Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Birgir Olgeirsson skrifar 29. september 2026 12:01 Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir sterkara gengi krónunnar eiga að draga úr verðhækkunum á innfluttum vörum. Föt og skór séu þegar ódýrari en fyrir ári. Vísir/Lýður Valberg Verðbólga mældist 5,9 prósent í september og hefur ekki verið meiri í rúm tvö ár. Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir hækkað eldsneytisverð skýra nær alla aukninguna frá ágúst. Hún býst við að verðbólgan haldist yfir fimm prósentum næstu mánuði.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39 prósent frá ágúst, þegar ársverðbólga var 5,6 prósent. Hún var síðast meiri í ágúst 2024, þegar hún mældist sex prósent. Skatturinn aftur kominn í 24 prósent Bensín hækkaði um 16,1 prósent milli mánaða og dísilolía um 18,1 prósent, samkvæmt Hagstofunni. Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti rann út 1. september og fór skatturinn þá aftur úr ellefu í 24 prósent. „Eldsneyti í heild sinni er að hækka ársverðbólguna um 0,45 prósentustig og þar af er hækkunin vegna hækkunar á virðisaukaskatti 0,32 prósentustig,“ segir Una í samtali við Vísi. Skattbreytingin skýrir stærstan hluta eldsneytishækkunarinnar. Eldsneyti hefði þó einnig hækkað án hennar. Hagstofan reiknar út að með óbreyttum virðisaukaskatti hefði bensín hækkað um 3,9 prósent frá ágúst og dísilolía um 5,7 prósent. Una bendir jafnframt á hækkun olíuverðs á heimsmarkaði. Á móti eldsneytishækkununum lækkuðu flugfargjöld til útlanda um 11,7 prósent í september. Hagstofan segir jafnframt að kostnaður við göngudeildarþjónustu hafi hækkað um 2,6 prósent, meðal annars vegna hækkunar komugjalda á heilsugæslu. Rólegra á fasteignamarkaði Una segir húsnæðiskostnað enn hækka, en minna en á sama tíma í fyrra. Hann ýti því áfram undir verðbólgu þótt áhrifin fari minnkandi. Hún segir fasteignamarkaðinn ekki frosinn, en þar sé minni gangur en á síðustu misserum. „Hann er enn þá að hækka vísitöluna en hækkunin er bara minni þannig að þetta er að draga úr verðbólguþrýstingi,“ segir Una um húsnæðiskostnaðinn. Hagstofan styðst við leigusamninga þegar hún metur kostnaðinn við að búa í eigin húsnæði. Breytingar á leiguverði hafa því áhrif á húsnæðislið verðbólgumælingarinnar, eins og Una bendir á. Verðbólga án húsnæðiskostnaðar mældist 5,7 prósent í september. Evran um tíu krónum ódýrari en í ársbyrjun Krónan hefur styrkst um tæp sex prósent gagnvart gjaldmiðlum helstu viðskiptalanda frá áramótum, samkvæmt gengistölum Seðlabankans. Evran kostaði tæpar 148 krónur í ársbyrjun en um 137 krónur nú. „Það ætti að valda því að við sjáum minni þrýsting koma úr ýmsum innfluttum vörum. Nú, við sjáum það að föt og skór eru til dæmis ódýrari núna en fyrir ári síðan,“ segir Una. Hún segir að sterkari króna gæti einnig haft áhrif á verð matvöru en að enn eigi eftir að koma í ljós hversu mikið skili sér þar. Una telur jákvætt að sveitarfélög hafi lýst yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á næsta ári. Það breyti þó ekki horfum hennar fyrir næstu mánuði. „Ég held að við getum alveg búist við því að vera í þessum gildum, svona yfir 5% verðbólgu, núna næstu mánuðina.“ Landsbankinn hafði spáð 5,8 prósenta verðbólgu í september. Nýja mælingin er því lítillega hærri en bankinn gerði ráð fyrir.
Seðlabankinn Landsbankinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngumál Bensín og olía Verslun Fasteignamarkaður Íslenska krónan Verðlag Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Sjá meira