Sport

Slátturvél tók á loft í Sví­þjóð

Andri Broddason skrifar
Slátturvélin tók á flug um leið og flautað var til hálfleiks.
Slátturvélin tók á flug um leið og flautað var til hálfleiks. Skjáskot

Oft reyna félög að finna eitthvað til að skemmta áhorfendum á meðan hálfleikur er og lið halda til búningsherbergja. BIK Karlskoga í sænsku úrvalsdeildinni í íshokkí fer óvanalegar leiðir til þess að skemmta áhorfendum.

Aðdáendur liðsins sem sátu í stúkunni ráku upp stór augu þegar félagið hélt til búningsherbergja. Sláttuvél var á ísnum og byrjuðu hún að fljúga upp í loftið. Sláttuvélin var með hreyfil framan á sér og byrjaði hún að flauga meðfram ísnum.

Þetta verður að teljast vera óhefðbundin hálfleiksskemmtun en hún hefur slegið í gegn á internetinu. Þrátt fyrir að vera með skemmtun í hálfleik þá fór leikurinn ekki alveg eins og stuðningsmenn Karlskoga vonuðust til.

Karlskoga fékk Mora IK í heimsókn og endaði leikurinn með 3-1 sigri gestanna. Heimamenn komust í 1-0 eftir aðeins 30 sekúndur en gestirnir náðu að koma til baka.

Eftir leikinn var farið yfir málin í hlaðvarpi liðsins og þar var litið bjartsýnisaugum á tapið: „Ef sláttuvél getur flogið í Nobelhöllinni, þá getur BIK gert það líka.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×