Af TikTok á skjáinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. september 2026 12:12 Skólinn eru nýir örþættir sem verða sýndir á Sýn í september. Skólinn eru nýir örþættir frá Sketsagerðinni, sem hefur notið vinsælda fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum, sem hefja göngu sína á Sýn+ þann 15. september. Þættirnir verða þrjátíu talsins, hver á bilinu ein til þrjár mínútur að lengd og verða þeir sýndir yfir þrjátíu daga tímabil.
Um er að ræða glænýtt fyrirbæri á íslenskum markaði, „micro drama“ eða „ördrama“ á íslensku, en það má rekja til Kína og er sérstaklega vinsælt á forritum á borð við TikTok og Youtube Shorts. Myndböndin eru stutt og þáttaskipt og er hver þáttur í kringum eina til þrjár mínútur að lengd. Þættirnir eru hannaðar fyrir farsíma og samfélagsmiðla þar sem fólk horfir á efni hratt og í stuttum lotum. Þar blandast saman dramatík, spenna, rómantík og grín með hraðri framvindu til að halda áhorfandanum við efnið frá fyrstu sekúndum. Plakatið fyrir þættina. Skólinn er unglingadrama sem gerist í íslenskum framhaldsskóla og fylgir serían nemendum í gegnum upphaf skólans, vinasambönd og ástir. Strákarnir í Sketsagerðinni, sem byrjuðu að framleiða grínmyndbönd fyrir tveimur árum og hafa notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum, standa að baki þáttunum. Höfundar og leikstjórar Skólans eru Unnar Steinn Sigurðsson og Aron Valur Gunnlaugsson. Þeir tveir fara jafnframt með aðalhlutverk í þáttunum ásamt Jóhanni Inga Eggertssyni, Eddu Guðnadóttur, Sigurrós Soffíu Daðadóttur og Kötlu Borg Stefánsdóttur. Með aukahlutverk í þáttunum fara þekkt nöfn á borð við Eyþór Wöhler, Guðrúnu Svövu Egilsdóttir (Guggu í Gúmmíbát) og Hákon Jóhannesson. Skólinn er framleiddur af Silfru og Hér&nú í samvinnu við Sýn. Fyrstu þættirnir verða öllum aðgengilegir án endurgjalds á samfélagsmiðlum en serían í heild verður í boði fyrir áskrifendur SÝN+. Hér að neðan má sjá stiklu fyrir þættina. Hvað eru örþættir? Kínverska fyrirbærið Duanju, sem má þýða sem ördrama, festi sig í sessi þar í landi í kringum 2018 á Douyin, kínverskri hliðstæðu TikTok. Vinsældir myndbandanna hafa aukist tölulvert síðustu ár, sérstaklega í Asíu. Markaðurinn hefur vaxið á methraða í Kína, fyrirtæki þar í landi fjárfest í framleiðslu á slíkum þáttum sem eru sérsniðnir að snjallsímanotkun og fylgjast mörg hundruð milljónir notenda með slíku efni. Áhorfendur geta oft klárað heila seríu á innan við einni klukkustund, sem gerir efnið mjög aðgengilegt. Þróunin hefur einnig breiðst út til Bandaríkjanna, Evrópu og Suður-Kóreu þar sem streymisveitur og samfélagsmiðlar eru farin að framleiða eða styðja við framleiðslu slíks efnis. Nýverið tilkynnti norska ríkissjónvarpið NRK um nýja svoleiðis seríu. Formið endurspegar breytingar á neysluvenjum fólks, þar sem sífellt fleiri vilja hraðvirkt og auðmelt afþreyingarefni sem hægt er að horfa á hvar og hvenær sem er. Sýn vill hefja þessa innleiðingu á Íslandi og ná þar til yngra fólks sem er nú þegar ekki mikið að horfa á sjónvarp, heldur skrunar símann frekar.
Bíó og sjónvarp Sýn Samfélagsmiðlar TikTok Kína Mest lesið Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Sjá meira