Hefði þegið samtal við Jóhannes Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 21. september 2026 16:02 Málfríður Bjarnadóttir segir umræðuna að miklu leyti ósanngjarna. aðsend og vísir/vilhelm Stofnandi Læsis segir nýlega umræðu um smáforritið að miklu leyti ósanngjarna. Forritið sé ekki samfélagsmiðill og ekki ætlað börnum.
Í gær greindum við frá bréfi sem leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson sendi Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra vegna smáforrits sem hann þarf að nota, með barninu sínu, til að skrá heimalestur. Forritið heitir Læsir og er mörgum foreldrum grunnskólabarna kunnugt en það er notað í tæplega hundrað skólum. Jóhannes segir forritið ekkert annað en samfélagsmiðil sem ýti undir óþarfa samanburð og telur að snúa ætti aftur til þess að skrá lestur á blað. Hefðu þegið símtal frá Jóhannesi Málfríður Bjarnadóttir stofnandi Læsis segist fagna allri gagnrýni en finnst þessi tiltekna umræða að mörgu leyti ósanngjörn. „Við fögnum öllum ábendingum og allri gagnrýni en okkur finnst þetta svolítið ósanngjörn umræða eins og hún er sett fram núna.“ Hún segir að stofnendur Læsis hafi í gegnum tíðina fengið mikið af ábendingum frá kennurum og foreldrum. Margt af því sem finna má í forritinu sé til komið vegna ábendinga frá þeim. „Við hefðum fagnað því mjög mikið ef hann Jóhannes hefði haft samband við okkur.“ Læsir sé ekki samfélagsmiðill Aðspurð að hvaða leyti umræðan sé ósanngjörn segir Málfríður að í fyrsta lagi sé Læsir ekki samfélagsmiðill. „Þarna er verið að líkja Læsi við samfélagsmiðil. Í okkar huga er Læsir náttúrulega alls ekki samfélagsmiðill af því að þarna ertu ekki með neina aðra en sjálfa þig. Þú hefur ekki aðgang að neinu hjá öðrum og það er enginn fréttaveggur, engir vinir, engin læk, engin ummæli. Þú getur ekki fylgst með framvindu hjá neinum öðrum heldur en bara þínu eigin barni.“ Lestrarstundin enn skjálaus Þá sé umræða um skjátíma barna algjörlega óskyld Læsi. „Þetta er bara app sem heldur utan um heimalestur og krefst þess ekki að þú þurfir að hanga eitthvað í appinu. Það tekur innan við mínútu að skrá lestur og það er engin gagnvirkni sem býður upp á að það þurfi að hanga yfir appinu eða eyða lengri tíma í því og að sjálfsögðu er lestrarstundin enn skjálaus stund.“ Barnið þurfi aldrei að sjá skjáinn Læsir sé einungis forrit til að halda utan um heimalestur barna, eins og lestrarkortin gömlu gerðu. Foreldrarnir stofna aðgang og sjá um að skrá lesturinn enda ekki ætlast til að börnin noti forritið. „Barnið þarf aldrei að koma nálægt þessu. Forritið á ekki að vera í snjalltækjum barnanna, það á að vera í tækjum foreldranna.“ Kennarar fá rauntímaskráningu og geta fylgst með því hvaða bækur nemendurnir lesa, hversu oft og lengi þeir lesa. Með forritinu er hægt að skoða lestrarsögu barna aftur í tímann sem gefur kennurum betri yfirsýn auk þess sem hægt er að gefa endurgjöf og hrós í rauntíma. „Kennararnir geta síðan skráð lestur ef lesið er í skólanum og sömuleiðis geta foreldrar fylgst með því.“ Mikill tímasparnaður Málfríður segir að með tilkomu forritsins sparist mikill tími sem kennarar geti nýtt í beina kennslu. Sjálf er Málfríður kennari en hún og tveir aðrir eru saman með 43 nemendur. „Og að fara yfir gömlu lestrarheftin einu sinni í viku, 43 hefti, þetta var lágmark einn og hálfur klukkutími sem fór í þetta allar vikur.“ Auk þess sem tími fór í að finna heftin og hafa uppi á þeim sem gleymdust heima. „Í staðinn getur þessi tími nýst í beina kennslu.“ Málfríður segir að á bak við forritið séu þrír kennarar og einn forritari sem stofnuðu verkefnið með það fyrir augum að efla lestur barna og einfalda kennurum vinnuna. „Við höfum fengið gagnrýni á það að með tilkomu appsins þá til dæmis dettur lestrarkortið út sem innihélt oft límmiða og stimpla og svona. Þannig að í samtali okkar við skóla og foreldra þá fórum við þá leið að auka svolítið hvatninguna í appinu.“ Skjáskot úr forritinu.læsir Notkunin segi sína sögu um þörfina Jóhannes segir í bréfi sínu til ráðherra að um sé að ræða „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál. Málfríður segir það segja sína sögu að tæplega hundrað skólar hafi ákveðið að nota forritið. „Eingöngu vegna þess að kennarar og foreldrar hafa mælt með því við aðra kennara. Það segir sína sögu um þörfina.“ Stofnendur Læsis séu sem fyrr segir ekki hafnir yfir gagnrýni og fagni öllum ábendingum enda sé tilgangurinn að efla læsi og spara tíma. „Og létta undir með kennurum um leið og við aukum fagmennsku þeirra og yfirsýn. Fæstir vita hverjir eru á bak við Læsi enda höfum við aldrei auglýst okkur. Við erum sjálf kennarar sem unnum þetta bara af ástríðu.“
Skóla- og menntamál Grunnskólar Læsi Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari hefur sent Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra bréf vegna smáforrits sem hann þarf að nota, með barninu sínu, til að skrá heimalestur. Hann segir forritið ekkert annað en samfélagsmiðil sem ýti undir óþarfa samanburð. Hann telur að snúa ætti aftur til þess að skrá lestur á blað. 20. september 2026 14:30 Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Sjá meira
Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari hefur sent Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra bréf vegna smáforrits sem hann þarf að nota, með barninu sínu, til að skrá heimalestur. Hann segir forritið ekkert annað en samfélagsmiðil sem ýti undir óþarfa samanburð. Hann telur að snúa ætti aftur til þess að skrá lestur á blað. 20. september 2026 14:30