„Vitum hvernig fótbolta við viljum spila og hvað við stöndum fyrir“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 17. september 2026 21:59 Gylfi Tryggvason kemur skilaboðum áleiðis í leiknum Guðmundur/Vísir Grindavík/Njarðvík tapaði í kvöld 4-1 gegn Breiðablik í fyrstu umferð úrslitakeppni Bestu deildarinnar í efri hluta. Gylfi Tryggvason ræddi við Vísi eftir tapið í kvöld. „
Við vorum að spila við virkilega gott lið sem að verður mögulega Íslandsmeistari“ sagði Gylfi Tryggvason eftir leik. „Við fengum að máta okkur við þetta lið og vorum að reyna að halda áfram að finna leiðir til þess að vaxa sem lið og ég held að við getum lært mjög mikið af þessum leik og við getum bætt okkur í mjög mörgu á að hafa spilað þennan leik eins og við spiluðum hann“ Grindavík/Njarðvík voru mjög djarfar í uppspilinu í þessum leik og gáfu fullt af færum á sér. Þó þæf hefði verið lentar 2-0 undir eftir tæpt korter stóð aldrei til að breyta leikplani. „Fyrsta markið er bara dómaramistök, annað markið er hornspyrna þannig ég held að hvorug þeirra hafi eitthvað tengst okkar leikplani þannig nei það kom ekki til greina að breyta“ „Sama þó við hefðum verið að gera mistök og sama þó fyrstu tvö mörkin hefðu verið útaf uppspilinu þá hefði samt ekki komið til greina að breyta því svona höfum við náð árangri sem félag“ „Við höfum verið að spila svona fótbolta þó svo að við höfum kannski ýkt þetta aðeins upp núna að þá vitum við hvernig fótbolta við viljum spila og hvað við stöndum fyrir“ „Við höfum náð árangri á að gera það og við ætlum bara að halda áfram því þangað til að mér finnst liðið ekki vera að ná árangri þá mögulega skal ég fara íhuga eitthvað en okkur finnst þetta bara gaman, fótbolti má vera skemmtilegur líka þannig það er ekki ögn af efasemdum um hvernig við viljum spila fótbolta“ Eftir hálfgerða einstefnu í fyrri hálfleik þá varð aðeins meira jafnræði á leiknum í seinni hálfleik. „Leikurinn galopnaðist og þetta var þetta var mjög mikið fram og til baka fannst mér í seinni og varð mjög öðruvísi leikur en þær voru nátturlega komnar þremur mörkum yfir og þá geta þær stigið aðeins af bensíngjöfinni ef þær vilja það“ „Við fáum tækifæri til þess að skora úr vítaspyrnu hérna í byrjun seinni til að setja þetta í 3-1 í byrjun seinni, það hefði gert leikinn áhugaverðari hvað varðar úrslit“ Stephanie Bukovec kom inn á sem varamaður í framlínu Grindavík/Njarðvík í kvöld en hún hefur verið markmaður það sem af er móts. „Hún er bara sóknarmaður í dag. Hún var markmaður fram að bikarúrslitaleiknum og nú er bikarúrslitaleikurinn búinn. Nú er hún sóknarmaður og ætlar að vera sóknarmaður það sem eftir lifir tímabili hjá okkur“ „Hún er þá bara sóknarmaður og í því hlutverki að þurfa að vinna sér inn fyrir mínútum ef hún vill fá mínútur inni á vellinum. Hún er bara eins og hver annar leikmaður í dag“ „Auðvitað er þetta bara ævintýralegur ferill sem hún hefur haft og gerði bara ágætlega í dag og hún er áhugaverð týpa. Hún er bara sóknarmaður í dag“ sagði Gylfi Tryggvason.
Besta deild kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík Fótbolti Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Fleiri fréttir Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Sjá meira