Neytendur

Inn­kalla svefntæki fyrir ung­börn vegna bruna­hættu

Bjarki Sigurðsson skrifar
Love to Dream-svefntækið virkar ekki með ákveðnum tegundum hleðslutækja.
Love to Dream-svefntækið virkar ekki með ákveðnum tegundum hleðslutækja. Love to Dream

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur innkallað Love to Dream-svefntæki fyrir ungbörn vegna framleiðslugalla. Notkun vörunnar með tilteknum hleðslutækjum getur valdið því að rafhlaðan ofhitni sem getur leitt til bruna og hættu á alvarlegum brunasárum og eignatjóni. 

Þetta kemur fram í tilkynningu HMS á vef Vöruvaktarinnar.

Þar segir að tækin hafi verið seld á tímabilinu 2. janúar 2025 til 3. september 2026. Gerð tækjanna er LTD-SM23 og lotunúmer 7T12TN, 7W15TN og 8P01TN. Þau má finna á hlið tækisins eða aftan á umbúðunum. 

Varan var til sölu hjá Elko og Kara Kids. Neytendur sem eiga vöruna skulu hætta notkun hennar og hafa samband við söluaðila. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×