Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Smári Jökull Jónsson skrifar 15. september 2026 07:08 Úrskurður Hæstaréttar er vonbrigði fyrir Trump. Vísir/Getty Nýr úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna um póstatkvæði í þingkosningunum í nóvember er vonbrigði fyrir Donald Trump forseta. Trump undirritaði forsetatilskipun í mars þar sem innleiða átti nýjar kröfur með það að markmiði að takmarka slík atkvæði.
Hæstiréttur gaf út úrskurð sinn í gær og segja stjórnmálaskýrendur hann vera bakslag fyrir forsetann en Hvíta húsið hefur ekki tjáð sig um niðurstöðuna. Dómararnir staðfestu úrskurð héraðsdómara sem stöðvaði bandarísku póstþjónustuna USPS frá því að innleiða nýjar kröfur um póstatkvæði. Trump hefur frá því hann sneri aftur í Hvíta húsið reynt að þrengja að atkvæðagreiðslu í pósti þrátt fyrir að hann hafi sjálfur kosið með þeim hætti. Hefur hann lengi haldið því fram að aðferðin geri fólki, sem ekki sé með ríkisborgararétt, kleift að kjósa og almennt sé meiri hætta á svindli. Í kosningunum fyrir tveimur árum kusu 30 prósent kjósenda með því að senda atkvæði í pósti og voru það að mestu leyti demókratar. Yfir tuttugu ríki höfðuðu mál Trump gaf út forsetatilskipun í mars þar sem póstþjónustunni var falið að koma upp einkennisstrikamerkjum á umslög póstatkvæða. Þá áttu kjörstjórnir í ríkjum og sveitarfélögum að skila upplýsingum inn á sérstakan vef um þá kjósendur sem fá atkvæði send í pósti. Tuttugu og þrjú ríki auk höfuðborgarinnar Washington DC höfðuðu mál til að stöðva tilskipunina og þá benti stéttarfélg póstburðarfólks á að ekki væri unnt að þjálfa starfsfólk í tæka tíð fyrir kosningarnar sem fram fara þann 3. nóvember næstkomandi. Í málflutningi sínum hélt ríkisstjórn Trump því fram að nýjar reglur póstþjónustunnar stæðust stjórnarskrá og að ríki gætu ekki nýtt sér alríkispóstinn til að halda kosningarnar en um leið haldið því fram að kosningatengdur póstur væri undanþeginn valdheimildum póstþjónustunnar. Dómari í Boston setti lögbann á tilskipun Trump þann 4. september og taldi að innleiðing reglanna svo skömmu fyrir kosningar gæti svipt kjósendur atkvæðisrétti. Í síðustu viku hafnaði áfrýjunardómstóll síðan því að fresta þeim úrskurði og á sunnudaginn komst annar alríkisdómari að þeirri niðurstöðu að tilskipun Trump stæðist ekki lög. Sum ríki eru þegar byrjuð að dreifa póstatkvæðum fyrir þingskosningarnar en þar mun ráðst hvor flokkurinn, demókratar eða repúblikanir, munu fara með meirihluta á Bandaríkjaþingi. „Örvæntingarfull tilraun sem ólíklegt væri að bæri árangur“ Ólíklegt verður þó að teljast að síðasta orðið hafi verið sagt í málinu. Brett Kavanagh, sem telst til íhaldssamra dómara í Hæstarétti, tók undir niðurstöðuna um að hafna tilskipun forsetans en gaf til kynna að hann kynni síðar að dæma Trump í vil eftir því sem málarekstrinum líður fram. Hæstaréttardómarinn Brett Kavanaugh gerði grein fyrir atkvæði sínu í málinu.Vísir/Getty Skrifaði Kavanagh í áliti sínu að „að minnsta kosti talsverðar líkur væru á því að endanleg regla félli innan lögbundins valdsviðs póstþjónustunnar.“ Hann hélt því hins vegar fram að það væri handahófskennt og óskynsamlegt að beita reglunni í kosningunum núna. Dómararnir Samuel Alito og Clarence Thomas, sem einnig eru íhaldssamir, skiluðu séráliti. Þeir skrifuðu að andmælin gegn tilskipun Trump væri „örvæntingarfull tilraun sem ólíklegt væri að bæri árangur að lokum“ og sögðu póstþjónustuna búa yfir víðtækri heimild til að setja reglur um póstflutninga. Annað bakslagið á stuttum tíma Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Trump verður fyrir bakslagi vegna póstkosninga fyrir Hæstarétti. Í júní komst rétturinn að þeirri niðurstöðu að ríkjum væri heimilt að telja atkvæði sem póstlögð væru fyrir kjördag, þrátt fyrir tilraunir ríkisstjórnar Trump til að koma í veg fyrir að slík atkvæði væru talin ef þau bærust eftir að kjörstöðum væri lokað. Trump hefur áður haldið því fram að hann hafi tapað forsetakosningunum árið 2020 vegna útbreidds kosningasvindls.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Sjá meira