Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Lovísa Arnardóttir skrifar 23. september 2026 20:03 Húsin eru byggð í Lettlandi og koma tilbúin. Aðsend Bláa lónið og Byko hafa undirritað kaupsamning um kaup á 21 smáhýsi frá Byko til að setja upp í Þjórsárdal. Húsin eru liður í umfangsmikilli uppbyggingu Bláa lónsins í Þjórsárdal en fyrirhugað er að húsin verði 40 þegar framkvæmdum lýkur.
Í maí voru undirritaðir sérleyfis- og lóðaleigusamningar á milli íslenska ríkisins og Bláa lónsins hf. um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og annarrar atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu í Þjórsárdal. Auk starfseminnar í gestastofunni vinnur Bláa lónið að uppbyggingu hótels í Rauðukömbum, hótelsins Mountain Retreat sem verður að hluta grafið inni í fjallshlíð, og Fjallabaðanna. Samkvæmt tilkynningunni eru smáhýsin framleidd í verksmiðju Byko í Lettlandi og koma fullbúin til landsins, það er með innréttingum, hreinlætisaðstöðu og öllum frágangi, og því tilbúin til uppsetningar. Þar kemur einnig fram að fjölbreytt úrval húsa verði í boði sem henti ólíkum þörfum, hvort sem um er að ræða pör, fjölskyldur eða þá sem kjósa einfaldari gistingu í húsum með kojum. Marki upphaf starfseminnar í Þjórsárdal „Við erum afar stolt og þakklát fyrir það traust sem okkur er sýnt með þátttöku okkar í þessari metnaðarfullu uppbyggingu í Þjórsárdal. Það er ánægjulegt að fá að leggja okkar af mörkum til svo spennandi verkefnis,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri Byko, í tilkynningunni. „Við höfum frá upphafi lagt áherslu á metnað og fagmennsku í Þjórsárdal og þess vegna lá beinast við að vinna með Byko. Húsin rísa í fallegu skóglendi við Sandá og styrkja vel fjölbreytt framboð gistingar í Þjórsárdal. Húsin munu marka upphaf starfsemi okkar í Þjórsárdal þegar þau opna sumarið 2027 þegar Fjallaböðin sjálf verða tilbúin 2028,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa lónsins, í tilkynningunni. Í tilkynningu um smáhýsin segir að uppbygging Bláa lónsins í Þjórsárdal byggi á langtímasýn um aukið aðgengi að náttúru og sögu dalsins, með það að markmiði að gera hann að heildstæðum áfangastað, með virðingu fyrir sérstöðu svæðisins. Í tilkynningu segir að uppbyggingin muni skapa fjölbreytta möguleika til afþreyingar í Þjórsárdal og styrkja stöðu svæðisins sem áfangastaðar fyrir innlenda jafnt sem erlenda ferðamenn, allt frá gistingu í hágæða smáhýsum til fjallabaða, gönguferða og fræðslu um sögu og náttúru dalsins. Þar sé hægt að skoða Stöng, Háafoss, Hjálparfoss og Gjánna. Fjölbreytt úrval húsa verður í boði. Aðsend „Verkefnið er jafnframt í takt við áherslur á að dreifa ferðamönnum víðar um landið og lengja ferðamannatímabilið, og fellur vel að metnaði Skeiða- og Gnúpverjahrepps og stjórnvalda um öfluga uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að Byko og Bláa lónið hafi um árabil verið öflugir samstarfsaðilar. Fyrirtækin hafi átt í samstarfi við Blue Lagoon Retreat hótelið í Svartsengi, sem og í Kerlingarfjöllum og við breytingar á Fontana við Laugarvatn. Húsin eiga að falla að umhverfinu. Aðsend Frá undirritun kaupsamningsins milli Bláa lónsins og BYKO um uppbyggingu í Þjórsárdal. Fremst eru Sigríður Margrét Oddsdóttir og Sigurður Brynjar Pálsson og frá vinstri í efri röð eru Magnús Orri Marínarson Schram, Baldur Helgi Snorrason, Hartmann Kárason, Jón Bjarni Jóhannsson, German Castillo og Eggert Kristinsson.Aðsend
Bláa lónið Ferðaþjónusta Skeiða- og Gnúpverjahreppur Tengdar fréttir Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Bláa lónið hefur fest kaup á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og er stefnt að samruna fyrirtækjanna. Þá hefur Bláa lónið hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað. 16. júní 2026 14:05 Fjallaböðin á lokastigi hönnunar Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum. 18. júlí 2022 13:22 Hundruð íbúða byggðar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Hundruð íbúða verða byggðar í þéttbýliskjarnanum Árnesi í Skeiða og Gnúpverjahreppi í tengslum við virkjanir í sveitarfélaginu og opnun Fjallabaðanna og Gestastofu í Þjórsárdal. Þá er búið að ákveða að byggja íþróttahús í Árnesi og stækka skólann þar. 7. janúar 2024 13:32 Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira
Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Bláa lónið hefur fest kaup á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og er stefnt að samruna fyrirtækjanna. Þá hefur Bláa lónið hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað. 16. júní 2026 14:05
Fjallaböðin á lokastigi hönnunar Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum. 18. júlí 2022 13:22
Hundruð íbúða byggðar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Hundruð íbúða verða byggðar í þéttbýliskjarnanum Árnesi í Skeiða og Gnúpverjahreppi í tengslum við virkjanir í sveitarfélaginu og opnun Fjallabaðanna og Gestastofu í Þjórsárdal. Þá er búið að ákveða að byggja íþróttahús í Árnesi og stækka skólann þar. 7. janúar 2024 13:32