Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar 7. október 2026 09:03 Þegar kjörnir fulltrúar leggja fram tillögur í ráðum borgarinnar eiga íbúar að geta treyst því að fagleg vinnubrögð séu viðhöfð. Eins og ég hef áður skrifað um þurfa ákvarðanir að byggjast á gögnum, skýrum markmiðum og mati á áhrifum þeirra. Það vakti því athygli mína þegar fulltrúar nýs meirihluta lögðu fram tillögu í íþrótta- og útilífsráði um að Reykjavíkurborg tæki aftur yfir rekstur íþróttahússins að Austurbergi 3. Í greinargerðinni er breytingin sögð geta skapað hagræði, meðal annars fjárhagslegt, og bætt nýtingu hússins. Þar er hins vegar ekki settur fram tölulegur samanburður sem sýnir í hverju þetta hagræði felst. Áður en lengra er haldið er rétt að taka fram að ég er ekki hlutlaus í þessu máli. Ég á dóttur í Aþenu, hef þjálfað hjá félaginu og fylgst með starfinu í langan tíma. Ég þekki því af eigin raun hversu miklu starfið skiptir fyrir stúlkurnar og fjölskyldur þeirra. Þótt ég hafi fyrr í sumar aðeins dýft tánum í pólitík, án þess að það hafi verið markmiðið, er krafa mín um fagleg vinnubrögð óháð flokkapólitík. Þegar fjárhagslegt hagræði er nefnt sem rök fyrir ákvörðun er eðlilegt að kalla eftir útreikningunum. Í hverju felst hagræðið? Borgin þarf að birta samanburð á núverandi rekstri Austurbergs og fyrirhuguðum rekstri á hennar vegum, miðað við sama opnunartíma og þjónustu. Hvaða kostnaðarliðir eiga að lækka? Hvaða viðbótarkostnaður fylgir yfirtökunni? Hvernig er tekið tillit til þess kostnaðar sem Aþena hefur sjálf staðið straum af? Samkvæmt tillögunni á borgin að taka yfir ráðningarsambönd starfsfólksins og halda kjörum þess og réttindum óskertum. Það er því ekki augljóst hvaðan sparnaðurinn á að koma. Hann þarf að sýna með tölum. Ef áherslan er almennt betri nýting og hagkvæmari rekstur íþróttamannvirkja þarf líka að skýra forgangsröðunina. Hvaða samanburður liggur að baki því að Austurberg verði fyrir valinu? Ég nefni Dalhús, Egilshöll, Rimaskóla, aðra skólasali í Grafarvogi og aðstöðuna í Safamýri og Víkinni sem dæmi um mannvirki sem mætti skoða með sömu viðmiðum. Það felur ekki í sér gagnrýni á félögin sem nýta þau. Spurningin er hvort heildstætt mat hafi farið fram og hvort breytingum sé forgangsraðað eftir því hvar mestur ávinningur fæst, með hagsmuni iðkenda að leiðarljósi. Hvaða eftirspurn á að mæta? Betri nýting er önnur meginröksemd tillögunnar. Þá þarf að liggja fyrir hvernig húsið er nýtt í dag og hvaða eftirspurn er óuppfyllt. Hvaða félög hafa óskað eftir tímum í Austurbergi, hversu mörgum og hvenær? Hvaða óskum hefur verið hafnað? Aþena er ekki eini notandi hússins og því þarf að skoða heildarnýtinguna áður en núverandi fyrirkomulag er talið hindra uppbyggingu annarra. Það eru jafnframt fleiri leiðir til að byggja upp nýtt starf í hverfinu. Til dæmis mætti kanna nýtingu íþróttasalar Fellaskóla, þar sem ég æfði sjálf í mörg ár. Minni hópar gætu byrjað þar og færst í stærri sali eftir því sem þátttakan vex. Hefur sá möguleiki verið metinn? Fleiri félög á stundatöflu þýða ekki sjálfkrafa fleiri börn í íþróttum. Það þarf að vera eftirspurn, þjálfarar og einhver sem hefur metnað og úthald til að halda starfinu gangandi. Byggjum á því sem hefur tekist Starf Aþenu á sér að mínu mati fáar hliðstæður. Félagið hefur náð til barna og ungmenna sem áður tóku síður þátt í íþróttum. Af minni reynslu úr fjölmörgum íþróttafélögum og því sem ég hef fylgst með tel ég að ekkert verkefni síðastliðin 30 ár hafi gert meira til að efla íþróttastarf stúlkna í efra Breiðholti. Svona árangur verður ekki til af sjálfu sér. Hann byggist á fólki með hugsjón, trausti fjölskyldna og stöðugu starfi. Aðgangur að sal er mikilvægur, en einn og sér skapar hann ekki öflugt íþróttastarf. Í tillögunni er lögð áhersla á samvinnu við félögin í hverfinu. Þá er eðlilegt að spyrja hvernig samráði við Aþenu hafi verið háttað og hvernig þekking félagsins og reynsla nýtist í fyrirhuguðum breytingum. Það þarf einnig að skýra hvaða nýja starfsemi á að byggja upp, hver ber ábyrgð á henni og hvernig hún verður fjármögnuð. Hverjir munu þjálfa? Hversu mikið fjármagn fer í beina þjónustu við börnin og hversu mikið í stjórnun og skipulag? Hvernig verður árangurinn mældur? Almenn yfirlýsing um að efla íþróttastarf nægir ekki til að meta hvort ákvörðun hafi skilað árangri. Á að fjölga börnum í skipulögðu íþróttastarfi? Auka þátttöku stúlkna og barna af erlendum uppruna? Fjölga íþróttagreinum eða bæta nýtingu salarins? Verður nýting mæld í fjölda iðkenda, nýttum tímum eða fjölda félaga í húsinu? Þessi markmið þurfa skýra mælikvarða, viðmið um núverandi stöðu og tímasetta áætlun. Án þess verður erfitt að meta hvort breytingin hafi raunverulega bætt stöðu barnanna. Síðast en ekki síst þarf að tryggja framtíð þeirra 120 stúlkna sem æfa hjá Aþenu. Ef starfið leggst af vegna þess að ekki nást samningar sem tryggja áframhaldandi uppbyggingu, hvað tekur þá við fyrir þær? Það er ekki sjálfgefið að annar aðili byggi upp sambærilega starfsemi. Einn mikilvægasti mælikvarðinn væri hversu margar stúlknanna eru enn í skipulögðu íþróttastarfi eftir þrjú og fimm ár. Hefur áhættan á brottfalli verið metin og hvernig verður áframhaldandi þátttaka þeirra tryggð? Ég held að margir hafi vænst betri vinnubragða með nýjum meirihluta. Hér er tækifæri til að sýna þau í verki: birta kostnaðarsamanburðinn, gögnin um eftirspurnina og markmiðin sem á að ná. Við eigum að fjölga tækifærum barnanna og byggja áfram á því sem hefur skilað árangri. Útreikningar, þarfagreining og raunverulegt samráð eiga að koma á undan ákvörðuninni. Börnin í Breiðholti eiga skilið að fyrirheit um hagræði og betra starf séu studd gögnum og skýrri áætlun um framtíð þeirra. Hvar eru þau gögn? Höfundur er f oreldri iðkanda í Aþenu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Aþena Íþróttir barna Mest lesið Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun