Sport

„Áttum bara erfitt með að stoppa Banda­ríkja­manninn“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Steinar Kaldal telur liðið þurfa hrista skjálfann úr sér fyrir næsta leik.
Steinar Kaldal telur liðið þurfa hrista skjálfann úr sér fyrir næsta leik. Vísir/Hulda Margrét

Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, segir sína menn hafa átt í miklu basli með að stöðva Jamir Chaplin í 108-90 tapi gegn Keflavík í fyrstu umferð Bónus deildar karla í kvöld.

„Rosalega sveiflukennd frammistaða. Mér fannst við byrja þetta ágætlega, erum inni í leiknum. Það var einhver tíu stiga munur í hálfleik. Allar tölur þannig séð jafnar hjá okkur en við áttum bara erfitt með að stoppa Bandaríkjamanninn.“

„Keflavík spilaði bara ótrúlega vel og voru með flott flæði í leiknum og völtuðu bara yfir okkur þarna á tímabili.“

Aðspurður hvað hafi helst vantað upp á frammistöðuna nefndi han sjálfstraust og betra flæði í sóknarleiknum.

„Meira sjálfstraust, meira swag, hreyfa boltann betur. Þegar við hreyfðum hann þá fengum við yfirleitt opin skot. Nýtingin datt svo mikið niður í seinni hálfleik og þá verður þetta stór munur og menn kannski fljótir að hengja haus.“

Steinar var skýr þegar hann var spurður út í frammistöðu erlendu leikmannana og telur að þeir þurfi að skila meira framlagi ef Ármann ætlar að ná árangri í vetur.

„Ég þarf meira frá þeim, það er alveg ljóst. Ef við ætlum að eiga breik þá þurfa þeir að vera einhvers staðar yfir 50 stig samanlagt. Það er bara þannig og það var ekki þannig í kvöld.“

Ármanni hefur verið spáð neðsta sæti deildarinnar og falli fyrir tímabilið af sérfræðingum Sýnar Sport.

„Við þekkjum það að vera spáð þarna niðri. Mér sýnist kollegar mínir í körfuboltanum líta á okkur eins og gaurana í Cool Runnings myndinni góðu. Þeir telja okkur ekki vera með nógu sleipan sleða til að ná rennsli eða eitthvað. Við þurfum bara að vinna í því að ná því og slípa okkur betur saman.“

Þrátt fyrir slaka frammistöðu og tap í kvöld hefur Steinar fulla trú á leikmannahópnum og að liðið geti sýnt betri frammistöðu í næstu leikjum.

„Auðvitað hef ég trú á liðinu, þetta eru topp náungar. Það er góður mórall í hópnum, menn eru tilbúnir í þetta. Það var einhver skjálfti í mönnum í kvöld en við þurfum að hrista það úr okkur fyrir næsta leik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×