Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar 6. október 2026 15:02 Í sautján ár hefur Frú Ragnheiði, skaðaminnkunarúrræði Rauða krossins, verið ekið um höfuðborgarsvæðið í þeim tilgangi að nálgast fólk sem þarf á þjónustunni sem þar býðst að halda. Í sautján ár hafa sjálfboðaliðar Rauða krossins staðið vakt eftir vakt, ekið milli hverfa og bæjarfélaga og mætt fólki þar sem það er statt. Á þeirra forsendum, án fordóma en af skilningi, auðmýkt og náungakærleik. Í Frúnni, eins og hún er gjarnan kölluð, er veitt margvísleg þjónusta sem telst til lágþröskulda heilbrigðisþjónustu. Í upphafi var þjónustan veitt í hjólhýsi. Nú fer hún fram í sérútbúnum bíl. Skjólstæðingar hafa samband og Frúnni er ekið á staðinn. Allt frá upphafi var ljóst að þörfin fyrir að veita skaðaminnkandi þjónustu var mikil. Þau sem hennar þarfnast hefur mörgum hverjum verið ýtt út á jaðra samfélagsins. Þau hafa mætt fordómum í okkar sameiginlegu kerfum sem eiga að grípa okkur þegar eitthvað bjátar á. Þetta er fólkið sem mætir hlýju viðmóti og virðingu af sjálfboðaliðum Frú Ragnheiðar, rétt eins og við öll eigum rétt á þegar við þörfnumst stuðnings. Sex kvöld í viku fer Frúin um höfuðborgarsvæðið til fundar við fólk sem þarf á stuðningi og nærveru að halda. Tilgangurinn er að vernda heilsu, draga úr skaða og koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll meðal fólks sem notar vímuefni. Í dag er verkefnið einnig rekið á Akureyri og Suðurnesjum. Einhverjir hváðu þegar hugtakið skaðaminnkun heyrðist fyrst í tengslum við verkefnið Frú Ragnheiði. Það hefur vissulega breyst og flestir hafa heyrt hugtakið í dag en þekkja kannski ekki vel hvað það þýðir í verki. Skaðaminnkun felur í sér að bregðast við þeim hættum sem geta fylgt vímuefnanotkun og leita leiða til að draga úr þeim. Þannig getum við stutt fólk við að vernda heilsu sína og auka öryggi, hver sem staða þess er og hvaða skref það er tilbúið að taka. Hjá Frú Ragnheiði fær fólk meðal annars öruggan búnað og getur skilað notuðum búnaði til öruggrar förgunar. Þar er veitt lágþröskulda heilbrigðisþjónusta, sálrænn stuðningur og aðstoð við að tengjast annarri heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu eða annarri þjónustu.[SJ1] Nýjasta viðbótin er efnagreining en í henni felst að fólk geti fengið staðfestingu á því sem efnin þeirra innihalda. Það hefur sýnt sig síðustu misseri að vöntun hefur verið á slíkri þjónustu og mikilvægt að hún sé veitt. Því kalli svaraði Rauði krossinn. Þetta er það sem átt er við með lágþröskuldaþjónustu, að gera leiðina að aðstoð eða stuðningi eins greiða og hægt er. Þjónustan tekur mið af aðstæðum fólks og þörfum þess. Með því að fara á vettvang getum við náð til einstaklinga sem eiga erfitt með að sækja sér aðstoð annars staðar. Samhliða Frúnni hefur Rauði krossinn einnig lagt sig fram við að fræða landsmenn alla um skaðaminnkun og hversu mikilvægt það er að sýna öðrum virðingu og huga að reisn fólks, þörfum, væntingum og vonum. Við sjáum að þörfin á slíkri fræðslu og slíku málsvarastarfi er enn mikil. Sautján ára afmæli Frú Ragnheiðar er tilefni til að gleðjast yfir því sem hefur verið byggt upp. Það er líka tilefni til að minna á sameiginlega ábyrgð okkar á því að fólk hafi aðgang að þjónustu, öryggi og mannúð. Sjálfboðaliðarnir eru kjarninn í verkefninu og skjólstæðingarnir hjarta þess. Við finnum áþreifanlega að þörf er á að tryggja skaðaminnkandi þjónustu traustan grundvöll til framtíðar og skjólstæðingunum leiðir áfram í heilbrigðisþjónustu, félagslegan stuðning og meðferð. Við þurfum líka að vanda orð okkar og framkomu gagnvart fólki sem notar vímuefni. Virðing á að fylgja allri þjónustu. Frú Ragnheiður hefur í 17 ár rétt fólki hjálparhönd. Á afmælisdaginn eru skilaboðin skýr: Líf hvers og eins skiptir máli og aðstoð á að vera aðgengileg öllum þegar hennar er þörf. Höfundur er verkefnastýra Frú Ragnheiðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fíkn Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun