Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Kjartan Kjartansson skrifar 14. september 2026 13:48 Breytingar á reglum borgarinnar um auglýsingar í skólum eiga að auðvelda íþróttafélögum og öðrum sem bjóða upp á tómstundir að ná til skólabarna á skólatíma. Vísir/Vilhelm Aðstandendur íþrótta- og æskulýðsstarf fá að beina upplýsingum tímasetningar í starfinu beint til barna í grunnskólum með breytingum sem borgarráð samþykkti. Slíkum upplýsingum hefur hingað til átt að beina til foreldra.
Borgarráð samþykkti breytingar á reglum borgarinnar um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar á fimmtudag. Felld voru út skilyrði um að kynningarnar væru hluti af námi barna og að upplýsingum um tímasetningar starfsins skyldi beint til foreldra en ekki barnanna sjálfra. „Nú má kynna íþróttir, æskulýðs og tómstundastarf í grunnskólum Reykjavíkurborgar,“ skrifaði Bjarni Fritzon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og formaður skóla- og frístundaráðs í færslu á samfélagsmiðli í dag. Þar sagði hann borgarfulltrúa flokksins síns hafa fundið fyrir óánægju með eldri reglur um kynningar í skólum í kosningabaráttunni. Bjarni Fritzson, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborg.Vísir/Vilhelm Í greinargerð með tillögunni kom fram að ábendingar hefðu borist um að ekki væri nægilega opið fyrir kynningar í grunnskólum borgarinnar. Tillögunni væri ætlað að opna á frekari kynningar á æskulýðs-, íþrótta- og tómstundastarfi. „Markmið tillögunnar sé að styðja við þátttöku barna í fjölbreyttu frístundastarfi með aukinni vitundarvakningu um hvað stendur þeim til boða, án þess að opna fyrir óheftar auglýsingar eða bjóða upp á óhóflegt rask skólastarfi.“ Fjárhagsstaða hindrunin frekar en skortur á auglýsingum Fulltrúar meirihlutans í borgarráði bókuðu jafnframt að upplýsingar um starfið skiluðu sér ekki alltaf til allra barna. Því gæti samstarf skóla og þeira sem héldu úti tómastundastarfi aukið áhuga barna og þátttöku. „Breytingarnar fela í sér skýrari heimild til að kynna uppbyggilegt starf í þágu barna og ungmenna, á forsendum skólastjórnenda og með hagsmuni barnanna að leiðarljósi,“ sagði í bókuninni. Að tillögu minnihlutans var haldið inni ákvæði í reglunum um að upplýsingum um kostnað vegna æskulýðs-, íþrótta- og tómstundatilboða skyldi beint til foreldra en ekki barna. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sögðu í eigin bókun að breytingin væri aðeins minniháttar orðalagsbreyting enda hefðu reglurnar verið rýmkaðar fyrir áratug til þess að heimila íþróttafélögum og öðrum sem byðu tómstundatilboð að kynna starfsemi á skólatíma eða starfstíma frístundastarfs. Bentu þeir á að skortur á upplýsingum um starfið eða auglýsingar á skólatíma væru ekki vandamálið fyrir tómstundastarf barna. „Raunveruleg hindrun margra barna er fjárhagsleg staða og geta fjölskyldna til að fjármagna tómstundirnar.“
Reykjavík Borgarstjórn Íþróttir barna Grunnskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira