Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Aron Guðmundsson skrifar 23. september 2026 07:17 Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjálfari Írlands. Getty/Stephen McCarthy Írsk knattspyrnugoðsögn segir ríkisstjórn Írlands hafa brugðist Heimi Hallgrímssyni og leikmönnum írska landsliðsins sem þurfi nú að svara fyrir það hvers vegna liðið muni mæta Ísrael í tveimur leikjum í Þjóðadeildinni.
Fyrirhugaðir leikir Íra við Ísrael hafa ekki fallið vel í kramið hjá Írum sem þykir það miður að þurfa að mæta Ísrael þegar ástandið á Gaza er eins og það er. Sjálfur hefur Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, þurft að standa í miklum stormi eftir ummæli sem hann lét falla á blaðamannafundi. Ísraelska knattspyrnusambandið kallaði Heimi heimskan vegna athugasemda hans um þjóðarmorðið á Gaza og það var ekki fyrr en í gær sem forsætisráðherra Írlands steig inn í umræðuna og lýsti yfir stuðningi við Heimi. Írska knattspyrnugoðsögnin Ray Houghton, sem á að baki 73 leiki fyrir írska landsliðið og spilaði á sínum ferli með liðum á borð við Liverpool, Aston Villa og Fulham, er á því að írska ríkisstjórnin hafi brugðist Heimi og hans lærisveinum. Houghton, í samtali við Irish Mirror, rifjar upp hvernig ríkisstjórnin steig inn í aðstæður og neitaði að gefa landsliði Júgóslavíu vegabréfsáritun. Sá leikur átti að fara fram í júní árið 1999 en fór ekki fram fyrr en seinna um árið. Núverandi ráðherrar í ríkisstjórn Írlands sem hafa íþróttamál á sinni könnu, Patrick O´Donovan og Charlie McConalogue, hafa báðir látið hafa það eftir sér að leikir Írlands við Ísrael eigi að fara fram. „Ég hefði haldið að ríkisstjórnin myndi beita sér meira í þessu máli,“ segir Ray Houghton. „Þannig að ákvörðun varðandi þessa leiki gæti verið tekin á æðra stigi.“ Leikmenn og þjálfarateymi Írlands sitji nú í súpunni. „Þeim er andskotans vandi á höndum.“
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Fótbolti Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Fleiri fréttir George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Sjá meira