Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. september 2026 21:45 Það mátti vart sjá hvort var lukkulegra með myndina, Colman eða Dísa. Bandaríska sjónvarpsstjarnan Colman Domingo spókaði sig um í miðbæ Reykjavíkur í dag. Hann er nýkominn frá Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum þar sem fram fóru tökur á þriðju seríunni af Netflix þáttunum Four Seasons.
Það eru listakonurnar í Kirsuberjatréinu á Vesturgötu sem greina frá því að leikarinn hafi sótt þær heim í dag. Hann kíkti við í listabúðinni í hádeginu og sat fyrir á mynd með einni af listakonunum Dísu Jóhannsdóttur. Domingo fer með stórt hlutverk í Four Seasons á Netflix ásamt Tinu Fey og fleiri valinkunnum leikurum. Þættirnir fjalla um miðaldra vini sem fara reglulega í frí saman þvert á árstíðir. Domingo er líklega þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Ali Muhammad í sjónvarpsþáttunum Euphoria frá HBO sem skörtuðu Zendaya, Jacob Elordi og Sydney Sweeney í aðalhlutverkum. Hann skaust upp á stjörnuhimininn árið 2015 í hlutverki Victor Strand í uppvakingaþáttunum Fear the Walking Dead. Þá fór Domingo með risahlutverk í Disclosure Day, nýjustu myndinni úr smiðju Steven Spielberg sem sýnd var í kvikmyndahúsum fyrr á þessu ári. Hann fór auk þes með hlutverk í kvikmyndinni Michael um Michael Jackson en þar fór Domingo með hlutverk föðurs söngvarans, Joe Jackson. Hann er því hægt og bítandi að færa sig yfir á hvíta tjaldið. Domingo var nýverið í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina CNN. Þar sagði hann frá því að hann hafi átt erfitt uppdráttar snemma á ferlinum, en hafi þó aldrei gefist upp.
Íslandsvinir Hollywood Bíó og sjónvarp Reykjavík Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Fleiri fréttir Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Sjá meira