„Sjáum veikleika í þeirra leik“ Aron Guðmundsson skrifar 23. september 2026 11:31 Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks Vísir/Vilhelm Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, sér veikleika í pólsku meistaraliði sem Breiðablik tekur á móti í 32-liða úrslitum Evrópubikars kvenna í fótbolta í dag. Blikar munu reyna að nýta sér þá. „
Stemningin er góð fyrir þessu verkefni. Við erum spennt fyrir þessu, gaman að taka þátt í svona keppni og ég tel að leikmenn séu líka að horfa á þetta sem skemmtilega tilbreytingu frá Bestu deildinni,“ segir Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks í samtali við Vísi en klukkan fjögur í dag tekur liðið á móti Czarni Sosnowiec, ríkjandi Póllandsmeisturum og sigursælasta kvennaliði landsins frá upphafi. Klippa: Veikleikar sem Blikar munu reyna nýta sér „Við erum mjög klár í þetta og búin að fara vel yfir liðið, leikgreina þær og ég held við séum tilbúin.“ Útsláttarkeppni alveg frá byrjun til enda. Það hlýtur að vera kærkomið og bara áhugavert fyrir bæði þjálfarateymið og leikmenn að taka þátt í akkúrat svona einvígi? „Jú. Það er það. Ef þú tapar einvígi þá ertu bara úr keppni, það er bara þannig. En það sem er gott með þetta er að þú færð bæði heimaleik og svo náttúrulega þennan útileik. Að fá þá reynslu og upplifun að ferðast á milli landa, spila á svona alls konar völlum er bara mjög skemmtilegt fyrir okkur. Við erum þakklát fyrir að taka þátt í þessari keppni. Við erum að reyna komast áfram og viljum ná árangri í þessari keppni. Förum í þessa leiki til að vinna og reyna að koma okkur áfram.“ Hvernig einvígi áttu von á? Hvar liggja styrkleikar þessa andstæðings? „Ég myndi segja að þær séu gott sóknarlið, sækja á mörgum mönnum og eru alveg mjög beinskeyttar. Þær geta refsað, alveg klárlega, ef við erum ekki á tánum í varnarleiknum. En við sjáum alveg svona veikleika í þeirra leik líka, sérstaklega í varnarleiknum. Við erum búin að leggja leikinn upp þannig að við þurfum að verjast vel en samt held ég að við séum með nógu mikil gæði til að refsa þeim og skora mörk. Þetta er bara gott lið, við erum að taka þessa keppni bara alvarlega og þetta verður bara mjög erfiður leikur en við erum klár í það. Viðtalið við Ian Jeffs í heild sinni má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni. Leikur Breiðabliks og Czarni Sosnowiec hefst klukkan fjögur í dag og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Evrópubikar kvenna í fótbolta Fótbolti Íslenski boltinn Breiðablik Besta deild karla Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Sjá meira