Viðskipti innlent

Hús­leit hjá Beru

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ölgerðin er meðal dótturfélaga Beru.
Ölgerðin er meðal dótturfélaga Beru. Vísir/Vilhelm

Samkeppniseftirlitið hefur hafið húsleit hjá Beru hf., móðurfélagi Ölgerðarinnar, vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar á samkeppnislögum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu Beru til Kauphallar.

Eftirlitið grunar Beru um brot á 11. grein samkeppnislaga sem leggur bann við hvers konar misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu.

„Húsleitin er framkvæmd með heimild Héraðsdóms Reykjavíkur og er liður í rannsókn sem á þessu stigi tekur til tímabilsins frá og með árinu 2020 til dagsins í dag. Félagið mun veita upplýsingar um framgang málsins eftir því sem tilefni verður til,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×