Sýndu mynd af líkinu fyrir slysni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. september 2026 10:54 Georgios Ntentes er ákærður fyrir morðið á Edilsson Martin Zingara. Vísir/Anton Brink Lögreglumenn sem komu að rannsókn á andláti á Kársnesi árið 2025 gáfu skýrslu við aðalmeðferð málsins. Fyrir slysni var sýnd mynd af líki hins látna.
Annar dagur aðalmeðferðinnar í máli Georgios Ntentes hófst í morgun en hann sætir ákæru fyrir að hafa myrt Edilsson Zingara í nóvember 2025. Ntentes gaf sjálfur skýrslu í gær. Lögreglukona sem kom fyrst á vettvang segist hafa fengið tilkynningu um mann liggjandi á gólfinu í íbúð. Þegar hún ásamt öðrum komu á vettvang voru þar tvær konur sem mættu þeim og báðar í mikilli geðshræringu. Miðað við dómshald gærdagsins voru það systir hins látna og fyrrverandi kærasta. Þær höfðu brotið rúðu í hurð íbúðarinnar til að komast þar inn. Við þeim blasti hinn látni á gólfinu og voru garnirnar komnar út úr líkama hans. Á efri hluta líkisins var mikið blóð. Á honum voru stungusár á hálsi, eitt fyrir miðja bringu og hitt neðarlega á maganum. Í gær var sýnd ljósmynd af hettupeysu sem talið er að hinn látni hafi verið í en á henni voru sjö göt eftir eggvopn. Við skýrslutöku lögreglumanns úr tæknideild var mynd af líkinu fyrir slysni sýnd á skjá í dómsal þegar sýna átti mynd af inniskóm. Aðstandendur hins látna hafa fylgst með aðalmeðferðinni og yfirgáfu nokkrir dómsal í kjölfar þess. Heyra mátti inn í salinn frá ganginum að eitt þeirra var í miklu uppnámi vegna þessa. Dómarinn biðlaði til sækjanda, sem fletti myndinni upp að beiðni verjanda, að passa upp á myndbirtingu. Þinghald verður lokað klukkan 11:15 þegar réttarmeinafræðingur gefur skýrslu og farið verður yfir geðmat. Gera má ráð fyrir að viðkvæmari ljósmyndir verða sýndar þá. Blóðslettur víða Miðað við lýsingar lögreglunnar var íbúð Zingara, sem var lítil tveggja herbergja kjallaraíbúð við Skjólbraut, í töluverðri óreiðu. Allir lögreglumennirnir taka undir óreiðuna og segir einn þeirra óreiðuna hafa verið sambland af framkvæmdavinnu og líkt og komið hefði verið til átaka. Þá voru blóðslettur víða um íbúðina. Tæknideildin rannsakaði blóðsletturnar og voru þær bæði úr hinum látna og Ntentes. Þegar hinn ákærði gaf skýrslu í gær sagðist hann oft hafa skorið sig á heimilinu við framkvæmdavinnu og væri oft með opin sár á höndunum þar sem hann starfaði sem kokkur. Tæknideildarlögreglan er einnig spurð út í bíl hins ákærða en þar fannst ekkert blóð. Bíllinn var þó skoðaður nokkrum dögum eftir að Zingara fannst látinn en að sögn lögreglumannsins getur hemóglóbín í blóð fundust nokkrum dögum eftir á. „Fljótt á litið fannst manni að eitthvað saknæmt gæti hafa átt sér stað, viðbragð frá lögreglu var með þeim hætti,“ sagði einn lögreglumannanna. Tveir rannsóknarlögreglumenn frá miðlægri deild lögreglunnar voru kallaðir út auk tveggja tæknimanna til að rannsaka vettvang. Einnig hafi starfsmenn kirkjugarðanna sem venjulega sjá um að flytja lík þeirra sem andast í heimahúsi ekki fengið að koma inn í íbúðina. Skóförin umtöluðu Þó nokkrum tíma hefur verið varði í að spyrja út í skóbúnað ákærða sem samkvæmt upptöku var í hvítum Nike-skóm. Skórnir fundust aldrei og sagði ein lögreglukonan að Ntentes hefði verið misvísandi í yfirheyrslu lögreglu um hvað varð um skóna, hvort að þeir væru í geymslu eða hefði verið hent á Sorpu. Hann sást seinna um kvöldið á upptöku í öðrum skóm sem voru svartir. Skóför sem passa við bæði skópörin fundust á vettvangi og var blóð á öðru þeirra. Lögreglumenn úr tæknideild sögðust hafa borið skóförin sem fundust við skó hins látna og pössuðu þau ekki. Einnig leitaði lögreglan að fatnaði sem Ntentes á að hafa verið í umrætt kvöld en hann fannst ekki. Sendi skilaboð dögum seinna Lögreglan fór yfir annan síma Zingara. Hann átti tvo farsíma en tókst lögreglu ekki að komast inn í hinn símann til að taka afrit. Þar máti sjá nokkru skilaboð og símtöl sem ekki var svarað. Meðal þess voru skilaboð frá Ntentes sem hann sendi 1. desember í gegnum Facebook. „Bróðir, hvar ert þú? Hringdu þegar þú sérð skilaboðin,“ skrifaði hann. Þar mátti einnig finna skilaboð frá konu sem sendi Zingara ítrekuð skilaboð og stóð til að þau myndu hittast. Hún neitaði hins vegar að koma í skýrslutöku hjá lögreglu. Einnig var farið yfir síma ákærða og kom þar fram að hann hefði ekkert notað símann frá því klukkan 19:39 föstudagskvöldið 28. nóvember þar til um hádegi daginn eftir. Hins vegar hefði síminn sjálfvirkt tengst Bluetooth-tæki í bílnum hans þegar hann steig um borð. Þegar símar þeirra beggja voru raknir af lögreglu mátti sjá að Zingara og Ntentes voru á sama stað á heimili Zingara 25. nóvember, 27. nóvember og aðfaranótt 28. nóvember. Einnig hafi þeir verið saman nálægt Furugrund í Kópavogi seinnipartinn 28. nóvember. Systir hins látna sagði í sínum vitnisburði að Zingara hafi sagt henni að hann ætlaði að hitta Ntentes þennan dag þar sem sá ákærði skuldaði brotaþola pening. Það hafi ekki gengið eftir og hafi Ntentes sagt að þeir myndu hittast síðar um daginn og hann myndi greiða peninginn þá.
Manndráp á Skjólbraut í Kópavogi Dómsmál Kópavogur Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Sýndu mynd af líki hins látna fyrir slysni Ragnar Þór segist ekki hafa haft neitt með skilaboðin til Guðmundar Inga að gera Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent Sjá meira