Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar 7. október 2026 10:00 Umræða um stöðu barna og ungmenna beinist oft að áskorunum, en jafn mikilvægt er að draga fram það sem vel gengur og byggja á styrkleikum. Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Reykjavík 2026 varpa ljósi á líðan, heilsu, skólagöngu, félagsleg tengsl og þátttöku. Um 92% nemenda í 6.–10. bekk telja mikilvægt að leggja sig fram í námi, 87% líkar vel í skólanum og 90% líður vel í kennslustundum. Börnin og ungmennin okkar búa yfir áhuga, eru sterk félagslega og búa yfir tengslum sem geta stutt við nám og farsæld. Félagsleg tengsl eru einn helsti styrkurinn. Um 98–99% barna og ungmenna eiga einn eða fleiri góða vini og mörg taka þátt í íþróttum, listnámi, félagsmiðstöðvastarfi eða ráðum innan skóla. Slík þátttaka eflir sjálfstraust, samvinnu, ábyrgð og þrautseigju. Samkvæmt PISA 2025 felast styrkleikar íslenskra nemenda í þrautseigju, seiglu og félagslegum tengslum í skóla, þótt námsárangur sé undir meðaltali OECD. Tækifærið felst í að virkja þessa eiginleika með skýrum markmiðum, krefjandi en viðráðanlegum verkefnum og reglulegri endurgjöf. Um 90% nemenda í 6.–10. bekk upplifa stuðning fjölskyldu og 84% eiga auðvelt með að ræða vandamál við að minnsta kosti annað foreldri. Þessi tengsl eru mikilvægur verndandi þáttur og skapa góð skilyrði fyrir nám. Til að nýta styrkleikana betur þarf skóla- og frístundastarf að tengjast áhuga nemenda. Verkefni um íþróttir, tómstundir, listir, tækni, vísindi, samfélag eða umhverfi geta gert námið merkingarbærara. Samvinna, hópverkefni og stuðningur jafningja geta aukið virkni og skilning. Einnig má byggja sterkari brú milli náms, frístundastarfs og tómstunda og nýta skýr markmið, reglulega þjálfun, uppbyggilega endurgjöf og sterka liðsheild. Börn og ungmenni þurfa raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á eigið nám og skólasamfélag. Þegar hlustað er á hugmyndir þeirra og þeim falin ábyrgð eykst tilfinning fyrir tilgangi og eigin getu. Reykjavíkurráð ungmenna og þátttaka þess í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar er dæmi um slíkt. Jákvæð heildarmynd má þó ekki fela áskoranir einstakra hópa. Gögn sýna þreytu, álag, vanlíðan og ólíka stöðu eftir kyni og uppruna. Því þarf að styrkja tengsl milli fjölskyldna, skóla og skipulagðs frístundastarfs til að greina vanda snemma og koma inn með stuðning. Öflugar forvarnir byggjast á því að efla verndandi þætti, fylgjast með líðan barna og bregðast við áður en vandi festist í sessi. Samvinna heimila, skóla, frístundastarfs og velferðar- og heilbrigðisþjónustu getur komið í veg fyrir að vandi vaxi og skapað aðstæður þar sem fleiri börn tilheyra, ná árangri og nýta styrkleika sína. Höfundur er sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinn Jóhannsson Börn og uppeldi Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun