Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Freyja Þórisdóttir skrifar 28. september 2026 20:54 Parastoo Ahmadi streymdi tónleikum sínum í desember 2024 á Youtube-rás sinni en þar kom hún fram án höfuðslæðu. Skjáskot/Youtube Þekkt söngkona í Íran hefur verið fundin sek um birtingu „ruddalegs og ósæmilegs efnis“ og mun hún hljóta sjötíu og fjögur svipuhögg sem refsingu. Efnið var beint streymi frá tónleikum hennar í desember 2024 þar sem hún kom fram án þess að klæðast hijab og í ermalausum kjól. Henni verður einnig gert að yfirgefa heimaland sitt í tvö ár.
Hin tuttugu og níu ára gamla Parastoo Ahmadi er vinsæl írönsk söngkona sem kom fram án höfuðslæðu og í ermalausum kjól á Youtube-rás sinni í desember 2024. Írönsk lög banna opinberar framkomur kvenna og krefjast þess að þær beri höfuðslæður og siðlegan klæðnað. Ekki glæpur að halda tónleika Mynbandið fór sem eldur í sinu um samfélagsmiðla eftir að því var fyrst deilt og fékk milljónir áhorfa en sagt var að framkoman væri „í bága við lög og menningarlegar reglugerðir landsins“, er fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Þar segir einnig að greint hafi verið frá því í júní að sakadómstóll í Qom hefði fundið Ahmadi og átta meðlimi hljómsveitar hennar og framleiðsluteymis seka um „móðgun við almennt siðferði“. Haft er eftir einum lögmanna hennar að þeim þyki tónleikarnir alls ekki hafa verið glæpsamlegir og að „dómstóllinn beitti einni hörðustu refsingu sem völ er á fyrir þessar ákærur, þótt sektir og vægari refsingar hafi einnig verið í boði.“ Taka á sig svipuhöggin Svo virðist sem aðalástæðan fyrir því að dæma svo harkalega hafi verið að setja fordæmi svo að það séu minni líkur á því að aðrir geri eins og Ahmadi. Þá hafi aðrir íranskir tónlistarmenn tjáð sig um dóminn og þeirra á meðal sé söngkonan Googoosh. „Megi þessir dimmu dagar taka enda og megi konur endurheimta frelsi til að velja hvernig þær lifa og klæðast og megi listræn tjáning blómstra á ný í okkar dýrmæta heimalandi,“ er haft eftir henni, sem er einnig í útlegð frá Íran, á Instagram. Tónlistarmaðurinn Hossein Alizadeh hafi sagst vera „reiðubúinn að taka sjötíu svipuhögg í stað Parastoo Ahmadi“. Samkvæmt írönskum lögum, sem byggja á túlkun landsins á sjaríalögum, verða konur og stúlkur yfir kynþroskaaldri að hylja hár sitt með hijab-slæðu og klæðast síðum, víðum fötum til að fela líkamsvöxt sinn. Myndbandið af söngatriði Ahmadi má sjá hér fyrir ofan.
Íran Tónlist Dómsmál Tengdar fréttir Fangelsi og 91 svipuhögg fyrir að dansa með „Happy“ Í myndbandinu má sjá þrjá menn og þrjár konur þar sem þau dansa á götum og húsþökum í írönsku höfuðborginni Teheran. 19. september 2014 19:59 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira
Fangelsi og 91 svipuhögg fyrir að dansa með „Happy“ Í myndbandinu má sjá þrjá menn og þrjár konur þar sem þau dansa á götum og húsþökum í írönsku höfuðborginni Teheran. 19. september 2014 19:59