Innlent

Snert á stöðu ferða­þjónustu og fjöl­miðla í Sprengi­sandi

Freyja Þórisdóttir skrifar
Gestalisti Sprengisands í dag er skipaður fólki úr ferðaþjónustu og fjölmiðlageiranum.
Gestalisti Sprengisands í dag er skipaður fólki úr ferðaþjónustu og fjölmiðlageiranum. Samsett/Vísir

Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Páll Magnússon þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Í þætti dagsins eru fyrst og fremst tvö mál á dagskrá en það eru staða í ferðaþjónustu og staða einkarekinna fjölmiðla hérlendis.

Gestalistann skipa þau Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Logi Einarsson menningar-, nýsköpunarnýsköpunar- og háskólaráðherra.

Því næst mæta í settið markaðs- og sölustjórar Sýnar og Árvakurs, þeir Guðmundur H. Björnsson og Magnús E. Kristjánsson. Loks er von á þeim Helgu Guðrúnu Johnson og Sigmundi Erni Rúnarssyni sem tóku þátt í að búa fréttastofu Sýnar, áður Stöðvar 2, til á sínum tíma.

Líkt og fram hefur komið verður staðan í ferðaþjónustunni rædd í þættinum en þá sérstaklega aukin skattheimta sem er farin að hafa áhrif á framþróun og fjárfestingar í greininni.

Svo verður staða einkarekinna fjölmiðla tekin fyrir, ekki síst í ljósi þess að sjónvarpsfréttir Sýnar voru lagðar niður nú í upphafi vikunnar.

Þátturinn er á Bylgjunni alla sunnudaga frá klukkan tíu til tólf en hann er einnig að finna hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×