„Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. september 2026 16:31 Húðflúrslistakonan Katelyn Larson og leikarinn Hudson Williams reyna ítrekað að setja aðdáendum leikarans skýr mörk. Christopher Polk/Variety via Getty Images Líf húðflúrslistakonunnar Katelyn Larson breyttist gríðarlega þegar kærasti hennar til margra ára öðlaðist alheimsfrægð á örskotsstundu. Sá er leikarinn Hudson Williams sem sló algjörlega í gegn í hlutverki sínu sem Shane Hollander í hokkíástarþáttunum Heated Rivalry. Velgengnin hefur ekki bara verið dans á rósum og hafa aðdáendur ítrekað farið yfir mörk bæði Hudsons og Katelynar.
Parið kom fyrst fram saman á rauða dreglinum fyrir sex mánuðum og æstir aðdáendur fóru að kynna sér allt sem hægt var um Katelyn. Þá voru þeir fljótir að átta sig á því að hún starfaði sem húðflúrari á stofu í borginni Vancouver í Kanada. Nýlega gagnrýndi Larson aðdáendur Heated Rivalry sem höfðu „farið yfir ákveðin mörk nýlega“. „Augljóslega hafa mörg ykkar fundið stofuna vegna ákveðins þáttar og það er meira en í lagi,“ skrifaði hún í Instagram-sögu hjá sér á dögunum. „Hér dreg ég mjög skýr mörk: að bóka tíma hjá mér eða einhverjum öðrum eingöngu vegna tengsla minna við þáttinn er rosalegt brot á mínu einkalífi. Að mæta í tímann og spyrja samstarfsfólk mitt einhverra spurninga um mig eða Hudson er gríðarlega óþægilegt fyrir alla.“ Þrátt fyrir að Larson hafi beðið þá sem ætla sér að koma á húðflúrstofuna hennar eingöngu vegna tengsla hennar við Hudson um að hætta því benti hún á að auðvitað væru áhugasamir velkomnir. „Það er fullkomlega í lagi ef þið fylgið mér eða einhverjum af hinum listamönnunum vegna þess að ykkur líkar í alvöru við listina og viljið fá flott húðflúr. Gerið það endilega og ykkur þarf aldrei að líða óþægilega yfir því.“ Katelyn heimsótti Ísland í byrjun september og virtist njóta þess vel að vera hérlendis í friði, eins og sjá má á myndunum hér að neðan: View this post on Instagram A post shared by katelyn <3 (@katelynlarsonnn)
Hollywood Húðflúr Kanada Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira