Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar 19. september 2026 11:03 Sem afskekkt eyríki í Norður-Atlandshafi er Ísland óhjákvæmilega háð flugsamgöngum. Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð, brúin sem tengir samfélag okkar og atvinnulíf við umheiminn. Þeir sem búa yfir valdi til að teppa þessa lífæð fara því með mikil völd. Þegar kjaradeilur ógna þessum lífsnauðsynlegu innviðum skapast samstundis djúpstæður titringur í hagkerfinu öllu. Þetta varnarleysi blasir nú við í kjaradeilu flugvirkja, þar sem samningaviðræður eru í hnút og bent hefur verið á að efnahagslegt tjón samfélagsins geti numið vel yfir milljarði króna á dag ef flug leggst af. Kastljós umræðunnar beinist jafnan að samningsaðilum beggja vegna borðsins og þeim þúsundum farþega sem óttast um ferðaáætlanir sínar. Í hálfgerðum blindbletti kjarabaráttunnar situr hins vegar sá hópur sem verður fyrir einna þyngsta fjárhagslega og rekstrarlega högginu án þess að eiga nokkurn þátt í deilunni: íslenskar ferðaskrifstofur. Óvissan hefst löngu fyrir boðaða vinnustöðvun Raunverulegt tjón af völdum vinnudeilna hefst ekki þann dag sem flug fellur niður, heldur um leið og boðað er til aðgerða. Þegar stórir hópar, fyrirtæki á leið í starfsmannaferðir með tugi eða hundruð starfsmanna, standa frammi fyrir boðuðu verkfalli, treysta fyrirsvarsmenn þeirra sér sjaldnast til að bíða átekta fram á síðustu stundu í von um að samningar á milli aðila náist. Margir kjósa því að hætta við ferðina með nokkurra daga fyrirvara. Við þetta lendir ferðaskrifstofan í gildru. Á meðan flugfélagið hefur ekki formlega aflýst flugi, líta flugfélög og erlendir þjónustuaðilar svo á að samningar séu í fullu gildi og að einhliða afbókun þýði að öll tryggingargjöld glatist. Á sama tíma krefst viðskiptavinurinn fullrar endurgreiðslu eða frestunar. Ferðaskrifstofan er þannig sett í þá óbærilegu stöðu að bera óskipta fjárhagslega áhættu af óvissu sem hún fær með engu móti stýrt. Hreint rekstrartap án vanefnda Fæstir gera sér grein fyrir þeim erfiða rekstrarlega veruleika sem ferðaskrifstofur búa við. Þær starfa jafnan á örþunnum framlegðarmörkum, oft aðeins 5 til 10 prósenta þjónustuálagningu, en bera engu að síður 100 prósenta áhættu af heildarfjárhæð ferðarinnar þegar óviðráðanleg atvik skella á. Þegar ferð fellur niður, fær neytandinn hverja einustu krónu til baka. En hver bætir ferðaskrifstofunni þær óteljandi vinnustundir sem fóru í margra mánaða undirbúning, sérsniðna dagskrárgerð og samskipti við erlenda þjónustuaðila? Sú vinna og tilheyrandi launakostnaður verður að hreinu, óbættu rekstrartapi. Samhliða breytist hefðbundin starfsemi í krefjandi neyðarstjórnun allan sólahringinn vegna örvæntingar viðskiptavina. Í ofanálag reynir ástandið á dýrmæt viðskiptasambönd við erlenda samstarfsaðila, þar sem oft reynist þrautin þyngri að vinda ofan af samningum og endurheimta fyrirframgreidda fjármuni. Reikningurinn sem lendir á milliliðnum Þetta kerfislæga misgengi birtist í sinni skýrustu mynd í dæmigerðri starfsmannaferð fyrir 100 manns til Evrópu sem kostar um 35 milljónir króna. Af þeirri fjárhæð fara um 12 til 15 milljónir króna í flugmiða en yfir 20 milljónir bundnar í hótelgistingu og viðburðum erlendis, sem ferðaskrifstofan hefur þegar greitt áfram mánuðum fyrir brottför. Falli flugið niður vegna verkfalls flugvirkja, kveður 3. og 5. mgr. 15. gr. laga um pakkaferðir nr. 95/2018 á um að neytandinn eigi rétt á fullri endurgreiðslu allrar heildarfjárhæðarinnar innan 14 daga. Á meðan flugfélaginu ber að endurgreiða flugmiðana innan sjö daga samkvæmt 1. mgr. 8. gr. reglugerðar EB nr. 261/2004, eru erlendir samstarfsaðilar ekki bundnir af sambærilegri skyldu. Þeir vísa gjarnan í eigin afbókunarskilmála, neita endurgreiðslu eða draga uppgjörið mánuðum saman. Ferðaskrifstofan situr því ein eftir í gapastokknum, neydd til að reiða fram tugi milljóna króna úr eigin vasa til að brúa bilið og mæta 14 daga lögboðnum fresti gagnvart neytandanum á meðan eigin fjármunir hennar eru læstir erlendis. Fyrir ferðaskrifstofu með nokkra slíka stórhópa hleypur heildarkrafan á hundruðum milljóna króna, en litlar og meðalstórar ferðaskrifstofur hafa sjaldnast bolmagn til að bíða eftir endurgreiðslu. Hagsmunir neytenda og virk samkeppni Hér verður jafnframt að horfa til þess að virk samkeppni á innlendum ferðamarkaði er eitt mikilvægasta hagsmunamál neytenda sjálfra. Samkeppniseftirlitið hefur í ákvörðunum sínum ítrekað áréttað nauðsyn þess að vernda rekstrarskilyrði sjálfstæðra ferðaskrifstofa andspænis samþættum risum á markaði. Íslenskar ferðaskrifstofur búa nú þegar við strangar kröfur um lögboðnar tryggingar til Ferðamálastofu á grundvelli laga nr. 96/2018 til að verja hagsmuni viðskiptavina sinna. Ef ósveigjanlegt lagaumhverfi og endurtekin verkföll þurrka út innlendar ferðaskrifstofur, leiðir það óhjákvæmilega til fákeppni, hærra verðs og skertra gæða. Neytendavernd sem í framkvæmd knésetur innlenda þjónustuaðila snýst á endanum gegn sjálfri sér og skilur neytendur eftir í verri stöðu. Til umhugsunar Það fær vart samrýmst grundvallarsjónarmiðum samningaréttar og réttlætis að saklaus þriðji aðili, atvinnurekendur sem eiga enga aðild að kjaraborðinu og geta með engu móti haft áhrif á framgang samninga, beri einir óskipta fjárhagslega áhættu af vinnudeilum annarra. Þótt verkfallsréttur sé stjórnarskrárvarinn, verður beiting hans í grunninnviðum samgangna að taka mið af meðalhófi og þeim miklu áhrifum sem vinnustöðvanir hafa á aðrar atvinnugreinar. Jafnframt er full ástæða til að stjórnvöld skoði hvernig hægt er að tryggja betra jafnvægi og meiri sanngirni þegar að ákveðnar stéttir njóta verkfallsréttar sem getur valdið umtalsverðum samfélagslegum skaða, í það minnsta verður að setja slíku valdi skýr mörk í lagatexta. Neytendavernd á að vera öflug, en hún er ekki sjálfbær ef hún varpar allri áhættunni yfir á milliliði. Íslensk ferðaþjónusta þarf á fyrirsjáanlegu og heilbrigðu starfsumhverfi að halda, þar sem sjálfstæð fyrirtæki eru ekki látin bera ein fjárhagslegan skaða af vinnudeilum sem þau eiga engan þátt í. Höfundur er lögfræðingur Félags atvinnurekenda (FA) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Flug Kjaramál Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Skoðun Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun