það. Við ætlum að líta á það. Ef við teljum að glæpur hafi verið framinn munum við ákæra vegna hans,“ sagði varaforsetinn þá.
Bandaríkin Donald Trump Mannréttindi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira